Leik lokið: Njarð­vík - Haukar 95-70 | Njarð­víkingar Ís­lands­meistarar

Siggeir Ævarsson skrifar
Njarðvík Íslandsmeistarar 2026
Njarðvík Íslandsmeistarar 2026 vísir/Hulda Margrét

Njarðvíkingar eru Íslandsmeistarar eftir 3-1 sigur á Haukum í einvígi liðanna í úrslitum Bónus-deildar kvenna. Liðin mættust í Njarðvík í kvöld þar sem lokatölur urðu 95-70 og niðurstaðan sanngjarn sigur Njarðvíkur.

Haukar skoruðu aðeins tíu stig í fyrsta leikhluta og gekk illa allan leikinn að ná takti í sinn sóknarleik gegn stífri vörn Njarðvíkur. Staðan 18-10 eftir fyrsta leikhluta en það lifnaði þó aðeins yfir sókninni hjá gestunum í öðrum leikhluta.

Emil Barja lokaði leikhlutanum á að skora á dómarana að endurskoða innkastdóm og varð að ósk sinni. Í kjölfarið kom karfa frá Haukum og staðan 47-40 í hálfleik.

Haukar náðu þau ekki að byggja ofan á þennan meðbyr. Hulda María kom með tvo þrista í röð úr sitthvoru horninu og munurinn allt í einu kominn upp í 15 stig sem virtist bara slá Hauka algjörlega út af laginu.

Heimakonur tóku svo öll völd á vellinum eftir því sem leið á leikinn þar sem þær Dani Rodriguez og Brittany Dinkins voru algjörlega frábærar, dyggilega studdar af liðsfélögum sínum sem spiluðu frábæra vörn og skiluðu stórum körfum, en Njarðvíkingar skutu 48 prósent fyrir utan í kvöld.

Atvik leiksins

Leikurinn virtist endanlega snúast Njarðvíkingum í vil þegar Hulda setti þrist úr sitthvoru horninu í upphafi seinni hálfleiks. Munur rúllaði fljótlega í 15 stig og svo í 20 og Haukar virtust einfaldlega gefast upp.

Stjörnur og skúrkar

Dani Rodriguez frábær í liði Njarðvíkur með 36 stig, níu fráköst og sjö stoðsendingar. Brittany Dinksins ekki mikið síðri, með þrefalda tvennu. 25 stig, ellefu stig og ellefu stoðsendingar.

Þær Hulda María Agnarsdóttir og Sara Björk Logadóttir áttu einnig mjög góðan leik, þá ekki síst varnarlega.

Íslenski kjarninn tekur á móti bikarnum með kossi.vísir/Hulda Margrét

Hjá Haukum voru þær Þóra Kristín Jónsdóttir, Amandine Justine Toi og Krystal-Jade Freeman allar bara fínar, þá ekki síst Krystal sem skoraði 25 stig og tók 13 fráköst. Aðrir leikmenn voru bara varla með sóknarlega í kvöld.

Dómarar leiksins

Hvern langar að tala um dómarana á svona stundu? Bikarinn er farinn á loft og það gekk allt bara þokkalega fyrir sig hjá þríeykinu í kvöld.

Stemming og umgjörð

Frábært kvöld í IceMar Höllinni í kvöld. Frábær stemming, geggjuð umgjörð og ekki síst í leikslok. Frábært fyrir Njarðvíkinga að fá að lyfta bikarnum heima í fyrsta sinn síðan 1991.

Fleiri myndir og viðtöl á leiðinni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira