Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Lovísa Arnardóttir skrifar 19. september 2026 09:35 Myndin er af dómstólnum í Umeå í Svíþjóð þar sem hann var dæmdur. Umeå tingsrätt Átján ára piltur hefur verið dæmdur til tíu ára fangelsis í dómstóli í Umeå í Svíþjóð fyrir tvær tilraunir til manndráps gegn ungmenni í Þýskalandi og fjölmörg kynferðis- og ofbeldisbrot gegn ástralskri stúlku. Brotin áttu sér stað á netinu og pilturinn hefur verið kallaður „Chai“ í sænskum miðlum og var hluti af glæpahópnum 764.
764 glæpahópurinn hefur herjað hefur á fólk og sérstaklega ungmenni víða um heim, líka á Íslandi. Hópurinn er þekktur fyrir að þrýsta á fórnarlömb sín til að framleiða kynferðislegt efni eða að fremja ofbeldisverk. Maðurinn var, meðal annars, dæmdur fyrir tvær tilraunir til manndráps á manni í Þýskalandi og um að hafa stýrt og aðstoðað við tilraun til manndráps í Hässelby árið 2024. Þar réðst fjórtán ára drengur að 82 ára gömlum manni með hníf. Í frétt sænska miðilsins Aftonbladet segir um árásina í Hasselby að Chai hafi fylgst með henni í rauntíma og gefið öðrum meðlimi hópsins fyrirmæli sem hann svo framkvæmdi. Chai var einnig sakfelldur fyrir að hafa beitt stúlku í Ástralíu alvarlegum kynferðisbrotum yfir langan tíma. Chai var grunaður um fjölda annarra brota, þar með talið nauðgun, stórfellda líkamsárás og brot á lögum um kynferðisbrot er varða framleiðslu og vörslu barnaníðsefnis. Chai var í vikunni dæmdur til tíu ára fangelsis og sex mánaða. Brotin voru framin þegar hann var á aldrinum 15 til 17 ára en hann var handtekinn í skólanum fyrir þrettán mánuðum síðan. Þungur dómur fyrir svo ungan einstakling „Þetta er mjög þungur dómur fyrir svo ungan einstakling,“ segir í athugasemd við dóminn. Þar kemur einnig fram að hann þurfi að greiða rúmlega 1,8 milljónir sænskra króna í miskabætur og skaðabætur til þeirra brotaþola sem hafa verið nafngreindir. Í frétt Aftonbladet um málið er haft eftir Jenny Östling, saksóknara í málinu, að Chai hafi verið leiðtogi innan 764-hópsins. Réttarhöld í málinu fóru fram síðla vors og voru þau fyrstu í Svíþjóð þar sem tekist var á við brot hópsins. Östling lýsti málinu sem fordæmisgefandi. „Dómurinn tók afstöðu til þess hvort brot sem almennt eru flokkuð sem ofbeldisbrot geti einnig verið framin í fjarskiptum, þannig að gerandinn fái fórnarlambið til að skaða sjálft sig eða jafnvel reyna að svipta sig lífi.“ Í dómnum komst héraðsdómurinn að sömu niðurstöðu og saksóknarinn. „Það er til fordæmi sem þýðir að hægt er að fremja kynferðisbrot við sambærilegar aðstæður og lögin gera ráð fyrir að hið sama gildi um ofbeldisbrot,“ segir Hans Sundberg, forseti dómsins. Dómurinn lagði einnig áherslu á að brotin hefðu verið framin innan ofbeldisfulls netsamfélags. „Mér líður vel með að mér hafi, með hjálp fjölda sérfræðivitna, tekist að varpa skýru ljósi á þetta umhverfi og að dómurinn hafi áttað sig á alvarleika þessa fyrirbæris,“ sagði Östling í vikunni í skriflegu svari til Aftonbladet um málið. Meðan á réttarhöldunum stóð gekkst Chai undir réttargeðrannsókn sem leiddi í ljós að hann þjáðist ekki af alvarlegri geðröskun þegar brotin voru framin. Hann neitaði ávallt sök. Haft var eftir lögmanni hans, Emily Töyrä, í frétt Aftonbladet í vikunni að ekki væri búið að taka ákvörðun um hvort þau ætluðu að áfrýja dómi en að hún teldi að dómstóllinn hefði gert mistök. Þrettán ára íslensk stúlka í klóm hópsins Greint var frá því síðla árs í fyrra að íslensk stúlka hefði lent í klóm hópsins. Hún var neydd til að skaða sjálfa sig og hvött til ofbeldis gegn öðrum. Þá varð hún vitni að þremur sjálfsvígum ungmenna í beinu streymi. Stúlkan lenti á vef ofbeldishópsins í gegnum samskiptaforritið Discord, þar sem hún átti í samskiptum við „vini“ og aðrar stúlkur sem spiluðu meðal annars saman Roblox. Stúlkan var þrettán ára þegar þetta átti sér stað. Lögreglan í Vestmannaeyjum rannsakaði málið. Barnavernd og lögreglan í Vestmannaeyjum hvöttu foreldra í kjölfarið til að fara yfir samfélagsmiðlanotkun barna sinna og fylgjast vel með líðan þeirra. Dæmdur til 77 ára fangelsis í Bandaríkjunum Í frétt Guardian um sama mál kemur fram að álíka mál hafi komið upp í Bandaríkjunum, Bretlandi, Þýskalandi og Ástralíu og fórnarlömb hópsins séu búsett í mörgum löndum. Bandaríkjamaðurinn Kyle Spitze sem einnig tilheyrði 764-hópnum var dæmdur í ágúst í 77 ára fangelsi, lengsta alríkisfangelsisdóm sem hingað til hefur verið kveðinn upp yfir einstaklingi. Bandarísk stjórnvöld hafa skilgreint sem „níhilískan ofbeldisöfgamann“. Hann var 27 ára þegar hann var dæmdur.
Svíþjóð Netglæpir Kynferðisofbeldi Bandaríkin Vestmannaeyjar Erlend sakamál Tengdar fréttir Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna „Maður er að vona að það séu ekki fleiri en samt er maður að vona að ef það eru fleiri að maður finni þá,“ segir Katrín Auðbjörg Aðalsteinsdóttir, móðir stúlku sem lenti í alþjóðlega netofbeldishópnum 764. 22. júní 2026 07:00 Varar foreldra við að deila myndum af börnunum: „Fullt af ógeðslegu fólki sem vill misnota myndirnar“ Sérfræðingur hjá Heimili og skóla varar foreldra við að deila myndum af börnunum sínum opinberlega á netinu þar sem aðilar noti þær í slæmum tilgangi, oft með aðstoð gervigreindar. Ákveðin vitundarvakning sé í gangi um notkun barna á samfélagsmiðlum. 18. nóvember 2025 11:31 Ofbeldi sem söluvara undirstriki mikilvægi samstarfs þvert á landamæri Ofbeldi og aðrir glæpir eru seldir sem þjónustuvara gegn greiðslu á Íslandi og einkar alvarlegt er þegar skipulagðir glæpahópar nýta börn og ungmenni í þeim tilgangi. Þetta segir framkvæmdastjóri Europol sem telur málin undirstrika mikilvægi lögreglusamstarfs þvert á landamæri. 11. nóvember 2025 21:01 Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Fleiri fréttir Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Sjá meira
Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna „Maður er að vona að það séu ekki fleiri en samt er maður að vona að ef það eru fleiri að maður finni þá,“ segir Katrín Auðbjörg Aðalsteinsdóttir, móðir stúlku sem lenti í alþjóðlega netofbeldishópnum 764. 22. júní 2026 07:00
Varar foreldra við að deila myndum af börnunum: „Fullt af ógeðslegu fólki sem vill misnota myndirnar“ Sérfræðingur hjá Heimili og skóla varar foreldra við að deila myndum af börnunum sínum opinberlega á netinu þar sem aðilar noti þær í slæmum tilgangi, oft með aðstoð gervigreindar. Ákveðin vitundarvakning sé í gangi um notkun barna á samfélagsmiðlum. 18. nóvember 2025 11:31
Ofbeldi sem söluvara undirstriki mikilvægi samstarfs þvert á landamæri Ofbeldi og aðrir glæpir eru seldir sem þjónustuvara gegn greiðslu á Íslandi og einkar alvarlegt er þegar skipulagðir glæpahópar nýta börn og ungmenni í þeim tilgangi. Þetta segir framkvæmdastjóri Europol sem telur málin undirstrika mikilvægi lögreglusamstarfs þvert á landamæri. 11. nóvember 2025 21:01