Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. ágúst 2026 09:07 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Vísir/Vilhelm Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fór hörðum orðum um suma andstæðinga þjóðaratkvæðagreiðslunnar í erlendu fjölmiðlaviðtali. Hún sakaði þá um að afvegaleiða kjósendur með „kjaftæði“.
Þetta sagði Þorgerður í viðtali við erlenda fjölmiðilinn Politico. Haft er eftir henni að umræddir andstæðingar hafi sagt „alls konar kjaftæði“ á við að með inngöngu í Evrópusambandið yrðu Íslendingar kallaðir í evrópskan her. Eitthvað hefur verið um misupplýsingar og upplýsingaóreiðu í aðdraganda kosninganna. Til að mynda hafa Sjá, sem vilja að niðurstaðan verði jákvæð í kosningunum, birt tvö myndbönd þar sem annars vegar var farið rangt með verðið á mjólk og hins vegar því haldið fram að sænska krónan væri tengd við evruna. Þá greindi Rúv frá því að samtökin Áfram Ísland, sem vilja neikvæða niðurstöðu í kosningunum, hefðu birt myndskeið sem sagði að forseti Íslands myndi missa málskotsréttinn við inngöngu. Myndskeiðinu hefur verið eytt. Bjartsýn þrátt fyrir hræðsluáróður Þorgerður fór yfir stöðu mála í viðtalinu og ítrekaði orð sín úr fyrri viðtölum um að Ísland vilji góðan samning. Tekið er fram að hún var atvinnumaður í handbolta svo íþróttatalið er mikið í greininni. Til að mynda segist Þorgerður ætla að skipa fyrirliða samningateymis í Brussel sem eigi að sameina þjóðina. „Við viljum og við þurfum góðan samning í þágu Íslands,“ er haft eftir Þorgerði. Í greininni er lauslega farið yfir utanríkismálin sem varða Ísland, annars vegar komu rússneskra skipa í efnahagslögsögu Íslands og hótanir Bandaríkjaforseta um að taka yfir Grænland. „Við þurfum að hugsa mjög vel um hvar litlar þjóðir standa og hverjir standa með þeim.“ Þorgerður segist þá bjartsýn, „þrátt fyrir hræðsluáróðurinn“, um að niðurstaða kosninganna verði já. Hún trúi á þjóðina sem muni ekki láta „þetta risastóra tækifæri sem við stöndum frammi fyrir núna“ renna úr greipum sér. Öll stjórnsýslan færi í viðræðurnar Einnig var rætt við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands, og Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins. Ólafur Ragnar segir að inngangan myndi skapa mannaflaþurrð en verði af henni muni Ísland vera fámennasta aðildarríkið. Hann telur að þeir fáu embættismenn Íslands sem yrðu langt frá meginlandi Evrópu myndu eiga erfitt með að láta rödd sína heyrast innan sambandsins. „Hinn gríðarlegi fjöldi, tugþúsundir skrifræðisbákna í Brussel, heill her hagsmunagæslumanna, þetta væri skrifræðisfrumskógur,“ er haft eftir Ólafi. „Við vörðum hundrað árum í að berjast við fjarlæg yfirráð. Það er ekki mjög heillandi að við skyldum verja næstu hundrað árum í að eiga við fjarlæg yfirráð.“ „Við höfum ekki svo marga starfandi í stjórnkerfinu hér á Íslandi,“ er haft eftir Guðrúnu. Hún telur að viðræðurnar myndu gleypa svo stóran hluta af fámennri stjórnsýslunni að allt kerfið myndi vinna að aðildarferlinu næstu tvö árin. Ísland myndi greiða fyrir aðild annarra Í grein Politico er einnig haft eftir ónefndum embættismanni framkvæmdastjórnar ESB. Hann segir að miðað við tímalínu Íslands og Svartfjallalands ættu aðildarríkin að fullgilda umsóknir sínar á sama tíma. Fjárhagsstaða Íslands sé það góð að þjóðin myndi í raun greiða meira til sambandsins en hún fengi til baka í styrki. Meðal ríkjanna sem greiða hvað mest en fá hvað minnst eru Þýskaland og Frakkland. Ef verði af aðild Svartfjallalands yrði það eitt fátækasta aðildarríkið og með því að Ísland og Svartfjallaland komi á sama tíma inn í sambandið telur embættismaðurinn að Ísland myndi í raun greiða fyrir aðild Svartfjallalands. Einnig var rætt við Mörtu Kos, framkvæmdastjóra stækkunarmála sambandsins, sem sagði Ísland vera „sérstakt tilfelli“ vegna aðildar sinnar að EES og Schengen-svæðinu. Sömuleiðis spáði hún því að viðræður gætu tekið aðeins eitt til tvö ár.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Sjá meira