Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Samúel Karl Ólason skrifar 8. maí 2026 08:40 Vladimír Pútín, forseti Rússlands. AP/Mikhaiol Metzel, Sputnik Bæði Rússar og Úkraínumenn hafa sakað hvor annan um að brjóta gegn vopnahléi sem Vladimír Pútín, forseti Rússlands, krafðist einhliða um helgina á meðan að Rússar halda upp á sigur sinn á Þýskalandi í seinni heimsstyrjöldinni. Eftir að Rússar gerður umfangsmiklar árásir á Úkraínu í gær hafa Úkraínumenn gert dróna- og eldflaugaárásir víðsvegar um Rússland í dag.
Meðal annars hafa Úkraínumenn ráðist á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi og á skotmörk í Grozní í Téténíu. A Ukrainian drone attack was reported this morning in Grozny, Chechnya, roughly 900 kilometers from Ukrainian-controlled territory. The city is home to Chechen leader Ramzan Kadyrov and his Kadyrovtsy forces. #Russia pic.twitter.com/yFC0oOBPrH— NOELREPORTS 🇪🇺 🇺🇦 (@NOELreports) May 8, 2026 Pútín lýsti nýlega yfir einhliða vopnahléi yfir daginn í dag og morgundaginn. Því höfnuðu Úkraínumenn og kröfðust í staðinn að gera ætti almennt ótímabundið vopnahlé. Það átti að hefjast á miðvikudaginn en Rússar hafa gert umfangsmiklar árásir á Úkraínu undanfarna daga. Meðal annars réðust Rússar á leikskóla í Sumy á miðvikudaginn. Nú í morgun virðast Úkraínumenn hafa svarað fyrir sig með umfangsmiklum árásum á Rússland. Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir 264 úkraínska dróna hafa verið skotna niður, samkvæmt frétt Reuters. Leikarar undirbúa sýningu fyrir morgundaginn, þegar Rússar fagna sigri gegn Þýskalandi í seinni heimsstyrjöldinni.AP/Dmitri Lovetsky Rússneska fréttaveitan RIA segir að ráðuneytið hafi gefið út yfirlýsingu um að brugðist yrði við þessum brotum Úkraínumanna á vopnahléi Pútíns. Rússar segja brotin að minnsta kosti 1.365 talsins. Þá hafa Rússar hótað umfangsmikilli eldflaugaárás á Kænugarð, ef Úkraínumenn reyna að koma í veg fyrir hátíðarhöldin í Moskvu á morgun. Russia was under massive attack last night. Putin's "truce" includes strikes on Dubna, Rostov, Taganrog, Perm and Yaroslavl refineries, Grozny, Tula, Belgorod, Bryansk and occupied Crimea, and that's just what's publicly known. pic.twitter.com/ktMsApt2A4— WarTranslated (@wartranslated) May 8, 2026 Vandræðagangur Rússa Rússum hefur orðið lítið ágengt á víglínunni í Úkraínu um nokkuð langt skeið. Á sama tíma hefur mannfall meðal Rússa í Úkraínu verið mikið og drónaárásum Úkraínumanna gegn hernaðar- og olíuvinnsluinnviðum í Rússlandi hefur fjölgað töluvert. Þá hefur hægt á hagkerfi Rússlands en það dróst saman um 0,5 prósent á fyrsta fjórðungi þessa árs. Seðlabanki Rússlands hafði spáð 1,6 prósenta hagvexti. Ukrainian drones struck the Lukoil-Permnefteorgsintez refinery in Perm again, with fires breaking out at the facility. The latest attack marks the fifth reported hit on the refinery and the third already this week, keeping pressure on one of Russia’s major oil-processing sites.… pic.twitter.com/Yj0Leg4UGw— NOELREPORTS 🇪🇺 🇺🇦 (@NOELreports) May 8, 2026 Í frétt Wall Street Journal segir að á undanförnum mánuðum hafi óánægja með stríðsrekstur Pútíns í Úkraínu aukist verulega. Öryggisstofnanir Rússlands hafa brugðist við með umfangsmiklum takmörkunum á internetinu, sem líkt hefur við kínverska eldvegginn svokallaða. Fjölmiðlar ytra vitnuðu þar að auki á dögunum í skýrslu frá evrópskri leyniþjónustu þar sem fram kom að Pútín hefði látið auka öryggisgæslu kringum sig til muna og að hann hefði orðið sífellt meira einangraður. Rússar halda á morgun upp á sigur Sovétríkjanna gegn Þýskalandi í seinni heimsstyrjöldinni. Þessi dagur hefur fengið sífellt meira vægi síðan Pútín tók við völdum í Rússlandi fyrir rúmum aldarfjórðungi en hátíðarhöldin hafa aldrei verið minni að sniðum en þau verða á morgun. Erlendum blaðamönnum hefur verið meinaður aðgangur að hátíðarhöldunum. Drónaárásir Úkraínumanna á Rússland, og þar á meðal á Moskvu, hafa leitt til þess að Pútín krafðist vopnahlés á meðan á hátíðarhöldunum stendur. Þá hefur verið dregið úr umfangi þeirra vegna öryggisógnar og aðgangur íbúa Moskvu að internetinu takmarkaður. Innrásin í Úkraínu hefur nú staðið yfir lengur en stríð Sovétríkjanna gegn Þýskalandi. Rostov-on-Don came under overnight missile attack on May 7-8, with massive fires reported in the city’s industrial zone. Preliminary reports point to possible hits on 2 military-industrial enterprises, including the Agropromzapchast plant. Governor Yuri Slyusar said debris caused… pic.twitter.com/zjgtsQVNtJ— NOELREPORTS 🇪🇺 🇺🇦 (@NOELreports) May 8, 2026 Anastasia Kashevarova, fræg rússnesk kona sem stutt hefur innrásina í Úkraínu, er sögð hafa varpað frekara ljósi á það hvernig viðhorfið til stríðsins hefði breyst í Rússlandi á dögunum. Það gerði hún í færslu á samfélagsmiðlum þar sem hún sagði að í seinni heimsstyrjöldinni hefðu sovéskir hermenn verið þegar komnir til Berlínar. „Og við hristum einhverra hluta vegna hnefa okkar og tölum einhverja vitleysu um rauðar línur.“
Rússland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Vladimír Pútín Tengdar fréttir Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Félagar í íslensk-rússnesku gjörningasveitinni Pussy Riot tóku höndum saman við úkraínska femínista og mótmæltu við opnun rússneska skálans á Feneyjatvíæringnum í dag. Þátttaka Rússa í hátíðinni hefur verið afar umdeild. 6. maí 2026 11:44 Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Bretar, Ísland og átta önnur lönd í Norður-Evrópu hyggjast sameina krafta sína og koma á fót sérstöku samiginlegu sjóherliði til að sporna við aukinni ógn Rússa á norðurslóðum, að sögn bresks herforingja. Verkefnið er á vegum JEF-samstarfsins sem Ísland er aðili að. 1. maí 2026 00:02 Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Rússneskir málaliðar, á vegum yfirvalda í Rússlandi, munu ekki yfirgefa Malí. Þar munu þeir áfram aðstoða herforingjastjórn landsins við að berjast gegn uppreisnar- og vígamönnum. Malí og rússneska Afríkudeildin svokallaða bauð afhroð í skyndisókn vígamanna víða um landið um síðustu helgi. 30. apríl 2026 11:22 Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Árásirnar í Malí um helgina voru þær umfangsmestu sem sést hafa þar í landi frá árinu 2012. Öryggisástandið þar í landi hefur ekki þótt verra um árabil eftir að víga- og uppreisnarmenn tóku höndum saman og réðust gegn herforingjastjórninni viðsvegar um Malí. 29. apríl 2026 08:08 Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Sjálfsprengidrónum rignir yfir bæði Úkraínu og Rússland Stríðið í Úkraínu hefur að miklu leyti fallið í skugga stríðs Bandaríkjanna og Íran gegn Ísrael, sem Rússar virðast græða töluvert á. Hermenn Rússlands sækja enn hægt áfram í austurhluta Úkraínu í kostnaðarsamri framsókn. Á sama tíma virðist sífellt færast meiri þungi á langdrægar árásir bæði Rússa en þó sérstaklega Úkraínumanna sem virðast hafa aukið framleiðslu á langdrægum drónum og stýriflaugum. 2. apríl 2026 09:01 Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Sjá meira
Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Félagar í íslensk-rússnesku gjörningasveitinni Pussy Riot tóku höndum saman við úkraínska femínista og mótmæltu við opnun rússneska skálans á Feneyjatvíæringnum í dag. Þátttaka Rússa í hátíðinni hefur verið afar umdeild. 6. maí 2026 11:44
Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Bretar, Ísland og átta önnur lönd í Norður-Evrópu hyggjast sameina krafta sína og koma á fót sérstöku samiginlegu sjóherliði til að sporna við aukinni ógn Rússa á norðurslóðum, að sögn bresks herforingja. Verkefnið er á vegum JEF-samstarfsins sem Ísland er aðili að. 1. maí 2026 00:02
Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Rússneskir málaliðar, á vegum yfirvalda í Rússlandi, munu ekki yfirgefa Malí. Þar munu þeir áfram aðstoða herforingjastjórn landsins við að berjast gegn uppreisnar- og vígamönnum. Malí og rússneska Afríkudeildin svokallaða bauð afhroð í skyndisókn vígamanna víða um landið um síðustu helgi. 30. apríl 2026 11:22
Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Árásirnar í Malí um helgina voru þær umfangsmestu sem sést hafa þar í landi frá árinu 2012. Öryggisástandið þar í landi hefur ekki þótt verra um árabil eftir að víga- og uppreisnarmenn tóku höndum saman og réðust gegn herforingjastjórninni viðsvegar um Malí. 29. apríl 2026 08:08
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Sjálfsprengidrónum rignir yfir bæði Úkraínu og Rússland Stríðið í Úkraínu hefur að miklu leyti fallið í skugga stríðs Bandaríkjanna og Íran gegn Ísrael, sem Rússar virðast græða töluvert á. Hermenn Rússlands sækja enn hægt áfram í austurhluta Úkraínu í kostnaðarsamri framsókn. Á sama tíma virðist sífellt færast meiri þungi á langdrægar árásir bæði Rússa en þó sérstaklega Úkraínumanna sem virðast hafa aukið framleiðslu á langdrægum drónum og stýriflaugum. 2. apríl 2026 09:01