Uppgjörið:Haukar - Kefla­vík 85-71 | Öruggt hjá Hafn­firðingum í fyrsta leik

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Tinna Guðrún Alexandersdóttir er lykilmaður hjá Haukum.
Tinna Guðrún Alexandersdóttir er lykilmaður hjá Haukum. vísir/Diego

Deildarmeistarar Haukar tóku á móti bikarmeisturum Keflavík í fyrsta leik undanúrslita einvígis liðana í Bónus deild kvenna sem fram fór í Ólafssal í kvöld.

Haukar tóku snemma forystuna sem þær létu ekki af hendi og unnu á endanum sannfærandi fjórtán stiga sigur 85-71 og tóku um leið forystu í einvíginu.

Leikurinn fór fjörlega af stað og bæði lið sóttu stig í sínum fyrstu sóknum. Haukar með Amandine Toi og Catherine Masa fremstar í flokki fylkingar sáu til þess að Haukar voru yfir eftir fyrsta leikhluta 24-16 en þær skoruðu samanlagt 22 stig í leikhlutanum.

Keflavík átti fyrsta höggið í öðrum leikhluta en Lovísa Björt Henningsdóttir svaraði því með þrist. Það voru mikil jafnræði með liðunum og fengu bæði lið kjörin tækifæri á að refsa hvor öðru. Liðin reyndu svolítið við þriggja stiga skotin sem voru ekki að falla fyrir þau.

Haukar voru með 19% nýtingu [4/21] fyrir aftan þriggja stiga línuna á meðan Keflavík var með 13% nýtingu [3/22] eftir fyrri hálfleik en Haukar leiddu með sex stigum 39-33 þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik.

Amandine Toi tók yfir þriðja leikhluta fyrir Hauka og virtist á köflum geta skorað af vild. Það héldu henni fá ef einhver bönd. Hún skoraði 17 stig í leikhlutanum og skildi Keflavík eftir með bakið upp við vegg fyrir fjórða leikhluta.

Haukar voru með ellefu stiga forskot fyrir fjórða leikhluta 64-53.

Verkefnið var orðið erfitt fyrir gestina og ekki skánaði það eftir að Haukar settu sjö stig í röð eftir að Keflavík hafði sett fyrsta stig leikhlutans og voru með fulla stjórn á leiknum.

Það var fljótt ljóst í hvað stefndi og Haukar sigldu á endanum öruggum fjórtán stiga sigri heim 85-71 og taka um leið forystu í einvíginu.

Atvik leiksins 

Amandine Toi tók hreinlega yfir leikinn í þriðja leikhluta og er sú sem skar á milli þegar uppi er staðið. Skoraði 17 stig í leikhlutanum og drap alla von Keflavíkur að fara með eitthvað úr þessum leik.

Stjörnur og skúrkar

Amandine Toi fór hamförum í kvöld og átti Keflavík enginn svör við hennar leik. Hún endaði lang stigahæst með 34 stig. Catherine Masa kom næst henni með 16 stig.

Hjá Keflavík var Sara Rún Hinriksdóttir með tvöfalda tvennu en hún skoraði 12 stig og tók 15 fráköst.

Dómararnir

Bjarki Þór, Bjarni Hlíðkvist og Friðrik dæmdu þennan leik. Að mínu viti komust þeir bara nokkuð vel frá sínu. Yfir litlu að kvarta yfir þeirra frammistöðu.

Stemingin og umgjörð

Það hefði verið skemmtilegra að sjá fleiri andlit í stúkunni í kvöld en fullt hrós á þau sem lögðu leið sína í Ólafssal að hvetja liðin sín áfram. Myndaðist fínasta stemning en kraftur fjöldans getur verið vanmetin.

Viðtöl

Emil Barja á hliðarlínunniVísir/Hulda Margrét

„Líður öllum betur að skjóta í flæði“

„Ég var alltaf hræddur“ sagði Emil Barja þjálfari Hauka í samtali við Andra Már Eggertsson eftir leik.

„Þær geta tekið rosalegt áhlaup, þær eru með fullt af góðum skotmönnum og sóknarmönnum þannig mér leið ekki vel og meira að segja þegar það voru tuttugu sekúndur eftir þá var ég ennþá einhvern veginn stressaður“

„Ótrúlega gaman að sjá mínar stelpur bara stíga upp og mér fannst við bara flottar“

Skotnýting liðana var ekki upp á marga fiska í fyrri hálfleik.

„Já, mér fannst við vera taka ágætis skot en samt gátum við verið að taka ennþá betri skot. Þær eru rosalega út um allt varnarlega og þær veðja á mikið af sendingum og hjálpa mikið á veiku hliðinni og svona“

„Við erum opnar en svo er kannski einhver ennþá opnari við hliðina og kannski þurfum við bara að fara bæta við þessari auka sendingu“

„Taka kannski aðeins lengri og agaðari sóknir þá eru skotin kannski í meiri takt“

„Við fórum að hitta aðeins betur í seinni hálfleik og þá kom kannski aðeins meira flæði og þá líður öllum betur að skjóta í flæði heldur en það er búin að vera einhver stífur sóknarleikur“ sagði Emil Barja. 

Hörður Axel Vilhjálmsson ræðir við sitt lið.Vísir/Pawel

„Hefur meira að gera með okkur heldur en varnarleik Hauka“

„Mér fannst við ekki vera nógu sterkar á svellinu“ sagði Hörður Axel Vilhjálmsson þjálfari Keflavíkur eftir tapið í kvöld.

„Vorum ekki nógu aggressívar og ekki nógu sterkar. Í fyrri hálfleik þá erum við með þrjár villur sem lið sem er bara ekki nógu gott og við verðum bara að vera fastari fyrir“

Keflavík byrjaði leikinn á hælunum og tók Hörður Axel snemma leikhlé til að reyna skerpa á sínu liði. Hann var ekki sáttur með byrjunina hjá sínu liði. 

„Ekki nógu vel, þess vegna tók ég leikhlé í stöðunni 11-4. Margt sem að við hefðum geta gert betur, margt sem að við gerðum vel sem að við getum byggt á en heilt yfir þá er þetta bara leikur sem að við þurfum bara að skoða, fara vel yfir og finna lausnir“

Keflavík var með 20 tapaða bolta í kvöld og átti í vandræðum gegn sterkum varnarleik Hauka.

„Við vorum að flýta okkur alltof mikið. Það hefur meira að gera með okkur heldur en varnarleik Hauka að mér finnst“ sagði Hörður Axel Vilhjálmsson.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira