Jón Daði hættur í fótbolta: „Á endanum stend ég eftir með ekkert nema þakklæti“ Sindri Sverrisson skrifar 17. ágúst 2026 11:28 Jón Daði Böðvarsson fagnar marki sínu í 2-1 sigrinum á Austurríki á EM 2016. VÍSIR/VILHELM Jón Daði Böðvarsson, ein af hetjunum sem komu Íslandi í 8-liða úrslit EM 2016 og á HM 2018, hefur lagt fótboltaskóna á hilluna. Þetta tilkynnti hann á samfélagsmiðlum í dag.
Jón Daði lauk ferlinum sem leikmaður Selfoss en félagið tilkynnti á laugardaginn að hann hefði lokið störfum þar. Í kjölfarið hefur þessi 34 ára sóknarmaður nú tilkynnt að ferlinum sé lokið. Jón Daði hóf ferilinn á sama stað og honum lauk, með Selfossi, en lék svo um langt árabil í atvinnumennsku. Hann byrjaði hjá Viking í Noregi en lék svo með Kaiserslautern í Þýskalandi áður en hann hélt til Englands, þar sem hann lék svo með Wolves, Reading, Millwall, Bolton, Wrexham og Burton Albion. Jón Daði lauk ferlinum þar sem hann hófst, heima á Selfossi.vísir / sigurjón Það eru þó afrek hansa með íslenska landsliðinu sem eflaust standa upp úr í huga landsmanna en Jón Daði var byrjunarliðsmaður á bestu árum landsliðsins og skoraði eftirminnilega gegn Tyrkjum í fyrsta mótsleik sínum fyrir A-landsliðið, haustið 2014, og í 2-1 sigrinum gegn Austurríki þegar Ísland tryggði sig inn í 16-liða úrslitin á EM. Alls skoraði hann fjögur mörk í 64 A-landsleikjum. Í tilkynningu sinni kveðst Jón Daði fullur þakklætis til þjálfara, leikmanna, framkvæmdastjóra og annars starfsfólks sem hann hefur unnið með en ekki síður til stuðningsmanna hvar sem hann hefur spilað. „Ég vildi alltaf tjá mig á besta mögulega hátt inni á vellinum svo þið gætuð farið af leikvanginum með bros á vör. Ég vona að mér hafi tekist það,“ skrifar Jón Daði sem þakkaði svo eiginkonu sinni sérstaklega fyrir óteljandi fórnir í gegnum tíðina. Jón Daði lék við góðan orðstír hjá enskum liðum, þar á meðal Bolton.Vísir/Getty Tilkynningu Jóns Daða má lesa í heild hér að neðan, í lauslegri þýðingu: Allt gott tekur enda. Ég tilkynni hér með að ég er hættur í íþróttinni sem ég elska. Íþróttinni sem ég hef elskað síðan ég var 6 ára gamall og horfði á tíundubekkinga spila og sá leikinn í allri sinni dýrð. Ég velti því stundum fyrir mér hvernig ég gat verið svona heppinn að láta draum minn rætast, með öllum þeim tilfinningalegu rússíbanaferðum, mótlæti og velgengni sem því fylgdi. En á endanum stend ég eftir með ekkert nema þakklæti. Ég vil þakka öllum framkvæmdastjórum, þjálfurum, leikmönnum og starfsfólki sem ég hef verið svo lánsamur að kynnast og vinna með. Það var frábært að deila með ykkur hæðum og lægðum fótboltans. Ég vil einnig þakka öllum stuðningsmönnum allra þeirra frábæru félaga sem ég spilaði fyrir á ferli mínum. Án ykkar væri leikurinn ekki sá sami. Ég vildi alltaf tjá mig á besta mögulega hátt inni á vellinum svo þið gætuð farið af leikvanginum með bros á vör. Ég vona að mér hafi tekist það. Og að lokum, fallega eiginkonan mín. Þær óteljandi fórnir sem þú hefur fært til að styðja mig á þessu ferðalagi. Kletturinn minn á erfiðum tímum og minn stærsti stuðningsmaður. Besta mamma sem börnin okkar gætu hugsað sér. Takk fyrir allt ❤️ JDB
UMF Selfoss Landslið karla í fótbolta Fótbolti Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Valencia - Barcelona | Hörkuleikur á Mestalla FH - Þór/KA | Kemst FH aftur á toppinn? Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast KA - Breiðablik | KA þarf að spyrna af botninum Stjarnan - ÍBV | Eyjamenn kíkja í Garðabæinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Hólmbert bjargaði stigi Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Sjá meira