Golf

Wyndham Clark er sigur­vegari U.S. Open

Aron Guðmundsson skrifar
Wyndham Clark hefur nú í tvígang unnið U.S. Open.
Wyndham Clark hefur nú í tvígang unnið U.S. Open. Vísir/Getty

Bandaríkjamaðurinn Wyndham Clark er sigurvegari U.S. Open risamótsins í golfi árið 2026. Þetta er í annað sinn á ferlinum sem hann stendur uppi sem sigurvegari mótsins. 

Lokadagur mótsins á Shinnecock Hill vellinum bauð lengi vel upp á mun meiri spennu heldur en leit út fyrir að yrði ríkjandi fyrir keppni dagsins.

Wyndham Clark, sem vann mótið árið 2023, hafði verið í forystuni nær allt mótið og kom inn í daginn með sex högga forystu.

Fuglaþurrð og fjórir skollar á fyrri níu holum Shinnecock Hills vallarins í dag settu hann hins vegar undir pressu. 

Forysta hans skrapp saman niður í eitt högg þvi að á sama tíma og skollarnir fóru að herja á hann var Sam Burns í góðu stuði. Burns náði í fjóra fugla á fyrstu níu holunum og fékk á móti aðeins einn skolla. 

Hann glutraði hins vegar niður góðu tækifæri á fugli á síðustu holunni sem hefði jafnað metin og sett Clark undir enn meiri pressu á hans síðustu holum en allt kom fyrir ekki.

Burns fór inn í hús einu höggi á eftir Clark og vonaðist eftir því að hann myndi gera mistök. 

Wyndham Clark setti niður frábært langt pútt fyrir fugli á sextándu holunni og kom forystu sinni í tvö högg. Virtist vera að klára þetta. En óvæntur skolli á sautjándu holu sá til þess að forysta fyrrverandi meistarans var aðeins eitt högg fyrir lokaholuna. 

Par á henni myndi nægja til sigurs. Clark kom sér í þá stöðu á átjándu holunni að geta tvípúttað fyrir sigri og það gerði hann einmitt.

Með pari á átjándu tryggði hann sér sigur á U.S. Open risamótinu í golfi í annað sinn á ferlinum. Verðskuldaður sigur því heilt yfir mótið spilaði hann beta golfið. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×