Þór/KA - Breiða­blik 1-3 | Blikar styrktu stöðu sína á toppnum

Árni Gísli Magnússon skrifar
Blikar vilja halda áfram góðu gengi
Blikar vilja halda áfram góðu gengi Vilhelm Gunnarsson/Vísir

Þór/KA og Breiðablik mættust í fimmtu umferð Bestu deildar kvenna á VÍS vellinum á Akureyri nú í kvöld. Blikastúlkur voru betri aðilinn og fóru með öruggan 3-1 sigur af hólmi og eru enn ósigraðar í deildinni. Þór/KA er aðeins með tvö stig og leita enn sigurs.

Heimakonur byrjuðu að krafti og fengu tvö fín færi á upphafsmínútum leiksins en María Dögg Jóhannsdóttir og Margrét Árnadóttir settu báðar boltann framhjá.

Eftir um stundarfjórðung voru Blikastúlkur komnar með betri stjórn á leiknum og fékk Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir tvö frábær færi á sömu mínútunni en fyrra skotið fór í stöngina og Allesandra Augur gerði frábærlega í að verja það seinna.

Leikurinn var fjörugur á þessum tímapunkti og María Dögg geystist upp hægri kantinn strax eftir færið hjá Blikum og setti boltann inn fyrir á Margréti en Herdís Halla Guðbjartsdóttir varði vel.

Blikar voru betri aðilinn þar sem eftir lifði hálfleiks og fékk Agla María Albertsdóttir til að mynda tvö góð færi sem hún náði ekki að nýta.

Allesandra var að eiga frábæran leik í marki Þór/KA og bjargaði í ófá skipti marki.

Staðan markalaus í hálfleik.

Heimakonur fengu fyrsta færi síðari hálfleiks en Amalía Árnadóttir setti boltann framhjá.

Á 53. mínútu var Hrafnhildur Ása komin ein í gegn og var að fara hleypa af skoti þegar Agnes Birta Stefánsdóttir fór aftan í hana og vítaspyrna dæmd. Agla María steig á punktinn og skoraði af öryggi.

Hrafnhildur Ása var svo allt í öllu eiginlega allan hálfleikinn og áttu varnarmenn Þór/KA í tómu basli með hana sem og Edith Kristínu Kristjánsdóttur.

Hrafnhildur fékk tvö góð færi áður en hún kom boltanum svo í netið á 67. mínútu eftir mistök í uppspili Þór/KA.

Aðeins örfáum andartökum síðari bætti svo Edith Kristín við þriðja markinu eftir stoðsendingu frá Öglu Maríu og gerði endanlega út um leikinn.

Þór/KA skoraði sárabótarmark í blálok leiksins. Varmaðurinn Aníta Ingvarsdóttir gerði þá frábærlega þegar hún tók við boltanum á miðjunni, snéri af sér tvo varnarmenn og sendi langan bolta yfir á annan varamann, Huldu Ósk Jóndóttur, sem kom inn á völlinn og kláraði laglega með skoti í fjærhornið.

Lokatölur 3-1 fyrir Breiðablik.

Atvik leiksins

Þriðja mark Blika gerir endanlega út um leikinn. Góð sending frá Öglu Maríu og vel klárað hjá Edith Kristínu.

Stjörnur og skúrkar

Hrafnhildur Ása átti algjörlega frábæran leik og var óheppinn að hafa ekki skorað fleiri mörk en hún skoraði eitt og sótti auk þess vítaspyrnu. Var stórhættuleg og býr yfir miklum hraða.

Edith Kristín skoraði einnig og var mjög hættuleg í leiknum.

Agla María og Kristín Dís Árnadóttir áttu einnig flottan leik.

Hjá Þór/KA stóð Allesandra Augur pliktina vel í markinu. Þrátt fyrir að hafa fengið á sig þrjú mörk varði hún oft frábærlega og kom í veg fyrir þónokkur mörk.

Dómarinn

Sigurður Þrastarson er einn okkar allra besti dómari og sýndi það í dag og dæmdi vel.

Aðstoðarmenn hans, Ágúst Örn og Patrik Freyr voru hárnákvæmir og fá prik fyrir.

