Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street Samúel Karl Ólason skrifar 11. maí 2026 15:26 JPMorgan er stærðarinnar fyrirtæki en fyrrverandi starfsmaður þess hefur komið af stað miklu fjaðrafoki með grófum ásökunum í garð fyrrverandi samstarfskonu sinnar. Getty/Marcin Golba Nokkrum mánuðum eftir að Chirayu Rana hætti hjá JPMorgan, höfðaði hann mál gegn fyrirtækinu og fyrrverandi samstarfskonu sinni sem hann sakaði um kynferðislega áreitni og kynferðisbrot og sagði hana hafa gert sig að kynlífsþræl. Ásakanir hans þóttu nokkuð sjokkerandi og hafa fregnir af málinu dreifst um internetið eins og eldur um sinu, með tilheyrandi rangfærslum.
Rana heldur því meðal annars fram að konan hafi hótað því að hann yrði rekinn ef hann hefði ekki mök við hana og níðst á honum með öðrum hætti. Hún á meðal annars að hafa sagt við hann: „Ég þori að veðja að litla asíska eiginkona þín, með fiskshausinn, sé ekki með svona bombur“ og sagt honum að hafa við sig mök, annars myndi hún rústa ferli hans, samkvæmt frétt Wall Street Journal. „Ekki gleyma því, að ég fokking á þig!“ Hann heldur því einnig fram að hún hafi tvisvar sinnum boðið honum munnmök á skrifstofunni og ítrekað kallað hann „brúna strákinn“ sinn. Rana er af nepölskum uppruna. Þá segist hann einu sinni hafa farið að gráta eftir að hún klæddi hann úr buxunum og hafði mök við hann. Þá á Hajdini að hafa sagt honum að hætta þessu væli. „Heldur þú að einhver muni trúa þér? Þú ert djöfulsins drullusokkur sem heldur að hann sé rosa flottur en getur ekki einu sinni fengið standpínu fyrir mig. Hvað í helvítinu er þetta eiginlega?“ Vildi 22 milljónir en var boðin ein New York Times sagði frá því í síðustu viku að forsvarsmenn JPMorgan hefðu boðið Rana milljón dala með því skilyrði að hann myndi ekki höfða mál gegn konunni. Því neitaði hann og höfðaði mál. Fyrst fór hann fram á 22 milljónir dala. Nú hafa þessir forsvarsmenn lýst yfir stuðningi við konuna, sem heitir Lorna Hajdini, og segja lögmenn fyrirtækisins að ekkert væri til í ásökunum hans í garð hennar. Þá segja þeir að Rana hafi neitað að taka þátt í innri rannsókn fyrirtækisins á ásökunum hans. Við framkvæmd rannsóknar, sem byggði á viðtölum við starfsmenn, tölvupóstum og öðrum samskiptum, fundust engar vísbendingar um að Hajdini hefði brotið á honum. Talsmaður JPMorgan sagði í yfirlýsingu að forsvarsmenn fyrirtækisins hefðu viljað sleppa við kostnaðarsöm og tímafrek réttarhöld og þá vildu þeir einnig standa við bak Hajdini og reyna að komast hjá því að hún yrði fyrir skaða. Þess vegna hefði Rana verið boðin greiðsla. Lögmenn hennar segja það sama um ásakanirnar og ítreka að þau hafi aldrei átt í kynferðislegu sambandi. NYT hafði þó eftir lögmanni Rana í síðustu viku að á rúmlega þrjátíu ára ferli hans hefðu vinnuveitendur aldrei boðið svo háa uppfærð ef þeir teldu ekkert til í ásökununum. Mikið um rangfærslur Eins og áður segir hefur þetta mál verið mikið milli tannanna á fólki á internetinu. Í grein Wall Street Journal er umræðan kölluð „samfélagsmiðla-sirkus“ og hefur hún leitt til þess að mörgum hefur þótt erfitt að fá á hreint hvað sé rétt og hvað sé rangt. Nokkuð hefur verið um rangfærslur og grín um málið. Rana höfðaði fyrst málið þann 27. apríl en það hvarf skömmu síðar af síðu dómstólsins í New York. Margir netverjar töldu það til marks um að eitthvað dularfullt væri að eiga sér stað en lögmaður Rana þurfti að höfða málið aftur vegna mistaka sem voru gerð við afgreiðslu málsins. Það hefur meðal annars verið rætt í gífurlega vinsælum hlaðvörpum vestanhafs, eins og í þætti Joes Rogan. Það hefur einnig verið til umræðu í sjónvarpsþáttum eins og Daily Show. Í grein WSJ er bent á sögusagnir um að Rana hafi verið að halda framhjá konu sinni með Hajdini en hann var í rauninni ekki giftur. Þá hefur því einnig verið haldið fram að hún hafi verið yfirmaður hans, sem er ekki rétt. Þau voru um tíma í sama teyminu innan JPMorgan en hún mun aldrei hafa verið yfirmaður hans á nokkurn hátt. Í lögsókninni heldur Rana því fram að Hajdini hafi fyrst gengið á hann í maí 2024 og þá hafi hann leitað til yfirmanns síns og beðið um að þurfa ekki að vinna frekar með henni. Hann heldur því einnig fram að hún hafi byrlað honum ólyfjan og brotið á honum. Þá er vitnað í tvö ónafngreind vitni sem segja að Hajdini hafi snert Rana með óviðeigandi hætti. Annað vitnið, sem segist hafa búið á sófanum hjá Rana á þeim tíma, segir að hún hafi beðið sig um að taka þátt í trekant með henni og Rana. Heimildarmaður WSJ í JPMorgan segir að undir lok árs 2024 hafi Rana hætt að mæta í vinnuna og sagt yfirmönnum sínum að faðir hans hefði dáið. Samstarfsfélagar hans sendu honum blóm en síðar kom í ljós að faðir hans var ekki látinn en lögmaður Rana segir að hann hafi verið að tala um mann sem var honum eins og faðir, án þess þó að segja hvaða maður það var. Blaðamaður NYPost hringdi í föður Rana, sem sagðist ekkert vita um lögsókn sonar síns. Í maí 2025 lagði Rana fram kvörtun gegn Hajdini og öðrum innan fyrirtækisins. Þá sagði hann að brotið hefði verið á sér og sakaði samstarfsfélaga sína um rasisma og krafðist 22 milljóna dala. Hann var sendur í launað leyfi og á endanum var honum boðin áðurnefnd milljón. Því tilboði hafnaði hann. Rana hætti hjá JPMorgan í lok síðasta árs og hóf vinnu hjá Bregal Sagemount, öðru fjármálafyrirtæki. Hann hætti störfum þar í apríl.
Bandaríkin Kynferðisofbeldi Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Sjá meira