Fótbolti

Slags­mál og allt á suðu­punkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon

Stefán Árni Pálsson skrifar
Guendouzi var ekki vinsæll í Frakklandi í kvöld.
Guendouzi var ekki vinsæll í Frakklandi í kvöld. vísir/getty

Fenerbahçe tryggði sér sæti í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu með 2-1 sigri á Lyon í Frakklandi í kvöld. Tyrkneska liðið vann einvígið samanlagt 3-2 eftir að fyrri leikurinn í Istanbúl hafði endað 1-1.

Vedat Muriqi kom Fenerbahçe yfir á 17. mínútu eftir að hafa fylgt eftir eigin skalla. Gestirnir náðu síðan tveggja marka forskoti rétt fyrir hálfleik þegar Jayden Oosterwolde Brown skoraði eftir fast leikatriði.

Lyon kom til baka í síðari hálfleik þegar Malick Fofana minnkaði muninn á 68. mínútu og heimamenn sóttu stíft eftir jöfnun.

Frakkarnir héldu áfram að skapa hættu undir lokin og fengu meðal annars gott færi til að jafna, en Fenerbahçe hélt út og tryggði sér einn stærsta sigur félagsins á síðari árum.

Fenerbahçe er þar með komið í deildarkeppni Meistaradeildarinnar í fyrsta sinn síðan tímabilið 2008/09. Lyon situr hins vegar eftir með sárt ennið eftir að hafa verið í góðri stöðu í einvíginu fyrir síðari leikinn.

Tyrkneska liðið vann einvígið 3-2 samanlagt og getur því farið að hlakka til þess að mæta stærstu liðum Evrópu í deildarkeppni Meistaradeildarinnar.

Mattéo Guendouzi fékk sannarlega að finna fyrir því fyrir og eftir leik. Hann er Frakki og lék áður fyrir Marseille, erkifjendur Lyon. Guendouzi hefði mátt sleppa því sem hann gerði hér að neðan. 

Púað var á Guendouzi allan leikinn og þegar lokaflautið kom þá varð alltaf vitlaust. Leikmenn Lyon veittust að honum.

Svo langt gengu hlutirnir að áhorfandi stökk inn á völlinn og veittist að honum einnig eins og sjá má.

Önnur úrslit í kvöld:

AEK – Lavski Sofia 4-0 – AEK komið áfram.

Celje – Slovan Bratislava 1-2 – Slovan komið áfram.

Viking – Dinamo Zagreb 3-1 – Viking komið áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×