Segir starf Jóhannesar ekki í hættu Valur Páll Eiríksson skrifar 18. maí 2026 16:15 Davíð Þór segir batamerki vera á leik FH í deildinni og að þar sé ekki til skoðunar að breyta um stjóra. Samsett/Vísir Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá FH, segir Hafnfirðinga ákveðna í að halda striki á sinni vegferð þrátt fyrir erfiða byrjun á mótinu í Bestu deild karla. Starf Jóhannesar Karls Guðjónssonar, þjálfara liðsins, sé ekki í hættu.
FH hefur aðeins fengið tvö stig í fyrstu sjö umferðum Bestu deildar karla og féll þá úr leik fyrir Lengjudeildarliði Fylkis í síðustu viku eftir 5-0 tap í Árbæ, sem hefði hæglega getað verið stærra. Fylkisliðið er þjálfað af Heimi Guðjónssyni, sem var sagt upp í Hafnarfirði í vetur, þar sem breyta átti til og fylgja nýrri stefnu. FH tapaði fyrir KA í gær og situr í ellefta sæti með tvö stig, aðeins ÍBV er neðar með eitt stig, eftir jafntefli ÍBV og FH í fyrstu umferð deildarinnar. Davíð var tekinn tali í Kaplakrika í dag þar sem hann sagði árangurinn vissulega undir væntingum. „Auðvitað hefur þetta farið erfiðlega af stað og við ekki með þau stig sem við hefðum viljað vera með. Að því sögðu hefur mér þótt frammistaða liðsins hafa orðið betri með hverjum leiknum í deildinni,“ „Auðvitað var leikurinn á móti Fylki í bikarnum gríðarleg vonbrigði og eitthvað sem var okkur ekki til sóma,“ sagði Davíð Þór meðal annars í samtali við Sýn í Kaplakrika í dag. View this post on Instagram A post shared by Vísir (@visir.is) Aðspurður um það hvort Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari liðsins, væri valtur í sessi sökum árangursins, eða öllu heldur skorts þar á, var svar Davíðs skýrt: „Nei.“ Nánar verður rætt við Davíð Þór í Sportpakkanum á Sýn í kvöld. Bæði verður snert á vandræðum á Kaplakrikavelli í tapi liðsins fyrir KA í gær, sem og árangrinum í upphafi móts. Viðtalið við Davíð má sjá í heild að neðan. Klippa: Davíð Þór ræðir holuna á vellinum og brekkuna í deildinni
FH Besta deild karla Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Sjá meira