Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Smári Jökull Jónsson skrifar 21. júní 2026 14:01 Biðin hefur neikvæð áhrif á börn. Mikil aukning hefur orðið í tilvísunum til Geðheilsumiðstöðvar barna og er biðtími eftir ADHD greiningu að meðaltali eitt til tvö ár. Forstöðumaður Geðheilsumiðstöðvar segir biðtímann geta haft áhrif á vellíðan og námsárangur barna.
Embætti landlæknis birti á dögunum fréttabréf þar sem fram koma upplýsingar um geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn. „Það hefur orðið mikil aukning á tilvísunum til Geðheilsumiðstöðvar barna alveg frá árinu 2022 og það er í samræmi við alþjóðlega þróun. Við sjáum þessa þróun á Norðurlöndum, sjáum hana líka í Bertlandi,“ segir Linda Kristmundsdóttir forstöðumaður Geðheilbrigðismiðstöðvar barna. „Einhverjir sem bíða skemur og einhverjir lengur“ Börnum á biðlista eftir þjónustu BUGL hefur fækkað og Linda segir að hluta af fjölgun tilvísana til Geðheilsumiðstöðvar megi rekja til tilfærslu á þjónustu. Í lok síðasta árs voru rúmlega 2600 börn á biðlista eftir þjónustu hjá Geðheilsumiðstöð barna og hafði meirihluti þeirra beðið lengur en eitt ár. „Við erum með forgangslista og við reynum alltaf að meta alvarleika einkenna. Þannig að það eru einhverjir sem bíða skemur og aðrir bíða lengur. En að meðaltali þá er biðtíminn eftir ADHD-greiningu svona eitt til tvö ár.“ Fólk geti leitað til sveitarfélaga eftir aðstoð Geðheilsumiðstöð er eina opinbera stofnunin sem greinir ADHD. Börn þurfa oft á tíðum fyrst að bíða eftir frumgreiningu og síðan aftur til að komast að hjá Geðheilsumiðstöð. „Það er ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan barna og námsárangur til dæmis, þannig að við erum ekki ánægð með þessa stðu. En það er mikil vinna í gangi í heilbrigðisráðuneytinu að skoða þessa stöðu og það hafa heilmiklar úrbætur verið gerðar,“ segir Linda. Til dæmis hafi verið bætt við sérfræðingum og sett á fót lyfjafræðsla fyrir foreldra sem getur nýst á meðan beðið er. „Við leggjum áherslu á að þegar við fáum tilvísun að ábyrgð á máli barnsins er á höndum tilvísanda þar til það kemst að hjá okkur. Þannig að fólk á að geta leitað til þjónustumiðstöðva og sveitarfélaga eftir aðstoð,“ segir Linda að lokum.
Börn og uppeldi Geðheilbrigði Einhverfa ADHD Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira