Sport

Ætla að segja KR-ingum að halda kjafti

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Aroni Sigurðarsyni hefur tekist að pirra Víkinga síðustu vikur.
Aroni Sigurðarsyni hefur tekist að pirra Víkinga síðustu vikur. vísir/Anton

Eftir öruggan sigur Víkings á Keflavík í gær er bikarinn í það minnsta mættur á bílastæðið fyrir utan Víkina.

Ef Blikar stríða Fram í kvöld þá geta Víkingar orðið meistarar í Vesturbænum um næstu helgi. Það er spennandi gulrót fyrir meistarana enda hafa KR-ingar talað digurbarkalega og Víkingar vilja ólmir þagga niður í þeim.

Það styttist í körfuboltatímabilið og Grindvíkingar voru með stóra tilkynningu á dögunum er þeir endursömdu við Jeremy Pargo. Það er alveg ljóst að Grindvíkingar ætla sér að veraj titilinn.

Þeir verða þó án Ólafs Ólafssonar sem er enn að jafna sig á erfiðum meiðslum sem hann varð fyrir í lok síðustu leiktíðar.

Svo spáir Besta sætið aðeins í enska boltann en Liverpool og Tottenham mætast í deildabikarnum í kvöld. Spurs hefur ekki enn skorað mark í vetur.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×