Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 1-0 | Stjarnan heldur áfram að þoka sér upp töfluna Hjörvar Ólafsson skrifar 9. ágúst 2026 19:54 Stjarnan er ekki lengur í Evrópukeppni og getur einbeitt sér að Bestu deild karla. Anton/Vísir Bjarki Hauksson skoraði sigurmark Stjörnunnar þegar liðið vann 1-0 sigur gegn Keflavík í 18. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Samsung-vellinum í Garðabænum í kvöld. Stjarnan lék einum leikmanni fleiri frá því undir lok fyrri hálfleik þegar Alpha Conteh var vísað af velli með rauðu spjaldi. Liðin voru bæði að koma úr sigurleikjum en Stjarnan lagði Val að velli í síðustu umferð deildarinnar á meðan Keflavík vann góðan 3-0 sigur á móti KA. Fyrir leikinn var Keflavík í fimmta sæti deildarinnar með 22 stig og Stjarnan í því áttunda með 18 stig. Þar á milli voru Valur og Skaginn með 19 stig hvort lið. Alpha Conteh var vísað af velli með rauðu spjaldi undir lok fyrri hálfleiks. Alpha fékk gult spjald í upphafi leiks fyrir að slæma hendinni í andlit Örvars Eggertssonar. Alpha fékk síðan seinna gula spjaldið fyrir að narta í hæla Benedikts V. Warén í tæklingu sinni. Alpha náði til boltans áður en hann fór í hæla Benedikts og að mínu mati var þetta strangur dómur. Stjarnan náði ekki að nýta sér liðsmuninn það sem eftir lifði fyrri hálfleiks en Örvar Eggertsson komst næst því að brjóta ísinn og hleypa lífi í annars bragðdaufan leik þegar hann skaut í þverslán skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks. Staðan var markalaus þegar liðin röltu til búningsklefa í hálfleik en Stjarnan var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og nær því að komast yfir. Stjarnan hélt áfram að banka á dyrnar við mark Keflavíkur í upphafi seinni hálfleiks. Jóhann Árni Gunnarsson átti skot rétt utan vítateigs sem small í stönginni. Það var svo Bjarki Hauksson sem fann leiðina að netmöskvunum á marki Keflavíkur þegar rúmar 50 mínútur voru liðnar af leiknum. Boltinn hrökk fyrir fætur Bjarka á fjærstönginni og bakvörðurinn skoraði með föstu skoti í fjærhornið. Stjarnan var nær því að bæta öðrum markinu við en Keflavík að jafna og næla sér í stig það sem eftir lifði leiksins. Lokatölur urðu 1-0 Stjörnunni í vil sem er þar með komin með 21 stig og andar í hálsmálið á Keflavík og ÍA sem er í fimmta til sjötta sæti með 22 stig hvort lið. Árni Snær Ólafsson, markvörður Stjörnuliðsins, gekk í það heilaga í gær og var þar af leiðandi í fríi í þessum leik. Darri Bergmann Gylfason stóð á milli stanganna hjá Stjörnunni í hans stað. Þá var Guðmundur Kristjánsson fjarri góðu gamni vegna meiðsla. Marin Brigic, miðvörður Keflavíkur, tók út leikbann í þessum leik og hinn 17 ára gamli Egill Valur Karlsson var í hjarta varnarinnar í fjarveru hans. Egill Valur stóð sig með stakri prýði. Eiður Orri Ragnarsson var sömuleiðis í leikbanni. Baldur Logi Guðlaugsson kom inn á kantinn fyrir Eið Orra. Besta deild karla Íslenski boltinn Stjarnan Keflavík ÍF
Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 1-0 | Stjarnan heldur áfram að þoka sér upp töfluna Íslenski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 1-0 | Stjarnan heldur áfram að þoka sér upp töfluna Íslenski boltinn