ÍA – ÍBV 2-2 | Frá­bær endur­koma Eyja­manna í jafn­tefli á Skaganum

Gunnar Egill Daníelsson skrifar
Gísli Eyjólfsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir ÍA en það dugði skammt. 
Gísli Eyjólfsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir ÍA en það dugði skammt.  vísir/Guðmundur

ÍA og ÍBV skildu jöfn, 2-2, í fyrsta leik 8. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta á Elkem vellinum á Akranesi í kvöld. ÍA fer upp í sjöunda sæti og er þar með níu stig og ÍBV er áfram á botninum, nú með tvö stig eins og FH sæti ofar.

Fyrri hálfleikur var ansi hreint fjörugur þó mörkin hafi látið á sér standa. Bæði lið fengu nokkur mjög góð færi til þess að brjóta ísinn auk þess að fá bæði nokkur hálffæri.

Böðvar Böðvarsson fyrirliði ÍA fór meiddur af velli þegar fyrri hálfleikur var rúmlega hálfnaður. Hélt hann um hnéð á sér og er vonandi að ekki sé um alvarleg meiðsli að ræða.

Gíslarnir skoruðu glæsimörk 

ÍA hóf síðari hálfleikinn af fítonskrafti og braut ísinn eftir eftir aðeins tveggja mínútna leik í honum. Guðmundur Þórarinsson tók þá hornspyrnu frá hægri, hún var skölluð frá og Sesar Örn Harðarson reyndi að skalla boltann lengra frá rétt utan teigs.

Það tókst ekki betur til en svo að Gísli Laxdal Unnarsson beið átekta, tók stórbrotið skot á lofti með vinstri fæti hægra megin við vítateiginn sem sveif í boga nærri samskeytunum nær, óverjandi fyrir Ara í Haraldsstovu Petersen í marki ÍBV.

Aðeins fjórum mínútum síðar, á 51. mínútu, tvöfaldaði nafni hans Gísli Eyjólfsson forystu ÍA með sínu fyrsta deildarmarki. ÍA geystist þá í skyndisókn, Haukur Andri Haraldsson lagði boltann til hliðar á Gísla sem kom aðvífandi og þrumaði boltanum í netið með glæsilegu skoti við D-bogann.

Halldór Jón skoraði og lagði upp mark í endurkomu ÍBV 

Um miðjan síðari hálfleik fékk ÍBV aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig hægra megin. Vicente Valor tók skotið sem Jón Sölvi Símonarson varði út í teiginn. Varamaðurinn Halldór Jón Sigurður Þórðarson beið þar átekta og lagði boltann auðveldlega í netið af stuttu færi.

Á 78. mínútu jafnaði ÍBV svo metin. Varamaðurinn Arnar Breki Gunnarsson átti þá fyrirgjöf af hægri kantinum sem Halldór Jón Sigurður potaði áfram á Róbert Elís Hlynsson sem lagði boltann í netið af stuttu færi með vinstri fótar skoti.

Staðan þá orðin 2-2 og reyndust það lokatölur í bráðskemmtilegum leik þar sem stíflan brast svo um munaði í síðari hálfleik.

Atvik leiksins

Helgi Mikael Jónasson lenti í samstuði við Alex Frey Hilmarsson, fyrirliða ÍBV, í fyrri hálfleik og lá óvígur eftir um stund. Eftir að hafa hlotið aðhlynningu hjá Mario Majic, sjúkraþjálfara ÍA, í fáeinar mínútur var hann klár í slaginn að nýju og dæmdi restina af leiknum.

Stjörnur og skúrkar

Gísli Laxdal Unnarsson hafði góðar gætur á Sesari Erni Harðarsyni og skoraði í þokkabót stórglæsilegt mark. Nafni hans Gísli Eyjólfsson vann sig vel inn í leikinn og skoraði sömuleiðis

Halldór Jón Sigurður Þórðarson átti frábæra innkomu í liði ÍBV þar sem hann skoraði fyrra markið og lagði upp það síðara.

Erfitt er að finna einhvern skúrk, kannski helst hægt að nefna varnarlínu ÍA í jöfnunarmarki ÍBV þar sem menn sváfu á verðinum.

Dómarinn

Helgi Mikael dæmdi leikinn fantavel. Hann var spar á spjöldin og leyfði leiknum að fljóta sem hjálpaði tvímælalaust við að gera hann eins skemmtilegan og raunin varð.

