KA – Þór 3-0 | Sendu erkifjendurna í fallsæti með lífsnauðsynlegum sigri Þorsteinn Hjálmsson skrifar 19. september 2026 18:45 KA-menn fögnuðu gríðarlega í sigrinum dýrmæta gegn Þór í kvöld. Sýn Sport KA vann óhemju dýrmætan 3-0 sigur gegn Þór í miklum hitaleik á laugardagskvöld í 24. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Sigurinn kom KA úr fallsæti og sendi jafnframt Þór niður í fallsæti, nú þegar hvort lið á aðeins þrjá leiki eftir. KA-menn eru með 23 stig, tveimur stigum fyrir ofan Þór og fimm fyrir ofan ÍBV sem á leik til góða á morgun við Val í Vestmannaeyjum. Gríðarlegur fjöldi var á leiknum og sá þegar Jakob Snær Árnason kom KA yfir á 66. mínútu með góðu skoti. Birgir Baldvinsson tvöfaldaði forskotið skömmu síðar og Adam Ægir Pálsson innsiglaði svo 3-0 sigur. Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan. Uppgjörið kemur hér inn innan skamms... Íslenski boltinn Besta deild karla Þór Akureyri KA