Uppgjörið: Haukar - Keflavík 86-70 | Haukar unnu sannfærandi sigur og komust yfir Hjörvar Ólafsson skrifar 28. apríl 2026 21:12 vísir/Hulda Margrét Haukar og Keflavík áttust við þriðja sinn í undanúrslitum Bónus deildar kvenna í körfubolta í Ólafssal að Ásvöllum í kvöld. Haukar höfðu betur, 86-70, í rimmunni í kvöld og leiða 2-1 í einvígi liðanna. Jafnræði var með liðunum á upphafsmínútum leiksins en Keishana Washington kom Keflavík í 9-6 um miðjan fyrsta leikhluta en hún hafði þá skorað sjö af níu stigum gestanna í leiknum. Krystal-Jade Freeman jafnaði svo metin í 9-9 m með þristi en á þeim tímapunkti hafði hún alfarið séð um stigaskorun liðsins það sem af var leiksins. Sara Rún Hinriksdóttir setti svo niður tveggja stiga sem og víti sem hún fékk að lokasekúndu fyrsta leikhluta og sá til þess að gestirnir frá Keflavík fóru með þriggja stiga forskot, 16-13 inn í annan leikhluta. Haukar fóru betur af stað í öðrum leikhluta og fimm stig í röð hjá Tinnu Guðrúnu Alexandersdóttur komu heimakonum 23-19 yfir. Lovísa Björt Henningsdóttir kom svo með afar sterka innkomu af varamannabekknum. Lovísa Björt skoraði sex stig á skömmum tíma og spilaði auk þess hörkuvörn. Lovísa Björt kom Haukum í 35-25 þegar þrjár mínútur um það bil voru eftir af öðrum leikhluta. Þriggja stiga körfur hjá Sofie Tryggedsson Preetzmann og Önnu Ingunni Svansdóttur fyrir Keflavík undir lok annars leikhluta löguðu svo stöðuna fyrir gestina en staðan var 41-35 Haukum í vil þegar liðin röltu til búningsklefa í hálfleik. Haukar héldu uppteknum hætti í þriðja leikhluta og höfðu betur í þeim fjórðungi 25-16 og fóru með 15 stiga forskot í farteskinu inn í fjórða og síðasta leikhlutann. Keflavík náði ekki að velgja Haukum almennilega undir uggum í fjórða leikhluta og Haukar fóru að lokum með öruggan 16 stiga sigur af hólmi og leiða 2-1 í baráttu liðanna um að koma í úrslitaeinvígið. Bónus-deild karla Haukar Keflavík ÍF