Veður

Vara við allhvössum vindi á Snæ­fells­nesi

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Stykkishólmur er á Snæfellsnesi.
Stykkishólmur er á Snæfellsnesi. Vísir/Vilhelm

Íbúar á Suður- og Suðvesturlandi geta búist við meiri rigningu og úrkomu í dag heldur en í gær. Það tekur til að rigna á Austurlandi seinnipartinn. Veðurstofan hefur gefið út viðvörun á Snæfellsnesi.

Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands segir að útlit sé fyrir enn annan daginn þar sem hitinn fer yfir tuttugu gráður á austanverðu landinu. Úrkomusvæðið berst yfir landið síðdegis í dag en hitinn á landinu verður á milli tíu og 22 stig.

Veðurstofan varar við allhvassri sunnanátt á norðanverðu Snæfellsnesi með hviðum allt að 25 metrum á sekúndu. Slíkar aðstæður geta verið varhugaverðar fyrir vegfarendur, sérstaklega ökutæki sem taka á sig mikinn vind.

Á morgun er spáð suðvestan og vestan fimm til þrettán metrum á sekúndu. Yfirleitt þurrt á Suðausturlandi og Austfjörðum en dálítil væta í öðrum landshlutum. 

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:

Suðvestan og vestan 5-13 m/s. Súld með köflum um vestanvert landið, stöku skúrir norðaustanlands, en þurrt suðaustantil. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Austfjörðum.

Á föstudag:

Norðan 3-8 og léttskýjað, en norðvestan 8-13 á norðaustanverðu landinu, skýjað þar og smávegis væta. Hiti 8 til 19 stig, svalast við norðausturströndina.

Á laugardag:

Norðlæg átt 3-10. Bjartviðri um landið sunnan- og vestanvert, en skýjað norðaustanlands. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag:

Breytileg átt og þurrt veður, en dálitlir skúrir síðdegis á Suður- og Vesturlandi. Hiti víða á bilinu 10 til 16 stig.

Á mánudag:

Austan- og norðaustanátt, víða á bilinu 5-10 m/s. Rigning af og til um landið sunnanvert, en skýjað með köflum og yfirleitt þurrt í öðrum landshlutum. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Vesturlandi.

Á þriðjudag:

Norðaustanátt og dálítil rigning með köflum, en þurrt um landið suðvestanvert. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast suðvestantil.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×