Meistaraliðið selt fyrir metverð Ágúst Orri Arnarson skrifar 27. ágúst 2026 12:46 Kenneth Walker III með Vince Lombardi verðlaunagripinn sem Seattle Seahawks unnu fyrr á árinu. Liðið varð tvisvar meistari í eigendatíð Allen fjölskyldunnar. Getty/Kevin C. Cox Eigendur NFL deildarinnar hafa samþykkt að klára söluferli á ríkjandi meistaraliðinu Seattle Seahawks. Milljarðamæringurinn Vinod Khosla verður nýr eigandi en hann kaupir félagið fyrir metverð, 9,612 milljarða dollara.
Þetta er hæsta upphæð sem hefur verið greidd fyrir félag í NFL deildinni en fyrra metið hefur staðið síðan 2023, þegar Washinton Commanders voru seldir fyrir 6,05 milljarða dollara. Upphæðin nær samt ekki að toppa söluna á Los Angeles Lakers á síðasta ári fyrir slétta tíu milljarða dollara, sem er hæsta verð sem fengist hefur fyrir bandarískt íþróttalið. Lakers eru líka aftur í söluferli, núna fyrir 12,5 milljarða dollara. „Við njótum mikils heiðurs, að fá traustið til að taka við liði Seattle Seahawks. Hversu oft fær maður tækifæri til að kaupa lið sem var að vinna Ofurskálina?“ sagði Vinod Khosla á blaðamannafundi í gærkvöld. Khosla hefur hingað til átt minnihluta í NFL liði en mun nú þurfa að láta sleppa taki ef hluta sínum í liði San Francisco 49ers. Hann er 71 árs gamall og metinn á 13,2 milljarða af Forbes. Khosla komst til fjár við sölu á tæknifyrirtækinu Sun Microsystems sem hann stofnaði. Fyrrum eigendur félagsins, Paul G. Allen og fjölskylda hans, eignuðust Seahawks árið 1997 og komu í veg fyrir að liðið flyttist frá Seattle. Systir Paul, Jody Allen, var stjórnarformaður bæði Seattle Seahawks og NBA liðsins Portland Trail Blazers, eftir andlát hans árið 2018.
NFL Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Keflavík - Stjarnan | Komast heimakonur á sigurbraut? Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Vikings er eina ósigraða liðið Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tímamótum Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira