Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Kolbeinn Kristinsson skrifar 29. ágúst 2026 18:06 María Eva Eyjólfsdóttir og stöllur í Þrótti urðu að sætta sig við markalaust jafntefli í dag. vísir/Hulda Margrét Þróttur og Þór/KA skildu jöfn, 0-0, á PEPSI vellinum í Laugardal í 18. umferð Bestu deildar kvenna. Þróttur var meira með boltann lengst af en skipulagt lið Þórs/KA stóð vaktina vel og gestirnir fengu besta færi leiksins í síðari hálfleik. Þróttur með boltann en gestirnir lokuðu vel Liðin gengu inn á völlinn í sínum uppáhaldsíþróttatreyjum í tilefni af Treyjudeginum, sem haldinn er til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra. Þróttur hafði töluvert meira af boltanum í fyrri hálfleik og heimakonur sóttu nokkuð að marki gestanna. Sæunn Björnsdóttir tók meðal annars sex hornspyrnur fyrir Þrótt fyrir hlé en liðið náði ekki að nýta sér yfirburðina í boltanum. Þór/KA var vel skipulagt, varðist af festu og gaf lítið eftir. Engar stórar flugeldasýningar voru því í fyrri hálfleik og markalaust þegar liðin gengu til búningsherbergja. Í hálfleik gengu ungir iðkendur Þróttar inn á völlinn í langri halarófu við góðar undirtektir úr stúkunni. Þar var glæsilegum árangri yngri flokka félagsins í sumar fagnað og næsta kynslóð Þróttara fékk verðskuldaða athygli. Þór/KA fékk gullið tækifæri Leikurinn hélt áfram að vera jafn og spennan jókst eftir því sem leið á síðari hálfleikinn. Langbesta færi leiksins kom á 71. mínútu þegar sóknarmaður Þórs/KA slapp alein inn fyrir vörn Þróttar. Hún reyndi að fara fram hjá Mollee Swift í marki heimakvenna en náði ekki að koma boltanum í netið og niðurstaðan varð markspyrna. Hvorugu liðinu tókst að finna sigurmarkið á lokakaflanum og niðurstaðan því markalaust jafntefli, 0-0, í Laugardalnum. Atvik leiksins Þór/KA fékk algjört dauðfæri á 71. mínútu leiksins þegar sóknarmaður þeirra slapp alein inn fyrir og reyndi að fara framhjá Mollee Swift í marki Þróttar en boltinn endaði í markspyrnu. Stjörnur og skúrkar Hjá Þrótti fær Sæunn Björndsóttir fær sérstakt hrós fyrir að taka samtals fjórtán hornspyrnur til viðbótar við önnur föst leikatriði fyrir sitt lið en allt kom fyrir ekki. Mollee Swift var sömuleiðs öflug í markinu og stóð vaktina með stakri prýði þegar mest á reyndi. Hjá Þór/KA var Alessandra Dorothy Augur í markinu virkilega öflug, greip oft vel inn í og kom sínu liði til varnar. Arna Sif Ásgrímsdóttur fyrirliði var sömuleiðis eins og klettur í hjarta varnarinnar, hún skallaði nær allar hornspyrnur og fyrirgjafir Þróttar í burtu. Maður leiksins án efa. Dómarinn Ronnarong Wongmahadthai og hans teymi dæmdu þennan leik prýðilega að mati þess sem þetta ritar. Engin umdeild atvik af ráði og faglegheit í fyrirrúmi. Einkunn: 8,5. Stemning og umgjörð 237 áhorfendur voru á PEPSI vellinum í Laugardal og veðrið lék við þá alla í hjarta Reykjavíkur. Umgjörðin glæsileg og áhorfendur létu alveg í sér heyra á köflum, þótt stemningin hafi heilt yfir verið fremur afslöppuð og notaleg. Besta deild kvenna Íslenski boltinn Þróttur Reykjavík Þór Akureyri KA