Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 8. júní 2026 12:09 Í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í morgun var tekist á um öryggishagsmuni Íslendinga. vísir Utanríkisráðherra fullyrðir að möguleg innganga Íslands í Evrópusambandið hefði engin áhrif á varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna. Ísland væri skilgreint sem hluti af heimavarnasvæði Bandaríkjanna og væri grunnurinn að varnarsamstarfi ríkjanna tveggja.
Stefán Vagn Stefánsson þingflokksformaður Framsóknar vísaði í grein Gunnars Pálssonar, fyrrverandi sendiherra, í óundirbúnum fyrirspurnartíma í dag þegar hann sagði að tvíhliða varnarsamningur Íslands við Bandaríkin ætti sér enga hliðstæðu meðal annarra NATO ríkja og vildi fá að vita hvort við værum að tefla samningnum í tvísýnu með ESB viðræðum. „Hefur utanríkisráðuneytið aflað formlegrar afstöðu bandarískra stjórnvalda um hvort þessi sérstaða Íslands myndi haldast óbreytt ef Ísland gengi í Evrópusambandið?“ spurði Stefán Vagn Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra en hún vísaði í svari sínu til fullveldis þjóða. „Mér þætti það skrýtið að Íslendingar ættu að spyrja aðrar þjóðir heimildar um það hvað við eigum að gera í okkar utanríkismálum, svo lengi sem við erum að taka ákvarðanir út frá hagsmunum landsins, og það tel ég okkur einmitt vera að gera. Það er ástæðan fyrir því að við erum að flýta meðal annars þjóðaratkvæðagreiðslunni, það er einfaldlega út af því að það er margt búið að breytast í heiminum á síðasta hálfa árinu.“ Spurði hvort samtal hefði átt sér stað við Bandaríkin Stefán mætti þá í pontu öðru sinni og sagðist ekki hafa verið að spyrja ráðherra út í heimild annarra þjóða fyrir inngöngu Íslands í ESB. „Það sem ég var að spyrja hæstvirtan utanríkisráðherra að var hvort það hefði verið samtal þar á milli og hvort varnarsamningurinn við Bandaríkin myndi halda sér ef Ísland gengi í Evrópusambandið og ef stjórnvöld í Bandaríkjunum myndu komast að þeirri niðurstöðu að það væri ekki lengur eðlilegt að þau bæru sérstaka ábyrgð á vörnum eins ESB-ríkis?“ Þorgerður svaraði því til að ESB-innganga hefði engin áhrif á varnarsamninginn. Öryggishagsmunir Íslands og Bandaríkjanna væru samofnir. „Ísland er skilgreint sem hluti af heimavarnarsvæði Bandaríkjanna og þetta er grunnurinn að okkar góða samstarfi í meira en 75 ár við Bandaríkin. Aðild að Evrópusambandinu mun engin áhrif hafa á það,“ sagði Þorgerður Katrín.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Alþingi Framsóknarflokkurinn Viðreisn Bandaríkin Utanríkismál Tengdar fréttir Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins heitir því að ráðast í aðgerðir eftir að ellefu Schengen-ríki, þar á meðal Ísland, kröfðust þess að Evrópusambandsríki hertu á útgáfu vegabréfsáritana til rússneskra ríkisborgara. Þar gagnrýndu þau óbeint Frakka, Ítali og Spánverja sem enn taka á móti hundruðum þúsunda rússneskra ferðamanna á ári. 6. júní 2026 23:46 Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Finnlandsforseti vill stækka Evrópusambandið allverulega og vill helst fjölga aðildarríkjum úr 27 í 40. Sambandið verði að „hugsa stórt“ og nefnir hann Ísland, Noreg og jafnvel Kanada í því samhengi. 5. júní 2026 18:36 Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir EES-samninginn Íslendingum gríðarlega dýrmætan en nú séu aðrir tímar en voru árið 1994. 3. júní 2026 16:58 Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira
Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins heitir því að ráðast í aðgerðir eftir að ellefu Schengen-ríki, þar á meðal Ísland, kröfðust þess að Evrópusambandsríki hertu á útgáfu vegabréfsáritana til rússneskra ríkisborgara. Þar gagnrýndu þau óbeint Frakka, Ítali og Spánverja sem enn taka á móti hundruðum þúsunda rússneskra ferðamanna á ári. 6. júní 2026 23:46
Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Finnlandsforseti vill stækka Evrópusambandið allverulega og vill helst fjölga aðildarríkjum úr 27 í 40. Sambandið verði að „hugsa stórt“ og nefnir hann Ísland, Noreg og jafnvel Kanada í því samhengi. 5. júní 2026 18:36
Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir EES-samninginn Íslendingum gríðarlega dýrmætan en nú séu aðrir tímar en voru árið 1994. 3. júní 2026 16:58