Jónmundur bæjarlistamaður Garðabæjar 2026 Atli Ísleifsson skrifar 29. maí 2026 09:57 Jónmundur Grétarsson. Sunna Ben Jónmundur Grétarsson leikari var útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar við hátíðlega athöfn í Sveinatungu á Garðatorgi í gær.
Í tilkynningu frá Garðabæ segir að við sama tilefni hafi arkitektinn Sigurður Hallgrímsson verið heiðraður fyrir ómetanlegt framlag til byggingarlistar. „Bæjarlistamaðurinn Jónmundur hefur leikið frá því hann var ungur að árum en hann hefur komið fram í fjölmörgum leikritum, sjónvarpsþáttum og kvikmyndum, bæði hérlendis og erlendis. Að undanförnu hefur hann leikið í Bústaðnum í Tjarnarbíói og í Gæðablóði í Þjóðleikhúsinu en hann er einn höfunda Gæðablóðs. Í verkinu deila þrír litaðir Íslendingar reynslu sinni af því að alast upp á Íslandi. Jónmundur hefur verið mikil fyrirmynd í því að tala um fordóma og nýtt leiklistina til að vekja fólk til umhugsunar um hinar ýmsu birtingamyndir þeirra. Sigurður Hallgrímsson arkitekt hefur teiknað um 150 einbýlishús í Garðabæ og setur þannig mark sitt á bæinn með glæsilegum og stílhreinum arkitektúr. Sigurður teiknaði einnig Hof á Akureyri í félagi við son sinn, Hallgrím Sigurðsson. Þá eru höfuðstöðvar Icelandair meðal verka Sigurðar. Sigurður hefur átt farsælt samstarf við eiginkonu sína, Guðbjörgu Magnúsdóttur innanhússarkitekt. Garðabær þakkar Sigurði fyrir ómetanlegt starf,“ segir í tilkynningunni.
Menning Garðabær Mest lesið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira