Segir Katrínu sparka í konuna sína Atli Ísleifsson skrifar 28. ágúst 2026 08:05 Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, í ræðupúlti á fundi Áfram Ísland á Austurvelli í gær, og svo hjónin Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, og Freyr Rögnvaldsson. Áfram Ísland/Facebook Eiginmanni framkvæmdastjóra Evrópuhreyfingarinnar blöskrar að Katrín Jakobsdóttir skuli stilla sér kyrfilega upp með peningavaldinu og sparka í konuna hans í leiðinni. Katrín ávarpaði samkomu Áfram Ísland á Austurvelli í gær og sagðist myndu kjósa nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun.
Fyrrverandi lykilfólk í Vinstri hreyfingunni - grænu framboði á borð við Katrínu, Steingrím J. Sigfússon, Ögmund Jónasson og Svandísi Svavarsdóttur eru öll nei-megin fyrir stóra daginn á morgun. Á sama tíma segir nýr formaður, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, já-megin og fleiri kjósendur flokksins sömuleiðis samkvæmt könnunum. Snærós Sindradóttir var öflugur liðsmaður ungliðahreyfingar flokksins um árabil. Hún hefur síðan sagt skilið við flokkinn, bjó í Ungverjalandi í nokkur ár og tók við hlutverki framkvæmdastjóra Evrópuhreyfingarinnar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Snærós bar saman verð á kaffibolla í Búdapest og Reykjavík í umræðunni í sumar. Eitthvað sem efasemdarfólk um að fara í aðildarviðræður hefur fundið að og ekki talið marktækan samanburð. Katrín Jakobsdóttir bættist í þann hóp á Austurvelli í gær. „Allt tal um verð á kaffibollum í Búdapest er hjákátlegt þegar horft er til þess þegar um er að ræða risastóra breytingu á stjórnskipan landsins — og um það deilir enginn: Möguleg Evrópusambandsaðild kallar á stjórnarskrárbreytingu,“ sagði Katrín. Lítið skemmt Frey Rögnvaldssyni, eiginmanni Snærósar, var lítið skemmt yfir ræðu Katrínar þar sem hún lýsti því yfir að hún myndi segja nei. „Í leiðinni ákvað hún að sparka í konuna mína, sem hefur af heilindum unnið að því að kynna Íslendingum leið út úr vaxtaokri og viðvarandi verðbólgu. Verðbólgu sem færir bönkunum á silfurfati gríðarlegan hagnað á kostnað landsmanna og sem heldur uppi gríðarlegum hagnaði hjá fasteignafélögum á borð við Eik, þar sem téð Katrín situr í stjórn,“ sagði Freyr á Facebook í gærkvöldi. Katrín lét af störfum sem forsætisráðherra vorið 2024 og tilkynnti um forsetaframboð. Þar beið hún lægri hlut gegn Höllu Tómasdóttur. Freyr vísaði til umræðunnar um kaffibollann en ummæli Snærósar féllu í umræðuþætti á RÚV. Hann tæpti á því hvernig honum fyndist Katrín hafa sparkað í Snærós. „Þetta gerði Katrín með því að vísa til þess að Snærós hefði sagt í sjónvarpssal að kaffibollinn í Búdapest væri ódýrari en í Reykjavík. Sem hann er, hvort sem miðað er við kaupmátt íslenskra launa eða ungverskra. Þetta er eini höggstaðurinn sem afturhaldið sem berst gegn bættum kjörum venjulegs fólks á Íslandi hefur fundið á málflutningi Snærósar. Að hún hafi sagt satt um að kaffibolli í höfuðborg ESB-ríkis sé ódýrari en í Reykjavík. Snærós, sem hefur engra hagsmuna annarra að gæta í málinu, annað en hliðvörður peningavaldsins, Katrín. Snærós hefur barist með kjafti og klóm fyrir hag almennings, af heiðarleika og heilindum. Annað en hægt er að segja um stóran hóp þeirra sem Katrín stillir sér nú upp með.