Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Sindri Sverrisson skrifar 1. október 2026 07:30 Ferli Cristiano Ronaldo með portúgalska landsliðinu virðist ætla að ljúka með ljótum hætti. Getty/Grzegorz Wajda Cristiano Ronaldo yfirgaf í gær portúgalska landsliðshópinn í fússi fyrir leikinn við Danmörku í Þjóðadeildinni í kvöld og viðbrögðin hafa eðlilega verið mikil í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Nú hefur Elma systir hans tekið til varna á Instagram og látið portúgölsku þjóðina heyra það.
Eftir að hafa þurft að dúsa á varamannabekk Portúgals í 2-1 sigrinum gegn Noregi í Osló í fyrrakvöld og sleppt því að fagna sigrinum með liðsfélögum sínum úti á velli hefur Ronaldo nú dregið sig úr portúgalska hópnum. Þjálfarinn Jorge Jesus sagðist á blaðamannafundi í gær ekki hafa nýtt krafta hins 41 árs gamla Ronaldos gegn Noregi einfaldlega vegna þess að hann taldi aðra leikmenn henta betur í upplegg liðsins í þeim leik. Ronaldo kveðst sjálfur ætla að útskýra ástæður brotthvarfsins síðar. Portúgalskir miðlar segja formann portúgalska knattspyrnusambandsins hafa flogið sérstaklega til Kaupmannahafnar til að reyna að miðla málum á milli Ronaldo og Jesus en það virðist engu hafa skilað. Formaðurinn hafði ætlað að vera viðstaddur sigur U21-liðs Portúgals á Gíbraltar sem skilaði liðinu inn á EM í gærkvöld. Portúgalskir miðlar hafa auðvitað fjallað mikið um þá ákvörðun Ronaldo að yfirgefa landsliðið og þá hefur mikið grín verið gert að honum á samfélagsmiðlum. Þess ber að geta að fyrir tíma Ronaldo hafði Portúgal aðeins þrisvar komist á HM í allri sögunni. Með Ronaldo innanborðs komst Portúgal á sex HM af sex mögulegum auk þess að vinna EM 2016 og Þjóðadeildina í tvígang. ℹ️🇵🇹 Cristiano Ronaldo’s sister Elma shares the following message on Instagram by commenting “everything has been said here”.“CR7 deserved more respect.The national team deserved more structure.Portuguese journalism deserved more competence and less speculation.As for the… pic.twitter.com/gePBdM27FT— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) September 30, 2026 Viðbrögðin hafa reitt Elmu Aveiro, systur Ronaldos, til reiði og hún segir að portúgalska þjóðin eigi ekki skilið að hafa hann í liðinu. Hún skrifaði á Instagram: „CR7 átti skilið meiri virðingu. Landsliðið átti skilið betra utanumhald. Portúgölsk blaðamennska átti skilið meiri hæfni og minni vangaveltur. Hvað portúgölsku þjóðina varðar, tja... hún á ekki skilið að hafa það besta í neinu. Við erum öfundsjúk, fyrirlitleg, fáfróð og eigum skilið að snúa aftur til þeirrar meðalmennsku sem við höfðum alltaf í fótbolta fyrir tíma CR7. Takk fyrir allt, CR7! Þú áttir meira skilið!“
Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Sjá meira