Palmer steinsvaf meðan enska landsliðið spilaði á HM Ágúst Orri Arnarson skrifar 31. júlí 2026 08:28 Cole Palmer gat ekki haldið sér vakandi á HM, enda utan hóps. Getty/Darren Walsh Cole Palmer náði ekki að halda sér vakandi þegar England spilaði gegn Mexíkó í sextán liða úrslitum HM en hann segir þann leik gefa sér mikla hvatningu fyrir komandi tímabil með Chelsea.
Það kom mikið á óvart þegar Tomas Tuchel tilkynnti landsliðshóp Englands fyrir HM og Palmer var hvergi sjáanlegur. Sóknarmaður Chelsea og besti ungi leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni árið 2025 fylgdist samt með félögum sínum á mótinu. „Ég horfði á einhverja leiki. Auðvitað var ég fjarverandi og tímamismunurinn var aðeins erfiður. En ég horfði. Ég náði að vaka fyrir England-Mexíkó [sem hófst klukkan tvö að nóttu til á staðartíma í Bretlandi] en svo sofnaði ég í hálfleik,“ sagði Palmer samkvæmt The Athletic. Sjö vikna sumarfrí Palmer fékk því sumarfrí í fyrsta sinn síðan árið 2023, eftir að hafa spilað á EM 2024 og HM félagsliðsliða sumarið 2025. Hann glímdi við meiðsli á síðasta tímabili en hefur náð góðri hvíld og kveðst klár í slaginn með nýjum þjálfara Chelsea, Xabi Alonso. „Ég átti frábært sumar. Ég fékk svona sjö vikna frí, sem ég hef aldrei fengið áður. Það var frábært. Ég fór erlendis með fjölskyldunni. Ég er ferskur,“ sagði Palmer. „Ég átti í erfiðleikum [með meiðsli á síðasta tímabili]. Fyrstu mánuðina vildi ég bara spila sem fyrst. Sem ég hefði örugglega ekki átt að gera. Ég gat augljóslega ekki spilað eins og ég vil spila. Þetta var erfitt tímabil persónulega en mér líður vel núna. Sjö vikna sumarfrí hjálpaði sannarlega. Ég er klár í slaginn.“ Hitti sérfræðinga í Svíþjóð eða Danmörku Hann glímdi við þrálát meiðsli í nára og íhugaði aðgerð í sumar, hjá annað hvort sænskum eða dönskum sérfræðingi. „Já ég fór til Svíþjóðar eða Danmerkur, annars hvors landsins, að hitta lækni. Hann sagði mér að hafa ekki áhyggjur af aðgerð. Sem var gott.“ Sigar lögfræðingum á Rogers ef hann reynir eitthvað Palmer hefur nú þegar hjálpað Chelsea mikið fyrir komandi tímabil með því að sannfæra vin sinn Morgan Rogers um að koma til félagsins, sem hann gerði vissulega ekki frítt heldur var hann seldur frá Aston Villa fyrir 117 milljónir punda. Þeir eru mjög góðir vinir og hafa báðir notast við sama fagnið þegar þeir skora, að hjúfra sér með höndum eins og þeim væri kalt, en hafa ekki ákveðið hvor fær að fagna svoleiðis í vetur. „Við höfum ekki talað um það. Þetta verður bara svona, hann gerir þetta, ég geri þetta. Ég er búinn að gera fagnið að vörumerki, þannig að ef hann reynir að gera eitthvað sendi ég lögfræðinga heim til hans… Nei nei, við gerum þetta saman. Það vita allir hversu góður leikmaður hann er og hann er einn af mínum bestu vinum. Ég er mjög ánægður með þetta,“ sagði Palmer léttur í bragði.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Íslenski boltinn Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Enski boltinn Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Enski boltinn „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fleiri fréttir Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Sjá meira