“ Telur Katrínu vera í slæmum félagsskap og ljúgi Freyr telur Katrínu í slæmum félagsskap fólks sem skeyti hvorki um skömm né heiður, heldur ljúgi blákalt að Íslendingum. „Sem lýgur því að hér muni allt stjórnkerfið stoppa næstu árin verði sótt um aðild að ESB. Katrín ætti nú að hafa reynslu af því að það eru ósannindi. Sama fólk lýgur því að árlegur kostnaður við veru Íslands í ESB, ef af yrði, væri 50 milljarðar. Sama fólk lýgur því að ekki sé um neitt að semja og engar undanþágur sé að fá. Allt saman vísvitandi lygar til að beygja Íslendinga til að segja nei, og viðhalda hér völdum og áhrifum fámennrar auðstéttar. Völdum smás hóps sem nú er með böggum hildar af ótta við að missa ólígarkastöðu sína í íslensku þjóðfélagi. Smámennri klíku sem forsetaframbjóðandinn fyrrverandi hefur nú gengið fullkomlega á hönd og stillt sér kyrfilega upp gegn íslenskri alþýðu.“ Ætti í raun að hlæja að þessu Freyr segir að í raun ætti hann að hlæja að þessu. „Auðvitað ætti ég að hlæja að þessu, þetta er svo snautleg framkoma, þetta kollektíva rökþrot sem ríkir hjá Katrínu og öðrum afturhaldssinnum. Mér hins vegar blöskrar að kona sem fyrir korteri síðan sat á valdastóli, í krafti atkvæða fólks sem trúði að viðkomandi bæri hag Íslendinga fyrir brjósti, og ekki síst hagsmuni íslensks verkafólks, lágstéttar og þeirra sem jaðarsettir eru, skuli stilla sér svona kyrfilega upp með peningavaldinu. Það er bæði sorglegt og skammarlegt.“ Dapurlegt hjá Katrínu Grímur Atlason, stjúpfaðir Snærósar og framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir dapurlegt að Katrín geri lykkju á leið sinni með þessum hætti. Katrín hefði getað nýtt tækifærið að leiðrétta falskar fullyrðingar neibræðra sinna. „Hún hefði getað bent á lygina um Kýpur og raforkumál sem skoðanabræður hennar í vínsvansvottaða hlaðvarpinu Þjóðmál auglýsa stanslaust þessa dagana. Hún hefði líka geta varað við lygaáróðrinum þar sem því er haldið fram að Evrópuherinn bíði ungs fólks á Íslandi. Lygamaskínan hringir hreinlega í þetta unga fólk og/eða sendir þeim skilaboð á samfélagsmiðlum þar sem herinn er sagður staðreynd. Katrín hefði geta leiðrétt þetta,“ segir Grímur. „Nei, í staðinn fyrir að benda á upplýsingaóreiðu og andlýðræðisleg öfl kýs hún að sparka í Snærós sem vogaði sér að segja satt og rétt frá um verð á kaffibollanum í Búdapest (að teknu tilliti til kaupmáttar). Aumt er það.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Vinstri græn Fjármál heimilisins Tengdar fréttir „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra ávarpaði gesti útifundar samtakanna Áfram Ísland á Austurvelli. Samtökin hvetja landsmenn til þess að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn. Reynslan hafi sýnt Katrínu að betra væri að Ísland stæði áfram utan Evrópusambandsins. 27. ágúst 2026 18:10 „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Katrín Jakobsdóttir segist vera ósammála túlkun ríkisstjórnarinnar um að þjóðaratkvæðagreiðslan um helgina sé einungis til þess að skoða möguleikana. Afstaða hennar gagnvart aðildar að Evrópusambandinu sé breytt frá því að síðast var haldið í þá vegferð. 28. ágúst 2026 06:00 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira
„Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra ávarpaði gesti útifundar samtakanna Áfram Ísland á Austurvelli. Samtökin hvetja landsmenn til þess að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn. Reynslan hafi sýnt Katrínu að betra væri að Ísland stæði áfram utan Evrópusambandsins. 27. ágúst 2026 18:10
„Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Katrín Jakobsdóttir segist vera ósammála túlkun ríkisstjórnarinnar um að þjóðaratkvæðagreiðslan um helgina sé einungis til þess að skoða möguleikana. Afstaða hennar gagnvart aðildar að Evrópusambandinu sé breytt frá því að síðast var haldið í þá vegferð. 28. ágúst 2026 06:00