Stemning og umgjörð

Það var prýðilega mætt í blíðunni á Skaganum og töluverður fjöldi kominn um klukkutíma fyrir leik til að fá sér dýrindis hamborgara og kaldan drykk með. Nýja höllin er glæsileg og félagssvæðið allt hið skemmtilegasta. Stuðningsmenn ÍA létu vel í sér heyra í stúkunni, sem er vissulega komin til ára sinna en það er alltaf óumflýjanlegur sjarmi yfir henni, að ég tali nú ekki um að koma sér þægilega fyrir í grasbrekkunni.

Viðtöl

Fannst skiptingarnar breyta leiknum

Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, var stoltur af lærisveinum sínum eftir að þeir létu ekki deigan síga og náðu í 2-2 jafntefli gegn ÍA í Bestu deildinni í fótbolta á Elkem vellinum á Akranesi í kvöld. ÍA komst í 2-0 í leiknum.

„Ég verð að gefa strákunum mínum kredit, þeir sýndu karakter en ég vissi að þeir byggju yfir honum því ég hef unnið með þeim um skeið. Planið er að gefast aldrei og afsprengi þessa hugarfars er það að við gátum jafnað og unnið okkur inn að mínu mati verðskuldað stig,“ sagði Linta við Sýn Sport eftir leik.

Skiptingar hans í síðari hálfleik hjálpuðu mikið til þar sem varamaðurinn Halldór Jón Sigurður Þórðarson skoraði fyrra mark ÍBV og lagði upp það síðara eftir góða fyrirgjöf annars varamanns, Arnars Breka Gunnarssonar.

Vona að leikmennirnir finni fyrir létti

„Já, mér fannst skiptingarnar breyta leiknum. Þessi leikmenn komu með nýja orku. Í svona líkamlegum leik eins og þessi var þarftu á nýrri orku að halda, ferska fætur, og það fengum við frá strákunum sem komu inn á,“ sagði Linta.

Þrátt fyrir að ÍBV sé enn á botninum með aðeins tvö stig telur hann að endurkoma Eyjamann í kvöld komi til með að gefa þeim byr undir báða vængi í næstu leikjum.

„Ég held að þessi úrslit munu gera það. Ég vona að leikmennirnir finni fyrir smá létti því þeir lögðu hart að sér og æfðu af krafti. Þeir hafa lagt allt í leikina og ekki fengið mikið úr sumum þeirra. Ég tel þá hafa verðskuldað að hafa fengið fleiri stig í sumum af fyrri leikjum okkar,“ sagði Aleksandar Linta við Sýn Sport.

Fannst við geta stolið þessu

Halldór Jón Sigurður Þórðarson átti mjög góða innkomu í lið ÍBV þegar hann skoraði og lagði upp í 2-2 jafntefli gegn ÍA í Bestu deildinni í fótbolta á Elkem vellinum á Akranesi í kvöld.

„Fyrri hálfleikurinn var frekar jafn. Síðan komum við ekki alveg nógu vel gíraðir í seinni hálfleikinn. Þeir komust í 2-0 og mér fannst þeir slaka smá á. Við gerðum breytingar og þá breyttist leikurinn og við komum okkur aftur inn í hann,“ sagði Halldór við Sýn Sport eftir leikinn.

Var Aleksandar Linta þjálfari með ákveðin skilaboð til ykkar varamannanna?

„Bara þetta klassíska, að koma inn á og reyna að breyta leiknum. Ég held að við höfum alveg skilað því,“ sagði hann. Halldór kom inn á sem varamaður á 59. mínútu, minnkaði muninn á 68. mínútu og náði smá snertingu áður en Róbert Elís Hlynsson kom boltanum í netið.

Ánægður með eigin innkomu

„Ég náði snertingunni og tek stoðsendinguna! Ég er ánægður með innkomu mína en mér fannst við alveg hafa getað stolið þessu líka. Maður vill náttúrlega gera meira en maður verður bara að virða stigið á útivelli.

ÍA er með góðan hóp og þetta er erfiður útivöllur. Þetta var fyrsti grasleikurinn og maður verður bara að virða þetta,“ sagði hann.

Spurður hvort að þessi endurkoma kæmi til með að hjálpa botnliði ÍBV í framhaldinu sagði Halldór að endingu:

„Já, ég vona það allavega. Við verðum bara að sjá en ég býst ekki við öðru. Þetta var karakter hjá okkur að koma til baka.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira