Upp­gjörið: ÍA - Þór 2-0 | Þrír í röð án taps hjá ÍA

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Viktor Jónsson skoraði fyrra mark ÍA.
Viktor Jónsson skoraði fyrra mark ÍA. Vísir/Anton Brink

ÍA vann sterkan 2-0 sigur er liðið tók á móti Þór í 18. umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Þetta var þriðji deildarleikur ÍA í röð án taps.

Skagamenn voru líklegri til afreka í fyrri hálfleik og fengu nokkur ákjósanleg færi til að koma boltanum í netið. Það var svo Viktor Jónsson sem gerði nákvæmlega það þegar hann kom ÍA í forystu með marki af vítapunktinum á 29. mínútu eftir að Fannar Daði Malmquist Stefánsson hafði handleikið knöttinn innan vítateigs.

Annars einkenndist fyrri hálfleikur að mestu leyti af fjölmörgum brotum og mikilli hörku. Þórsarar fengu tvö til þrjú hálffæri fyrir hlé, en heilt yfir voru það Skagamenn sem voru hættulegri og fóru með verðskuldaða forystu inn í hálfleikinn.

Svipaða sögu er að segja af seinni hálfleiknum. Bæði lið spiluðu áfram af mikill hörku og áfram voru það Skagamenn sem voru hættulegri.

Það skilaði sér í því að heimamenn bættu öðru marki við á 55. mínútu þegar Arin Birkir Stefánsson, markvörður Þórs, sló boltann út í teig eftir skot frá Gísla Laxdal. Erik Sandberg þakkaði pent fyrir sig og skilaði boltanum í netið.

Þórsarar áttu nokkra góða spretti eftir því sem leið á leikinn og fengu færi til að í það minnsta minnka muninn. Inn vildi boltinn þó ekki og niðurstaðan varð 2-0 sigur Skagamanna, sem í það minnsta tímabundið lyfta sér upp að hlið Keflvíkinga í fimmta sæti. Þórsarar eru hins vegar aftur fallnir niður í botnsæti deildarinnar.

Atvik leiksins

Vítaspyrnudómurinn í fyrri hálfleik stendur upp úr. Norðanmönnum fannst hann ábyggilega harður, en líklega var hann bara réttur. Boltinn kemur vissulega af stuttu færi í höndina á Fannari Daða, en hann var með hana langt úr frá líkama.

Stjörnur og skúrkar

Viktor Jónsson og Erik Tibias Sandberg skoruðu mörkin sem skiluðu Skagamönnum sigrinum í kvöld. Steinar Þorsteinsson var einnig hættulegur í liði ÍA, sem og Markús Páll Ellertsson, sem hefði þó mátt fara betur með færin sín.

Fannar Daði var óheppin að fá dæmda á sig vítaspyrnu og Aron Birkir Stefánsson hefði átt að gera betur í seinna markinu, en sá boltann seint sem varð til þess að hann sló hann beint út á Erik Sandberg.

Dómarinn

Gunnar Oddur Hafliðason og hans teymi hafði í nægu að snúast í kvöld. Bæði lið spiluðu af mikill hörku og þurfti Gunnar oft að nota flautuna. Til þess er hún svo sem. Það er þó lítið hægt að setja út á störf dómarateymisins í kvöld.

Stemning og umgjörð

Elkem-völlurinn á Akranesi var nokkuð þéttsetinn í sumarblíðunni og áhorfendur létu vel í sér heyra. Þórsarar áttu líka slatta af fulltrúum í stúkunni sem létu langt ferðalag ekki stoppa sig. 

Viktor Jónsson: „Sanngjarn sigur“

Viktor Jónsson hefur farið á kostum í Bestu deildinni í sumar.vísir/Anton

„Mér líður bara vel. Þetta var erfiður leikur og mjög physical, en við gerðum nákvæmlega það sem við ætluðum okkur að gera og töluvert betur en það. Þetta var sanngjarn sigur,“ sagði Viktor Jónsson, framherji ÍA, eftir sigur kvöldsins.

Hann segir það hafa verið mikivægt að ná inn marki í fyrri hálfleik í leik sem þessum, þar sem mikill barningur var á milli liðanna.

„Það er alltaf mikilvægt að skora sem fyrst í fótboltaleikjum. Við vorum búnir að fá einhver færi þarna fyrir og meðal annars ég algjört dauðafæri sem ég bjóst aldrei við að klikka á. En það var gott að fá vítið og ná inn þessu marki. Svo héldum við bara orkustiginu áfram eftir það og ég er bara mjög sáttur.“

Eftir erfiða taphrinu eru Skagamenn nú taplausir í síðustu þremur deildarleikjum. Viktor vill þó ekki meina að liðið sé að toppa á réttum tíma.

„Nei, ekki á réttum tíma. Við hefðum mátt byrja á þessu töluvert fyrr, en það þarf oft eitthvað svona smá eitthvað til að sýna okkur hvernig á að gera þetta. Ég veit ekki afhverju. Við vorum svolítið seinir í gang, en vonandi er þetta byrjað að tikka núna. Við erum með ákveðinn fókus á það hvernig við viljum mæta í leiki og það er búið að ganga vel núna í síðustu þremur.“

Sigurinn lyftir Skagamönnum upp í efri hluta deildarinnar, en Viktor segir að liðið horfi hærra.

„Bara eins hátt og hægt er. Fyrir mitt leyti er þetta gamla góða klisjan um einn leik í einu og sjá svo hverju það skilar okkur, en við stefnum hátt,“ sagði Viktor að lokum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira