Vonarstjarna Börsunga seld til Frakklands Valur Páll Eiríksson skrifar 30. júní 2026 21:01 Ansu Fati er farinn til Frakklands. Stanislav Vedmid/DeFodi Images via Getty Images Ansu Fati er genginn í raðir Mónakó í Frakklandi frá Barcelona á Spáni. Hann lék vel sem lánsmaður hjá liðinu á síðustu leiktíð og nú hefur félagið fest kaup á honum fyrir ellefu milljónir evra.
Fati spratt fram á sjónarsviðið með Barcelona aðeins 17 ára gamall árið 2019. Hann lék gríðarvel sína fyrstu leiktíð og miklar vonir bundnar við hann. Hann tók til að mynda við treyju númer 10 af Lionel Messi eftir brottför Argentínumannsins sumarið 2021. Vonast var til þess að Fati myndi ekki aðeins taka við treyjunni heldur einnig við keflinu af Messi sem lykilmaður í sóknarleik liðsins. Eftir hans frábæru fyrstu leiktíð lék Fati á næstu tveimur leiktíðum á eftir, milli 2020 og 2022, aðeins 17 deildarleiki sökum meiðsla. Hann var öflugur leiktíðina 2022-23 en síðan þá hafa meiðsladraugar elt áfram hann á röndum. Allt þar til á síðustu leiktíð þegar honum tókst loks að finna fjöl sína sem lánsmaður hjá Mónakó. Fati skoraði ellefu deildarmörk í 25 leikjum fyrir liðið á síðustu leiktíð, eftir misheppnaða lánsdvöl hjá Brighton á Englandi leiktíðina 2023-24 og meiðslahrjáða leiktíð 2024-25 í Barcelonaborg. Fati vonast til að haldast heill í franska smáríkinu og halda uppteknum hætti. Barcelona fær ellefu milljónir evra, tæplega 1,6 milljarð króna, fyrir leikmanninn og hann skrifar undir samning við Mónakó til sumarsins 2030.
Franski boltinn Spænski boltinn FC Barcelona Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Fleiri fréttir Jamie Vardy mættur til Burnley Diljá Ýr bikarmeistari með Brann Valencia - Barcelona | Hörkuleikur á Mestalla FH - Þór/KA | Kemst FH aftur á toppinn? Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast KA - Breiðablik | KA þarf að spyrna af botninum Stjarnan - ÍBV | Eyjamenn kíkja í Garðabæinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Hólmbert bjargaði stigi Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Sjá meira