SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Kjartan Kjartansson skrifar 1. september 2026 12:34 Valgerður Rúnarsdóttir hefur verið framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ. Hún hefur starfað fyrir SÁÁ í um aldarfjórðung. Vísir/Arnar Framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ ætlar að hætta störfum en bæði forstjóri samtakanna og fagstjóri hættu í síðasta mánuði. Lækningastjórinn tilkynnti starfsfólki um þetta í morgun.
Stjórn SÁÁ gerði starfslokasamning við Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, forstjóra SÁÁ, í síðasta mánuði. Þóra Björk Ingólfsdóttir, fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík, fylgdi í kjölfarið. Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga, tilkynnti svo starfsfólki SÁÁ í morgun að hún ætlaði einnig að láta af störfum. Í samtali við Vísi sagðist Valgerður á leið í leyfi og að framtíðin ætti eftir að ráðast. Vísaði hún að öðru leyti á formann SÁÁ. Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ, hafði ekki fengið fregnir af því að Valgerður hefði sagt upp störfum í morgun. Hún lagði áherslu á að sem formaður stjórnar kæmi hún ekki nærri starfsmannamálum samtakanna. Ásgerður Th. Björnsdóttir er settur forstjóri SÁÁ eftir brotthvarf Ragnheiðar Huldu. Hún er framkvæmdastjóri rekstrarsviðs samtakanna. Ekki náðist samband við hana strax við vinnslu fréttarinnar. Brotthvarf stjórnendanna þriggja tengist ágreiningi á milli stjórnar SÁÁ annars vegar og fagstarfsmanna um meðferðarstarfið og forgangsröðun í því samkvæmt heimildum Vísis. Árið 2022 lýstu starfsmenn SÁÁ yfir vantrausti á þáverandi formann og framkvæmdastjórn eftir að hún sagði öllum sálfræðingum samtakanna upp störfum. Fréttin var uppfærð eftir að náðist í Valgerði Rúnarsdóttur.
SÁÁ Áfengi Heilbrigðismál Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Sjá meira