Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Samúel Karl Ólason skrifar 6. október 2026 22:17 Christa Pike var flutt á sjúkrahús á miðvikudaginn í síðustu viku, eftir að aftaka hennar mistókst. AP/Fangelsismálayfirvöld í Tennessee og George Walker Christa Pike er vöknuð og getur tjáð sig en hún er enn á sjúkrahúsi eftir að aftaka hennar í Tennessee misheppnaðist í síðustu viku. Lögmenn hennar segja enn óljóst hvort hún muni ná bata og segja þeir að hún standi frammi fyrir löngu bataferli, verði ekki aftur reynt að taka hana af lífi.
Pike er fimmtug en hún var árið 1996 dæmd til dauða fyrir aðkomu hennar að morði á skólafélaga hennar. Pike var þá um átján ára þegar hún ásamt kærasta sínum pyntaði og drap Colleen Slemmer, sem þá var nítján ára. Þegar reynt var að taka hana af lífi með pentóbarbítal í æð tókst það ekki. Hún hafði verið sprautuð með tveimur skömmtum af lyfinu sem á að vera banvænt og dró það hana ekki til dauða. Þess í stað segja lögmenn hennar að höndin sem hún var sprautuð í hafi verið brennd og þakin blöðrum eftir aftökutilraunirnar. Pike var flutt á sjúkrahús þar sem hún hefur verið síðan. Sjá einnig: „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku AP-fréttaveitan hefur eftir lögmönnum hennar að þeir séu þakklátir viðbragðsaðilum og starfsmönnum sjúkrahússins, sem hafi „komið fram við Christu eins og manneskju“ og hlúð að henni. „Þrátt fyrir allar líkur er Christa Pike með meðvitund, getur talað og heldur áfram að fá gjörgæslumeðferð,“ sögðu lögmenn Pike í yfirlýsingu. „Þrátt fyrir þau alvarlegu meiðsli sem hún hlaut á handleggjum sínum er hún enn í handjárnum og fjötruð við sjúkrarúmið. Bati hennar á sér vart hliðstæðu í læknisfræðinni.“ Sérfræðingur sem blaðamaður AP ræddi við segir að um jákvæða þróun sé að ræða fyrir Pike. Erfitt sé að spá í framhaldið og það hvenær hún muni ná það góðum bata að hægt verði að reyna aftur að taka hana af lífi. Lögmenn Pike munu á morgun mæta í dómsal vegna máls hennar og ætla þeir að krefjast upplýsinga um hvað fór úrskeiðis. Þeir eru einnig að reyna að fá Bill Lee, ríkisstjóra Tennessee, til þess að koma í veg fyrir aðra aftökutilraun og milda dóm hennar í lífstíðarfangelsi.
Bandaríkin Dauðarefsingar Erlend sakamál Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fleiri fréttir Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Sjá meira