Skúrir víða um land og lægð nálgast austurströnd Lovísa Arnardóttir skrifar 10. júní 2026 07:15 Það verða skúrir víða um land í dag. Vísir/Vilhelm Í dag er spáð fremur hægri austlægri eða breytilegri átt og stöku skúrum víða um land, en strekkingi norðvestanlands þegar líða fer á daginn. Í veðurspá kemur fram að lægð norðaustur af landinu nálgist síðan austurströndina síðdegis og taki þá að hvessa með rigningu eða súld norðaustan- og austanlands þegar skilin ganga á land.
Í spá kemur einnig fram að einhver úrkoma verði norðanlands þegar skilin færa sig norður fyrir landið í nótt og í fyrramálið, en annars verði yfirleitt bjart með köflum, stöku skúrir og fremur hægur vindur fyrri hluta morgundagsins. Hiti verður á bilinu 8 til 17 stig, en síðdegis þykkni upp með súld austanlands og kólni þá heldur þar. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að aðfaranótt föstudags fái lægð, sem þá er stödd austur af landinu, aukinn kraft og þá sé útlit fyrir allhvassar og norðlægar áttir á Austfjörðum, austan Öræfa, og einnig norðvestantil fram á kvöld. Búast megi við áframhaldandi súld austanlands samhliða þessu, en úrkomulítið verði vestanlands með hita að 20 stigum. Að lokum kemur fram í hugleiðingum að útlit sé fyrir hægar breytilegar áttir og úrkomulítið veður á laugardag og sunnudag. Víðast hvar er greiðfært um landið en á vef Vegagerðar kemur fram að unnið sé að vegaframkvæmdum víða um land og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar á vinnusvæðum. Nánar á vef Vegagerðar og um veður á vef Veðurstofu. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðaustlæg eða breytileg átt 3-10 m/s, en bætir í vind norðvestantil síðdegis. Bjart með köflum og víða dálítil væta, en stöku skúrir síðdegis og þykknar þá upp norðaustantil með súld undir kvöld. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast á Vesturlandi. Á föstudag: Norðlæg átt 5-13. Súld eða dálítil rigning og hiti 6 til 12 stig, en úrkomuminna vestanlands með hita að 18 stigum. Á laugardag: Hæg norðlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en súld norðaustantil og stöku síðdegisskúrir á Suðurlandi. Hiti breytist lítið. Á sunnudag: Hæg breytileg átt, skýjað með köflum og líkur á stöku skúrum, en bjart að mestu norðan jökla. Hiti breytist lítið, en hlýnar heldur norðaustanlands. Á mánudag: Útlit fyrir fremur hæga norðlæga eða breytilega átt og vætu með köflum. Kólnar heldur. Á þriðjudag: Útlit fyrir austlæga eða breytilega átt og rigningu með köflum, en úrkomulítið norðaustanlands.
Veður Færð á vegum Mest lesið Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Erlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Sólin gæti litið við í borginni um helgina Gæti kólnað fyrir austan þegar líður á vikuna Hæð langt suður í hafi dælir hlýju lofti til landsins Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Bjart austantil en skýjað og svalt við vesturströndina Líkur á stöku skúrum fyrir austan Viðvaranir vegna hvassviðris Rigning og hvasst öðrum megin en sól og bjart hinum megin Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Verður íslenska hitametið slegið á morgun? Ekki að vænta mikilla breytinga í veðri Mest 27 gráður en Reykvíkingar þurfa að bíða Væta vestantil en hlýjast fyrir austan Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Gular veðurviðvaranir í kortunum Bjart og allt að tuttugu og fimm stig á Austurlandi Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Dregur úr vætu síðdegis og hiti að átján stigum Hitatölurnar hækka fyrir austan Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Víða allhvass vindur og úrkomubakki nálgast Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Allt að sautján stiga hiti Bjart og hlýtt sunnan heiða Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Hlýjast fyrir austan Kaldi eða strekkingur á suðvestan- og vestanverðu landinu Væta með stífri norðaustanátt Stíf norðanátt með rigningu víða um land Allvíða skúrir og lægð nálgast Sjá meira