Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna Valur Páll Eiríksson skrifar 19. september 2026 10:01 Sölvi Geir Ottesen getur orðið Íslandsmeistari í dag og sonur hans getur tryggt Bestu deildar sæti í úrslitaleik á þjóðarleikvanginum. Vísir/Einar „Þetta er titill undir,“ segir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, um leik dagsins við KR í Bestu deild karla. Víkingur verður Íslandsmeistari með sigri. Sonur Sölva á þá fyrir höndum úrslitaleik á Laugardalsvelli.
Ekki er langt síðan KR mætti Víkingi og talað um þann leik sem þann stærsta á tímabilinu. Yfir fimm þúsund manns mættu og mikil spenna. Honum lauk með 1-1 jafntefli sem voru betri úrslit fyrir Víking en KR í toppbaráttunni. Klippa: Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna Nú er svo við komið að sigri Víkingar í dag verða þeir meistarar. Er þessi leikur þá enn stærri en sá um daginn? „Vissulega er hæpið mikið. Við getum orðið Íslandsmeistarar ef við vinnum hann en við þurfum að passa okkur á að láta ekki þær tilfinningar verða of miklar og fara að hugsa of mikið um það. Þetta er bara enn einn fótboltaleikurinn þar sem við þurfum að gera réttu hlutina og fókusera á þá sem eru að gerast inni á vellinum frekar en það sem að mun gerast eftir leik eða hvernig sem er,“ segir Sölvi Geir. Býstu við svipuðum leik og síðast? „Já, ég segi það. Ég býst við bara mjög orkumiklum leik og hart verði tekist á. Bæði lið reyna að ná sínum leikstíl. Þeir vilja hafa hann leikinn opnari, svona fram og til baka, meiri kaósbolta, meðan við viljum stjórna leiknum aðeins betur og svona skipuleggja okkar árásir og varnarleik meira,“ segir Sölvi og bætir við: „Og það verður bara eins og alltaf áskorun að ná því fram og það mun koma svona augnablik þar sem að þeir verða yfir og koma augnablik þar sem við erum yfir. Við þurfum bara að nýta þá kafla þegar við erum yfir og að sama skapi vera agaðir og þéttir fyrir þegar mómentið fer yfir til þeirra.“ Stór dagur fyrir soninn Þetta er ekki aðeins stór dagur fyrir Sölva Geir því sonur hans Magnús Daði Ottesen mun leika úrslitaleik með Fylki við Þrótt um sæti í Bestu deild karla á Laugardalsvelli í dag. Það gæti orðið mikill gleðidagur en gæti líka farið verr. „Já, já, það er bara skemmtilegt þegar þetta er svona. Það eru miklar tilfinningar sem eru núna. Það verður mikil spenna á heimilinu og það er bara það sem að gerir þetta skemmtilegt og hérna, vonandi bara verða þetta góðar tilfinningar,“ „En að sama skapi þá lærum við helling á slæmum tilfinningum þegar við lendum í augnablikunum þar sem ekki gengur upp og þá fer maður yfirleitt að teikniborðinu aftur og vinnur úr hlutunum og verður betri fyrir vikið, hvort sem er liðið eða einstaklingar eða hvernig sem er,“ segir Sölvi og bætir við: „Þannig að það er bara forréttindi að vera í þessari stöðu, bæði fyrir Fylki og strákinn að vera komnir í hreinan úrslitaleik. Þetta verður mögnuð upplifun fyrir alla Fylkismenn og og strákinn og að sama skapi getur þetta líka verið mögnuð upplifun og tilfinningar sem að við Víkingar förum í gegnum.“ Brunar í Laugardalinn KR og Víkingur mætast klukkan 14:00 í dag en leikur Fylkirs og Þróttar er klukkan 16:15. Ert þú að fara að bruna í Laugardalinn beint eftir leik? „Já, ég býst fastlega við því. Við skulum bara sjá hvernig fer á morgun og taka stöðuna út frá því þannig að ég er ekkert búinn að plana neitt fram í tímann eða svoleiðis þannig að ég ætla bara, það er fullur fókus á leikinn og hvernig ég ætla að undirbúa mig og strákana fyrir leikinn. Vissulega er allur undirbúningur búinn núna en það er margt sem maður þarf að hafa í huga á leikdegi.“ Viðtalið við Sölva má sjá í spilaranum. KR og Víkingur mætast klukkan 14:00 í dag. Leikurinn verður í beinni á Sýn Sport Ísland.
Víkingur Reykjavík KR Besta deild karla Íslenski boltinn Lengjudeild karla Fylkir Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Enski boltinn „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Fleiri fréttir Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Sjá meira