Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Samúel Karl Ólason skrifar 22. maí 2026 14:38 Frá fundinum í Svíþjóð í dag. Þar var meðal annars verið að leggja grunninn að leiðtogafundi NATO í Tyrklandi í sumar. AP/Julia Demaree Nikhinson Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að bandarískum hermönnum í Evrópu muni fækka. Um það sé skilningur meðal aðildarríkja NATO en framkvæmdastjóri bandalagsins segir að hin ríka Evrópa hafi reitt sig of mikið á Bandaríkin í varnarmálum og að það muni breytast á næstu árum.
Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir að utanríkisráðherrafundur bandalagsins í Svíþjóð í dag hafi verið uppbyggilegur. Hann hafi verið gífurlega mikilvægur hvað varðar undirbúning leiðtogafundarins sem haldinn verður í Tyrklandi í sumar. Stirðleikar í sambandi Bandaríkjanna við flest önnur aðildarríki NATO hafa sett strik í reikninginn í samstarfinu og má þá helst nefna hótanir Trump-liða í garð Danmerkur og Grænlands og stríð Bandaríkjanna gegn Íran, sem flestir ráðamenn í Evrópu hafa neitað að styðja. Rutte sagði umræðuna á fundinum þó hafa snúist um að styrkja NATO og aðildarríkin væru staðráðin í að tryggja að NATO væri tilbúið til að takast á við allar ógnir. Auka þyrfti hergagnaframleiðslu og fjárfestingu í varnarmálum. Það væri einnig nauðsynlegt hvað varðar stuðninginn við Úkraínumenn. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, mun sækja leiðtogafundinn í sumar. Concluding a constructive meeting of #NATO Foreign Ministers. Our discussions here have been essential in preparing for the #NATOsummit just 6 weeks from now The task ahead is clear: turn Allied commitments into concrete results - increased investment, industrial production and… pic.twitter.com/JYqpc5mtmC— Mark Rutte (@SecGenNATO) May 22, 2026 Fyrir fundinn vildu utanríkisráðherrar NATO fá frekari upplýsingar frá Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um flutning bandarískra hermanna í Evrópu. Skömmu fyrir fundinn tilkynnti Trump óvænt að hann myndi senda fimm þúsund hermenn til Póllands, en áður hafði staðið til að hætta við þá hermannaflutninga. Sjá einnig: Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Auk þess ætla Bandaríkjamenn að kalla fimm þúsund hermenn heim frá Þýskalandi en Trump hefur verið mjög gagnrýninn á Friedrich Merz, kanslara Þýskalands, að undanförnu. Trump hefur verið mjög gagnrýninn á að sum ríki NATO hafi ekki leyft Bandaríkjamönnum að nota herstöðvar í þeim löndum í tengslum við stríðið gegn Íran. Á blaðamannafundi sagði Rutte að sér þætti skrítið hve mikið hin ríka Evrópa reiddi sig á Bandaríkin, þegar kemur að varnarmálum. Evrópa hefði reitt sig of mikið á Bandaríkin og það myndi breytast á næstu árum. NATO's Rutte:I always felt that it is strange that a very rich part of the world — Europe, maybe the richest part of the world — needs the support of another part of the world to defend itself against the Russians to the extent that it has now, where we are overly reliant on… pic.twitter.com/l9EJNMk09K— Clash Report (@clashreport) May 22, 2026 Eftir fundinn sagði Rubio að flutningur bandarískra hermanna væri ekki til þess að refsa ríkjum Evrópu. Það þyrfti stanslaust að skoða hreyfingar hermanna. Þá sagði Rubio að með því að vera með hermenn í herstöðvum í Evrópu væru Bandaríkjamenn að tryggja sér aðstöðu til að nýta í átökum. Ef sú trygging væri ekki til staðar væri eðlilegt að velta vöngum yfir veru hermanna í þeim ríkjum sem um ræðir. Marco Rubio on NATO:These bases in the region provided us logistical options that we wouldn’t otherwise have, and when some of their bases are denied to you during a conflict, you question whether that value is still there.That’s gonna have to be discussed. pic.twitter.com/GW1G4pO7qp— Clash Report (@clashreport) May 22, 2026 Þegar kemur að fjölda hermanna Bandaríkjanna í Evrópu sagði Rubio að ráðamenn í Evrópu áttu sig á því að breytingar væru í vændum. Ríkisstjórn Bandaríkjanna væri að fara yfir þarfir ríkisins í þeim málum. „Ég held það sé víður skilningur á því að munu á endanum vera færri bandarískir hermenn í Evrópu en þeir hafa verið í gegnum árin af ýmsum ástæðum.“ Um áttatíu þúsund bandarískir hermenn eru nú í Evrópu. Bandaríkin eru skuldbundin til að hafa að minnsta kosti 76 þúsund hermenn í heimsálfunni auk hergagna. Til þess að fara undir það þurfa Bandaríkjamenn að ákveða, í samráði við bandamenn þeirra í NATO að ekki sé þörf á þessum hermönnum og að brottflutningur þeirra sé í þágu Bandaríkjanna.
NATO Utanríkismál Bandaríkin Donald Trump Hernaður Svíþjóð Pólland Þýskaland Innrás Rússa í Úkraínu Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Fleiri fréttir Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Sjá meira