Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 5. júlí 2026 15:58 Hugleikur Dagsson grínisti biðlar til þjófanna að skila ránsfengnum. vísir/aðsend/vilhelm Brotist var inn á vinnustofu Karenar Briem og Antons Lyngdal aðfaranótt laugardags og ýmsum tólum og listaverkum stolið þar í skjóli nætur. Hugleikur Dagsson segir að þjófarnir muni skila þýfinu ef einhver heiður er eftir meðal meðlima undirheimanna og hótar að siga Bubba Morthens á þá ef ekki verður af því.
Hugleikur Dagsson, grínisti og eiginmaður Karenar, vekur athygli á þessu á samfélagsmiðlum sínum þar sem hann biðlar til fólks að hjálpa sér að endurheimta ránsfenginn. Hugleikur birti þessa færslu á Instagram í dag.skjáskot Hugleikur segir í samtali við fréttastofu að innbrotið hafi átt sér stað upp úr klukkan þrjú aðfaranótt laugardags við Ægissíðu 7 þar sem fjöldi listamanna eru með aðsetur. „Þau komast þarna inn og eyða alveg dágóðum tíma þarna, um það bil þremur tímum bara í að skoða og síðan í rauninni ferja þau út fullt af dóti. Þetta var helst úr tveimur vinnustofum, konunnar minnar og hjá Antoni Lyngdal, sem er frægur graffari. Þau taka frá Kareni vinnutól sem hún þarf og það er nokkuð erfitt að verða sér úti um þessi tól. Þetta er ekki bara saumavél og borvél heldur líka svona tuftvél sem að í rauninni bara einhver tuftari getur notað og er ekki algengt tól hér á landi.“ Biðlar til undirheima Hann tekur einnig fram að hörðum diskum hafi verið stolið frá Antoni sem innihéldu öll hans listaverk. Þýfið sé því í rauninni ómetanlegt. „Það var bara hans geymslupláss fyrir hans feril. Þetta var eini staðurinn þar sem hann hafði vistað listaverkin hjá sér.“ Hugleikur tekur fram að ekki sé búið að tilkynna málið til lögreglu. Þess í stað biðlar hann til þeirra sem ábyrgð bera á verknaðinum að skila þýfinu. Ef þýfinu verður ekki skilað sér hann sér þann einn nauðbeygða kost að tilkynna óprúttnu aðilana til lögreglu. „Við erum núna með alla anga úti og erum að biðla til undirheima að skila þessu. Enda er öllu því sem var stolið miklu verðmætara í höndum listamannanna heldur en þeirra sem myndu kaupa þetta eða selja þetta.“ Bubbi Morthens bjargaði deginum síðast Eru þið vongóð um að undirheimar hlýði á bæn ykkar og skili þessum varningi? „Það er aldrei að vita. Ég lenti sjálfur í því fyrir svona tíu árum að það var brotist inn til mín og stolið tölvum og græjum og myndavélum. Ég sendi út skilaboð hvar sem ég gat gert það. Það endaði með því að Bubbi Morthens var á Rás 2 og sagði: Nú tala ég til undirheima, skiliði harðadisknum hans Hugleiks. Þannig að þeir skiluðu allavega harðadisknum mínum,“ segir Hugleikur kíminn og gerði í leiðinni eina bestu Bubba eftirhermu sem undirritaður hefur heyrt í háa herrans tíð. Bubbi Morthens er harður í horn að taka.Vísir/Vilhelm Vonandi virkar þetta aftur og þjófarnir hlusti á kall Bubba í krafti þessarar eftirhermu og skila varningnum. „Já, sko ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta,“ segir Hugleikur við hlátursköll fréttamanns. „Ef það er einhver heiður á meðal þjófa þá stelið þið ekki frá listamönnum og ekki frá fólki yfirleitt. Ef það er einhver heiður eftir þá myndu þau skila þessu,“ segir hann og bætir við að þau hafi nokkuð góða hugmynd um hverjir séu að verki. Um góðkunningja lögreglunnar sé að ræða. „Við erum með nöfn. Þannig að við vitum eiginlega hverjir þetta eru. Þannig að þetta verður náttúrulega kært ef þetta skilar sér ekki.“
Reykjavík Menning Lögreglumál Mest lesið „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Innlent Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Erlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Fleiri fréttir Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja Sjá meira