Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Samúel Karl Ólason skrifar 5. maí 2026 08:33 Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er sagður hafa sérstakar áhyggjur af banatilræðum eða valdaránstilraunum. AP/Mikhail Metzel, Sputnik Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur aukið öryggisgæslu sína verulega. Þá hefur hann einangrast töluvert og ver mestum tíma sínum í neðanjarðarbyrgjum þar sem hann grandskoðar stöðuna í Úkraínu. Forsetinn er sagður verja minni tíma en áður í stjórn Rússlands.
Spenna milli ráðamanna í Rússlandi, embættismanna og annarra áhrifamikilla manna er sögð hafa aukist til muna. Frá því í mars hafa yfirvöld í Rússlandi haft sérstakar áhyggjur af því að mikilvægum og leynilegum upplýsingum sé lekið, mögulegum banatilræðum gegn Pútín eða mögulegum valdaránstilraunum. Þegar kemur að mögulegum banatilræðum hafa verðir Pútíns sérstakar áhyggjur af því að áhrifamiklir menn í Rússlandi noti sjálfsprengidróna gegn forsetanum. Pútín eða fjölskyldumeðlimir hans eru þess vegna hættir að halda til á heimilum hans í og nærri Moskvu, eða í Valdai-héraði í Rússlandi. Pútín er sagður verja nokkrum vikum í senn í mismunandi byrgjum á meðan ríkismiðlar Rússlands nota gamalt myndefni af forsetanum á ferðinni. Þegar forsetinn rússneski sést á ferðinni þessa dagana er hann gjarnan að hitta börn, sem greinendur segja til marks um að hann viti af minnkandi vinsældum sínum.AP/Vyacheslav Prokofyev,Sputnik Starfsmönnum bannað að nota síma Þetta er meðal þess sem sagt er koma fram í gögnum evrópskra leyniþjónusta og máli heimildarmanna sem rætt hafa við blaðamenn Financial Times og rússneska útlagamiðilsins iStories, sem segjast hafa fengið ýmis atriði gagnanna staðfest. Sjá einnig: Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Þar kemur einnig fram að þeir sem ætla sér að heimsækja Pútín eða fara á fundi með honum þurfa að gangast undir tvær öryggisskoðanir. Sprengjuleitir kringum Pútín eru margar og ítarlegar en lífi hans er að miklu leyti stýrt af öryggisstofnunum Rússlands. Fólki sem vinnur með honum eða nærri honum er meinað að nota síma og fá eingöngu að nota tölvur sem eru ekki tengdar internetinu. Þessu sama starfsfólki er bannað að nota almenningssamgöngur og er búið að setja upp eftirlitskerfi heima hjá sumum starfsmönnum hans, eins og kokkum, ljósmyndurum og lífvörðum. Þá hefur verið lokað fyrir aðgang fólks að internetinu í Moskvu og annars staðar en það hefur að hluta til verið vegna ráðstafana sem tengjast öryggisgæslu Pútíns og vörnum gegn drónum. Aukin öryggisgæsla herforingja Öryggisgæsla hefur einnig verið aukin kringum tíu háttsetta rússneska herforingja og er það að miklu leyti vegna banatilræða Úkraínumanna gegn háttsettum starfsmönnum varnarmálaráðuneytisins. Undir lok síðasta árs hélt Pútín fund með mörgum af æðstu yfirmönnum öryggisstofnana Rússlands þar sem þeir kenndu hvor öðrum um að Úkraínumönnum hefði tekist að ráða herforingja eins og Fanil Sarvarov af dögum. Sjá einnig: Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Eftir rifrildi á fundinum hvatti Pútín menn til að róa sig og lagði til aukna gæslu kringum tíu háttsetta herforingja. Þangað til hafði Valerí Gerasimóv, formaður herforingjaráðs Rússlands, verið sá eini með slíka gæslu. Heimildarmenn iStories segja mjög erfitt að fá heimild til hlerana í glæparannsókn sem tengist ekki stjórnmálum í Rússlandi, þar sem nánast allur hlerunarbúnaður ríkisins sé notaður til að vakta og vernda ríkisstjórnina og aðrar stofnanir. Fylgist grannt með stríðinu og litlu öðru Þegar kemur að innrás Rússa í Úkraínu, þar sem Rússum hefur orðið lítið ágengt um margra mánaða skeið, er Pútín sagður fylgjast mjög náið með vendingum. Hann fundar daglega með herforingjum sínum en samkvæmt heimildarmönnum FT fylgist hann náið með því þegar lítil þorp í Úkraínu eru hernumin og öðrum smáatriðum. Önnur málefni fá sífellt minni tíma hjá Pútín. Einn heimildarmaður FT, sem sagður er þekkja Pútín og ræða við hann, segir að um sjötíu prósent af tíma forsetans fari í stríðið. Hinn tíminn fari í að hitta menn eins og forseta Indónesíu eða efnahagskerfi Rússlands. Heimildarmaðurinn sagði að eina leiðin til að fá að ræða við Pútín væri að tala við hann um stríðið. Rússar standi fyrir tveimur framtíðum Roman Anin, stofnandi iStories, skrifaði pistil um þessar fregnir en hann segir þær gífurlega mikilvægar. Svo virðist sem að Rússar séu að upplifa umfangsmiklar breytingar á rússneska ríkinu. Þráteflisstaða í Úkraínu, áhrifamiklar árásir og olíuinnviði Rússlands og ýmis önnur vandræði, bæði efnahagsleg og samfélagsleg muni fyrr eða síðar leiða til átaka milli ráðandi fylkinga í Rússlandi um hásæti Pútíns. Sjá einnig: Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur Það að Pútín, sem byggði núverandi stjórnkerfi Rússlands, hafi aukið öryggisgæsluna eins mikið og hann virðist hafa gert sýni fram á að hann viti vel að stjórn hans sé í hættu. Það sé ástæðan fyrir aukinni einangrun hans og ofsóknaræði. Anin segir að til skamms tíma standi Rússar frammi fyrir tveimur mismunandi framtíðum. Önnur leiðin sé til Rússlands sem líkist Íran að miklu leyti. Ríkis þar sem Pútín takist að halda völdum og tryggja sig í sessi með aðstoð gífurlega öflugra öryggisstofnana, sem muni líkjast byltingarverði Íran. Stofnanir þessar beiti umfangsmikilli undirokun til að halda Pútín við stjórnvölinn. Þá muni einangrun rússnesku þjóðarinnar einnig aukast til muna. Hin leiðin svipi til ástandsins sem ríkti í Rússlandi undir lok valdatíðar Ívans grimma. Tilraunir hans til að koma böndum á yfirstéttina samhliða kostnaðarsömum stríðsrekstri og öðrum vandræðum, hafi leitt til fjöldaaftaka, borgarastyrjaldar.
Rússland Vladimír Pútín Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent Fleiri fréttir „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Sjá meira