Upp­gjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Han­sen sá til þess að Víkingur fer með for­ystu til Ung­verja­lands

Hjörvar Ólafsson skrifar
Niko Hansen fórnaði sér fyrir málstaðinn þegar hann skoraði sigurmark Víkings. 
Niko Hansen fórnaði sér fyrir málstaðinn þegar hann skoraði sigurmark Víkings.  Vísir/Pawel

Víkingur fór með 1-0 sigur af hólmi þegar liðið fékk ungverska liðið Gyori ETO í heimsókn í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta karla á Heimavöll hamingjunnar í Fossvoginum í kvöld.

Gestirnir frá Ungverjalandi mættu með varfærna nálgun inn í þennan og leikskipulagið var þess eðlis að þeir myndu sætta sig við markalaust jafntefli úr þessum elik.

Ögmundur Kristinsson, sem fyllti skarð Arons Snæs Friðrikssonar vegna meiðsla hans, hafði afar lítið að gera á vakt sinni og Gyori ETO náði sjaldan að ógna marki Vikings að einhverju ráði.  

Daníel Hafsteinsson, Gylfi Þór Sigurðsson og Valdimar Þór Ingimundarson í baráttu inni á miðsvæðinu. Vísir/Pawel

Víkingur var ívíð sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og Helgi Guðjónsson og Óskar Borgþórsson voru hættulegir á köntunum. Þeir félagar dældu inn fyrirgjöfum inn á vítateig ungverska liðsins sem samherjar þeirra náðu ekki að færa sér í nyt. 

Gylfi Þór Sigurðsson fékk fyrsta færi Víkings í leiknum en Elías Már Ómarsson komst næst því að brjóta ísinn i þessum leik.

Skömmu áður en Elías Már fékk besta færi fyrri hálfleiksins var hann togaður niður í vítateig Gyori ETO og það hefði hæglega verið hægt að dæma vítaspyrnu í því atviki.

Undir lok fyrri hálfleiks varð Elías Már fyrir hnémeiðslum og lá sárþjáður á vellinum. Framherjinn þurfti að yfirgefa völlinn vegna þeirra meiðsla og Niko Hansen leysti Elías Má af hólmi í fremstu víglínu.

Víkingur byrjaði seinni hálfleikinn og Aron Elís Þrándarson fékk gott færi til þess að koma heimamönnum yfir í upphafi seinni hálfleiks. Helgi Guðjónsson sendi þá hárnákvæma fyrirgjöf á Aron Elís sem tókst ekki að koma boltanum framhjá Samuel Petras sem stóð vaktina vel í marki Gyori ETO. 

Boltinn hrökk svo fyrir fætur Karls Friðleifs Gunnarssonar sem tókst ekki að finna netmöskvana.

Aron Elís Þrándarson fékk gott færi til þess að skora. 

Það var svo Niko Hansen sem skoraði sigurmark Víkings í uppbótartíma seinni hálfleiks og tryggði sanngjarnan sigur heimamanna. Ármann Ingi Finnbogason átti þá fyrirgjöf inn á vítateig Gyori ETO og Óskar átti skalla að marki sem Petras varði.

Niko var hugaður þegar hann réðst á boltann þrátt fyrir að Mark Csinger væri með löpp sína hátt á lofti. Niko setti boltann í netið af stuttu færi og Víkingur fer með 1-0 forystu í seinni leikinn í Ungverjalandi. 

Valdimar Þór Ingimundarson fékk frábært færi til þess að tvöfalda forstkot Víkings á lokaandartökum leiksins en honum brást bogalistin. Fyrr í leiknum hafði Valdimar Þór átt skalla í þverslána. Sigur Víkings var síst of stór í þessum leik. 

Valdimar Þór skallar boltann í þverslána. Vísir/Pawel

Atvik leiksins

Á jákvæðum nótum var það sigurmarkið hjá Niko Hansen sem gladdi augað hjá stuðningsmönnum Víkings. Það setti hins vegar svartan blett á þennan sæta sigur að sjá Elías Má fara sárþjáðan af velli. Óttast er að hann hafi slitið krossband í hné. 

Stjörnur og skúrkar

Sveinn Gísli Þorkelsson kom inn í byrjunarliðið á síðustu stundu og fékk verðugt verkefni að díla við stóran og stæðilegan framherja Gyori ETO. Sveinn Gísli leysti það verkefni með sóma. 

Karl Friðleifur, Helgi og Óskar sköpuðu hvað eftir annað usla í vörn ungverska liðsins með kraftmiklum hlaupum upp kantinn og Valdimar Þór var mikið í boltanum. 

Gylfi Þór Sigurðsson var arkitektinn að mörgum sóknum Víkings og Elías Már var að komast í fín færi áður en hann fór meiddur af velli. Þá skoraði Niko markið sem skildi liðin að. 

Óskar Borgþórsson, Gylfi Þór Sigurðsson og Helgi Guðjónsson ráða ráðum sínum. Vísir/Pawel

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, Frakkarnir Romain Lissorgue,Hicham Zakrani, Thomas Luczynski og Jérémy Stinat höfðu heilt yfir góð tök á þessum leik en ég hefði viljað sjá Lissogue benda á vítapunktinn þegar Elías Már var rifinn niður.

Stemming og umgjörð

Uppselt á þennan leik og góð stemming á þessu fallega Evrópukvöldi í Fossvoginum. Stuðningsmenn Víkings létu vel í sér heyra og hvöttu sína menn rækilega. Umgjörðin til fyrirmyndar hjá Víkginum eins og vanalega.

Uppselt var á leikinn í kvöld og góð stemming í stúkunni. Vísir/Pawel

 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira