Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Kjartan Kjartansson skrifar 11. september 2026 14:58 Höfuðstöðvar Alþjóðlega sakamáladómstólsins í Haag í Hollandi. AP/Peter Dejong Utanríkisráðuneytið segir ekki koma til greina að Ísland segi sig frá Rómarsamþykktinni og að íslensk stjórnvöld styðji Alþjóðalega sakamáladómstólinn heilshugar. Bandaríkjastjórn þrýstir nú á NATO-ríki og önnur að segja sig frá dómstólum.
Evrópska blaðið Politico greindi frá því í gær að Matthew Whitaker, sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar, hefði beðið sendiherra aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins um aðstoð við að grafa undan Alþjóðlega stríðsglæpadómstólnum á lokuðum fundi með þeim í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel í júlí. Vildi Whitaker að ríkin segðu sig frá Rómarsamþykkinni, stofnsáttmála dómstólsins. Varaði hann sendiherranna við því að Bandaríkjastjórn myndi fylgjast grannt með því hver styddu hana í þessu. Í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Vísis kemur fram að íslensk stjórnvöld styðji heilshugar við Alþjóðlega sakamáladómstólinn. Ísland hafi sem stofnaðili verið stoltur bakhjarl stofnunarinnar. „Ekki kemur til greina að Ísland segi sig frá Rómarsamþykktinni. Núverandi þróun heimsmálanna undirstrikar mikilvægi dómstólsins sem og alþjóðlegu baráttunnar gegn refsileysi þeirra sem fremja alþjóðaglæpi á borð við stríðsglæpi, glæpi gegn mannúð og hópmorð,“ segir í svarinu. Harma tilraunir til að grafa undan dómstólnum Bandaríkjastjórn er uppsigað við Alþjóðlega sakamáladómstólinn. Hún er ekki sjálf aðili að að dómstólnum enda hafa bandarísk stjórnvöld aldrei viðurkennt lögsögu hans. Þá er hún ósátt við að saksóknarar dómstólsins hafi gefið út handtökuskipanir á hendur ísraelskum ráðherrum vegna hernaðar Ísraela á Gasaströndinni frá árinu 2023. Til þess að setja þrýsting á dómstólinn hefur Bandaríkjastjórn lagt persónulegar refsiaðgerðir á nokkra saksóknara við hann. Þá hafa þau bannað bandarískum fyrirtækjum að veita stofnuninni þjónustu. AP-fréttastofan segir að fimm ríki hafi sagt sig frá Rómarsamþykktinni undanfarið. Venesúela og Tsjad gerðu það nýlega en áður höfðu Búrkína Fasó, Malí og Níger látið dómstólinn lönd og leið. Utanríkisráðuneytið segir að íslensk stjórnvöld harmi allar aðgerðir ríkja sem ætlaðar séu til að grafa undan sjálfstæði og hlutleysi dómstólsins. „Hér er um að ræða grundvallaratriði varðandi virðingu fyrir þjóðaréttinum sem er hornsteinn utanríkisstefnu Íslands,“ segir í svarinu. Tengist ekki spurningalista Bandaríkjamanna um fylgispekt ríkja Nýlega var sagt frá því að Bandaríkjastjórn hefði sent bandalagsríkjum sínum í NATO spurningarlista um stuðning þeirra við utanríkisstefnu Trump-stjórnarinnar. Listinn er talinn liður í áætlunum Bandaríkjastjórnar um að draga ur hernaðarviðbúnaði sínum í Evrópu. Íslensk stjórnvöld fengu spurningalistann sendan. Utanríkisráðuneytið hefur ekki viljað upplýsa hvort eða hvernig spurningunum hafi verið svarað. Í svarinu nú segir utanríkisráðuneytið að krafa Bandaríkjastjórnar á fundi NATO-sendiherranna í sumar sem Politico sagði frá tengist ekki spurningalistanum. Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn var stofnaður árið 2002. Hann er fyrsta varanlega alþjóðstofnunin sem hefur umboð til þess að ákæra menn og dæma fyrir alþjóðlega glæpi eins og stríðglæpi, glæpi gegn mannkyninu, þjóðarmorð og árásarstríð.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Utanríkismál Bandaríkin NATO Donald Trump Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira