Búlgaría fór fram úr Ísrael á síðustu stundu og sigraði Eurovision Eiður Þór Árnason skrifar 16. maí 2026 23:01 DARA flutti lagið Bangaranga fyrir hönd Búlgaríu. Getty/Christian Bruna Búlgaría sigraði Eurovision sem fram fór í Vínarborg í Austurríki í kvöld. Ísrael lenti í öðru sæti og Rúmenía í því þriðja. Þetta er í fyrsta sinn sem Búlgaría fer með sigur af hólmi en landið tók ekki þátt síðustu fjögur ár. DARA með lagið Bangaranga fékk alls 516 stig. Ísrael hlaut 343 stig samanlagt frá dómnefndum og áhorfendum og mátti greinilega heyra baulað á keppendur Ísraels þegar áhorfendastigin þeirra voru tilkynnt og landið færðist efst í stigatöfluna. Sat Ísrael á toppnum allt þar til áhorfendastig Búlgaríu voru tilkynnt undir lok talningarinnar. DARA frá Búlgaríu hlaut 204 stig frá dómnefndum og 312 stig úr áhorfendakosningunni. Þetta er í fyrsta sinn frá því í Úkraínu árið 2017 sem þátttökuríki fær bæði flest stig frá dómnefnd og áhorfendum. Bretland sat á botninum í kvöld með eitt stig frá dómnefndum og engin frá áhorfendum. Ísrael lenti einnig í öðru sæti í fyrra þegar Austurríki sigraði keppnina. Færri lönd tóku þátt í Eurovision nú en síðustu ár þar sem Spánn, Ísland, Írland, Holland og Slóvenía sniðgengu keppnina vegna andstöðu við þátttöku Ísraels. Þetta var í sjötugasta sinn sem Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fór fram. Noam Bettan flutti lagið Michelle fyrir Ísrael.Getty/Ian West/PA Images Tíu efstu löndin 1. Búlgaría - 516 stig 2. Ísrael - 343 stig 3. Rúmenía - 296 stig 4. Ástralía - 287 stig 5. Ítalía - 281 stig 6. Finnland - 279 stig 7. Danmörk - 243 stig 8. Moldóva - 226 stig 9. Úkraína - 221 stig 10. Grikkland - 220 stig Fréttin hefur verið uppfærð. Eurovision Eurovision 2026 Tónlist Búlgaría Eurovision 2027 Ísrael Tengdar fréttir Þessi lönd komust áfram á seinna undanúrslitakvöldi Eurovision Seinni undanúrslit Eurovision fóru fram í Vínarborg í kvöld og komust tíu atriði áfram á úrslitakvöldið. Framlög Búlgaríu, Úkraínu og Noregs eru meðal þeirra sem birtast aftur á Eurovision-sviðinu í Austurríki á laugardag. 14. maí 2026 21:15 Þau komust áfram í úrslit Eurovision Ísraelar, Svíar og Finnar eru meðal þjóða sem komust áfram í úrslit Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Fyrri undanúrslitin voru haldin í kvöld. 12. maí 2026 21:49 Ákvörðun um að sýna Eurovision tekin fyrir barnafjölskyldur Ríkisútvarpið sýnir Eurovision í ár þar sem útvarpið vildi gefa fólki sem hefur áhuga á Eurovision kost á að fylgjast með keppninni með íslenskum þul frekar en að vísa því fólki á erlenda miðla sem einnig sýni keppnina. Keppnin sé auk þess vinsæl meðal fjölskyldufólks og þess vegna fór Ríkisútvarpið ekki sömu leið og spænska, írska og slóvenska ríkisútvarpið sem ákváðu hvorki að taka þátt í keppninni né sýna frá henni. 13. maí 2026 14:07 Hvað veistu um… Eurovision? Fyrra undanúrslitakvöld Eurovision fór fram í Austurríki í gærkvöldi og en seinna undanúrslitakvöldið á dagskrá annað kvöld og verður þá ljóst hvaða 25 framlög verða flutt á úrslitakvöldinu á laugardaginn. 13. maí 2026 20:00 Mest lesið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Lífið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni Anthony Head er látinn Lífið „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Lífið samstarf Fleiri fréttir Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Sjá meira
Ísrael hlaut 343 stig samanlagt frá dómnefndum og áhorfendum og mátti greinilega heyra baulað á keppendur Ísraels þegar áhorfendastigin þeirra voru tilkynnt og landið færðist efst í stigatöfluna. Sat Ísrael á toppnum allt þar til áhorfendastig Búlgaríu voru tilkynnt undir lok talningarinnar. DARA frá Búlgaríu hlaut 204 stig frá dómnefndum og 312 stig úr áhorfendakosningunni. Þetta er í fyrsta sinn frá því í Úkraínu árið 2017 sem þátttökuríki fær bæði flest stig frá dómnefnd og áhorfendum. Bretland sat á botninum í kvöld með eitt stig frá dómnefndum og engin frá áhorfendum. Ísrael lenti einnig í öðru sæti í fyrra þegar Austurríki sigraði keppnina. Færri lönd tóku þátt í Eurovision nú en síðustu ár þar sem Spánn, Ísland, Írland, Holland og Slóvenía sniðgengu keppnina vegna andstöðu við þátttöku Ísraels. Þetta var í sjötugasta sinn sem Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fór fram. Noam Bettan flutti lagið Michelle fyrir Ísrael.Getty/Ian West/PA Images Tíu efstu löndin 1. Búlgaría - 516 stig 2. Ísrael - 343 stig 3. Rúmenía - 296 stig 4. Ástralía - 287 stig 5. Ítalía - 281 stig 6. Finnland - 279 stig 7. Danmörk - 243 stig 8. Moldóva - 226 stig 9. Úkraína - 221 stig 10. Grikkland - 220 stig Fréttin hefur verið uppfærð.
1. Búlgaría - 516 stig 2. Ísrael - 343 stig 3. Rúmenía - 296 stig 4. Ástralía - 287 stig 5. Ítalía - 281 stig 6. Finnland - 279 stig 7. Danmörk - 243 stig 8. Moldóva - 226 stig 9. Úkraína - 221 stig 10. Grikkland - 220 stig
Eurovision Eurovision 2026 Tónlist Búlgaría Eurovision 2027 Ísrael Tengdar fréttir Þessi lönd komust áfram á seinna undanúrslitakvöldi Eurovision Seinni undanúrslit Eurovision fóru fram í Vínarborg í kvöld og komust tíu atriði áfram á úrslitakvöldið. Framlög Búlgaríu, Úkraínu og Noregs eru meðal þeirra sem birtast aftur á Eurovision-sviðinu í Austurríki á laugardag. 14. maí 2026 21:15 Þau komust áfram í úrslit Eurovision Ísraelar, Svíar og Finnar eru meðal þjóða sem komust áfram í úrslit Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Fyrri undanúrslitin voru haldin í kvöld. 12. maí 2026 21:49 Ákvörðun um að sýna Eurovision tekin fyrir barnafjölskyldur Ríkisútvarpið sýnir Eurovision í ár þar sem útvarpið vildi gefa fólki sem hefur áhuga á Eurovision kost á að fylgjast með keppninni með íslenskum þul frekar en að vísa því fólki á erlenda miðla sem einnig sýni keppnina. Keppnin sé auk þess vinsæl meðal fjölskyldufólks og þess vegna fór Ríkisútvarpið ekki sömu leið og spænska, írska og slóvenska ríkisútvarpið sem ákváðu hvorki að taka þátt í keppninni né sýna frá henni. 13. maí 2026 14:07 Hvað veistu um… Eurovision? Fyrra undanúrslitakvöld Eurovision fór fram í Austurríki í gærkvöldi og en seinna undanúrslitakvöldið á dagskrá annað kvöld og verður þá ljóst hvaða 25 framlög verða flutt á úrslitakvöldinu á laugardaginn. 13. maí 2026 20:00 Mest lesið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Lífið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni Anthony Head er látinn Lífið „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Lífið samstarf Fleiri fréttir Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Sjá meira
Þessi lönd komust áfram á seinna undanúrslitakvöldi Eurovision Seinni undanúrslit Eurovision fóru fram í Vínarborg í kvöld og komust tíu atriði áfram á úrslitakvöldið. Framlög Búlgaríu, Úkraínu og Noregs eru meðal þeirra sem birtast aftur á Eurovision-sviðinu í Austurríki á laugardag. 14. maí 2026 21:15
Þau komust áfram í úrslit Eurovision Ísraelar, Svíar og Finnar eru meðal þjóða sem komust áfram í úrslit Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Fyrri undanúrslitin voru haldin í kvöld. 12. maí 2026 21:49
Ákvörðun um að sýna Eurovision tekin fyrir barnafjölskyldur Ríkisútvarpið sýnir Eurovision í ár þar sem útvarpið vildi gefa fólki sem hefur áhuga á Eurovision kost á að fylgjast með keppninni með íslenskum þul frekar en að vísa því fólki á erlenda miðla sem einnig sýni keppnina. Keppnin sé auk þess vinsæl meðal fjölskyldufólks og þess vegna fór Ríkisútvarpið ekki sömu leið og spænska, írska og slóvenska ríkisútvarpið sem ákváðu hvorki að taka þátt í keppninni né sýna frá henni. 13. maí 2026 14:07
Hvað veistu um… Eurovision? Fyrra undanúrslitakvöld Eurovision fór fram í Austurríki í gærkvöldi og en seinna undanúrslitakvöldið á dagskrá annað kvöld og verður þá ljóst hvaða 25 framlög verða flutt á úrslitakvöldinu á laugardaginn. 13. maí 2026 20:00