Fjórði dómari var Sinisa Pavlica og get ég ekki hugsað mér traustari mann til að standa á milli bekkjanna og stilla til friðar þegar þörf krefur.

Stemning og umgjörð

110 manns mættu í stúkuna og stemningin allt í lagi en það má alltaf gera betur.

Einar Gauti var mættur á grillið löngu fyrir leik og skilaði sínum heimfrægu hamborgum í munn vallargesta með mikilli prýði.

Viðtöl 

„Þurfum að trúa því að við séum góðar í fótbolta af því við erum það“

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson þjálfari Þór/KA.Guðmundur/Vísir

„Aldrei gaman að tapa, sérstaklega á heimavelli, og þetta er fyrsta tapið okkar í deildinni á heimavelli þannig það er aldrei gaman, það er bara svoleiðis“, sagði Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þór/KA, eftir 3-1 tap gegn Breiðablik í fimmtu umferð Bestu deildar kvenna.

Þór/KA fékk góð færi í fyrri hálfleik sem Aðalsteinn hefði viljað nýta betur.

„Bara ekki spurning, mér fannst við byrja leikinn mjög vel, fengum alveg góða sénsa til að skora og auðvitað viltu alltaf skora úr færunum sem þú færð en byrjum leikinn vel og mér fannst við reyndar byrja seinni hálfleikinn vel líka og fáum gott færi áður en þær komast í 1-0 og þá brotnum við aðeins of auðveldlega í kjölfarið á því, en við líka stigum upp í restina og skoruðu glæsilegt mark hérna í lok leiks.“

Breiðablik skoraði fyrsta markið úr vítaspyrnu og annað markið eftir mistök í uppspili Þór/KA og því nokkuð ódýr mörk sem er ekki gaman að fá á sig.

„Það er alltaf leiðinlegt að fá á sig mörk og þær fundu svolítið leiðina. Við vitum alveg að Breiðablik er frábært lið, þær eru beinskeyttar, þær eru mjög öflugar að hlaupa bak við og þær fundu aðeins leiðina í seinni hálfleik sem við vorum búin að ná að halda aftur af þeim fram að því en við verðum bara að læra af þessu og koma sterkari í næsta leik.“

Þór/KA mætir Fram á útivelli í næsta leik sem er á botninum án stiga.

Má segja að þetta sé svokallaður sex stiga leikur þó við séum snemma í mótinu?

„Þú mátt setja það upp hvernig sem er sko. Við þurfum að taka einn leik í einu og Fram er næsta verkefni fyrir okkur og það er engin spurning að við þurfum að fara þangað og taka það sem var gott hér í dag með okkur í þann leik og reyna spila eins góðan leik þar og þá gerast góðir hlutir, ekki spurning.“

Allt öðruvísi leikur framundan gegn Fram, hvernig leggurðu hann upp?

„Þetta er góð spurning á röngum tíma því að ég bara er ekki kominn þangað, ég fer í það bara strax í fyrramálið að horfa á leikinn þeirra á móti Val, ég veit ekki einu sinni hvernig hann fór, og aðeins að kortleggja þær og svo sjáum við hvað við setjum upp á móti þeim en númer eitt, tvö og þrjú þá þurfum við bara að spila okkar besta leik og þá munu góðir hlutir gerast.“

Allesandra Augur átti góðan leik í marki Þór/KA og bjargaði nokkrum mörkum.

„Allý var flott og já við tökum alveg jákvæða punkta hér, það er engin spurning, og við munum klárlega gera það og eins og ég segi við þurfum eins og í þessum leik að koma boltanum yfir línuna í fyrri hálfleik og markið sem við skorum er gott. Baráttan í liðinu og hvernig við náum að loka á þær stóran kafla leiksins er bara fínt þannig jú jú það eru fleiri hlutir líka sem við getum tekið með okkur en umfram allt þá þurfum við bara að trúa svolítið. Úrslitin hafa ekki verið okkur hagstæð en við þurfum að trúa því að við séum góðar í fótbolta af því við erum það og ef við spilum okkar besta leik þá erum við að keppa við öll lið og getum unnið öll lið.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira