Mar­tröð Chelsea en Brig­hton gæti endað í Meistara­deild Evrópu

Sindri Sverrisson skrifar
Hinn ungi Jack Hinshelwood heldur áfram að gera frábæra hluti með Brighton.
Hinn ungi Jack Hinshelwood heldur áfram að gera frábæra hluti með Brighton. Getty/Mike Hewitt

Chelsea mátti þola sitt fimmta tap í röð í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld, í afar þýðingarmiklum leik gegn Brighton á útivelli, 3-0. Liðið hefur ekki skorað eitt einasta mark í þessum fimm leikjum.

Þar með flaug Brighton upp töfluna, upp fyrir Chelsea, og er nú í 6. sæti deildarinnar þegar liðin eiga aðeins fjóra leiki eftir hvort. Brighton er með 50 stig en Chelsea 48 líkt og Brentford og Bournemouth sem eiga leik til góða.

Sjötta sætið gæti mögulega dugað til að komast í sjálfa Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð en það gerist aðeins ef Aston Villa bæði endar í 5. sæti og vinnur Evrópudeildina.

Það voru ekki liðnar þrjár mínútur af leiknum í kvöld þegar Ferdi Kadioglu skoraði með skoti úr teignum, eftir hornspyrnu Pascal Gross, og kom Brighton yfir.

Robert Sanchez var svo nálægt því að gefa Brighton annað mark eftir korters leik, þegar hann sendi boltann beint til Brighton-manna, en Trevoh Chalobah náði að renna sér og bjarga á marklínu.

Brighton bætti hins vegar við marki eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik, úr skyndisókn. Georginio Rutter gerði vel í að ýta Jorrel Hato frá sér og koma svo boltanum á Jack Hinshelwood sem skoraði nokkurn veginn einn gegn markverði.

Varamaðurinn Danny Welbeck innsiglaði svo sigurinn undir lokin.

Ekki haldið hreinu í rúma þrjá mánuði

Chelsea hefur ekki haldið marki sínu hreinu í deildarleik síðan 17. janúar, í 2-0 sigri gegn Brentford ellefu dögum eftir að Liam Rosenior var ráðinn stjóri félagsins. Þá skapaði liðið sáralítið fram á við í kvöld og í raun ekki neitt í fyrri hálfleiknum.

Brighton hefur aftur á móti unnið sex af síðustu átta leikjum sínum og aðeins tapað einum þessara leikja, gegn toppliði Arsenal. Liðið er fimm stigum á eftir næsta liði, Liverpool, sem á þó einnig leik til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira