86 prósent horfðu ekki á úrslit Eurovision Áróra L Davíðsdóttir skrifar 22. júní 2026 17:51 Úrslitakvöld Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva var haldið í Vín í Austurríki í sjötugasta skiptið í maí. Getty/Christian Bruna Rúmlega 86 prósent landsmanna horfðu ekki á úrslitakvöld Eurovision sem haldið var í Vín í Austurríki samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. Rúmlega 27 prósent sögðust sakna þátttöku Íslands í keppninni en 73 prósent ekki.
Lítill munur var á kynjunum eftir áhorfi en 12,9 prósent karla sem svöruðu könnuninni sögðust hafa horft á úrslitakvöld keppninnar en 13,6 prósent kvenna. Áhorf á úrslitakvöldið var mest hjá aldurshópnum 50–59 ára, 17,6 prósent, en könnunin var lögð fyrir 18 ára og eldri. Líklegastir til þess að horfa á úrslitakvöldið voru þeir sem kjósa myndu Flokk fólksins, 19,7 prósent, og Sjálfstæðisflokkinn, 18,1 prósent. Þeir sem kjósa myndu Pírata og Sósíalistaflokkinn voru hins vegar ólíklegastir samkvæmt könnuninni en 5,4 prósent þeirra sem myndu kjósa Pírata og 4,1 prósent þeirra sem myndu kjósa Sósíalistaflokkinn sögðust hafa horft á úrslitakvöldið. Sakna mismikið þáttöku Íslands Eins og frægt er tók Ísland ekki þátt í Eurovision í ár. Nokkur lönd drógu sig úr keppni eftir að fulltrúar evrópskra sjónvarpsstöðva samþykktu að leyfa Ísraelum að taka þátt í Eurovision í ár. Þeirra á meðal voru Hollendingar, Spánverjar, Írar og Slóvenar. Sömuleiðis söknuðu þeir sem kjósa myndu Sjálfstæðisflokkinn mest þátttöku Íslands í Eurovision, en 46 prósent þeirra svöruðu því játandi að hafa saknað þess að Ísland tæki þátt í ár. 38 prósent þeirra sem myndu kjósa Framsóknarflokkinn og rúmlega 36 prósent þeirra sem myndu kjósa Miðflokkinn svöruðu þeirri spurningu játandi. Enginn sem kysi Pírata ef gengið væri til kosninga í dag sagðist hafa saknað þátttöku Íslands í keppninni.
Eurovision Eurovision 2026 Ríkisútvarpið Tónlist Skoðanakannanir Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir Fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Sjá meira