Einnkunnir íslenska liðsins: Flott frammistaða í seinni hálfleik Hjörvar Ólafsson skrifar 18. apríl 2026 20:42 Sandra María Jessen var hársbreidd frá því að jafna metin. Vísir/Anton Brink Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta spilaði heilt yfir vel þegar liðið laut í hybrid gras fyrir Englandi í undankeppni HM 2027 á Laugardalsvellinum í dag. Leikmenn íslenska liðsins voru einkum og sér í lagi kraftmiklir og góðir í seinni hálfleik.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir 7 Var svolítið óörugg í uppspilinu í upphafi leiksins en óx ásmegin í þeim þætti leiksins þegar leið á leikinn. Var örugg í sínum aðgerðum, greip vel inn í og varði nokkrum sinnum vel. Sædís Rún Heiðarsdóttir ('61) 6 Öflug í varnarleiknum en Sædís Rún þurfti oft að verjast á stóru svæði gegn snöggum og hröðum kantmönnum. Sædís Rún var sterk í þeim stöðum þegar hún þurfti að verjast ein á móti einni. Hefði stundum getað gert betur í uppspilinu en átti góðan leik. Glódís Perla Viggósdóttir (f) 8 Spilaði vel í sögulegum leik þar sem hún bætti landsleikjamet Söru Bjarkar Gunnarsdóttur. Vann mörg návígi, var oft rétt kona á réttum stað og var svo nálægt því að skora jöfnunarmark úr föstum leikatriðum. Flottur leikur hjá fyrirliðanum. Glódís Pera Viggósdóttir að vinna eitt af mörgum skallaeinvígjum sem hún fór í. Vísir/Anton Brink Ingibjörg Sigurðardóttir 7 Hluti af þéttum varnarleik íslenska liðsins sem gaf fá færi á sér. Hélt framherjum enska liðsins í skefjum lengstum í leiknum og stóð sig prýðilega. Guðrún Arnardóttir 6 Solid og traust frammistaða hjá Guðrúnu í bakvarðarstöðunni. Spilaði eins og miðvörður þegar íslenska liðið var að verjast og sá til þess að hjarta varnarinnar var öflug og gaf fá færi á sér. Alexandra Jóhannsdóttir í baráttunni inni á miðsvæðinu. Vísir/Anton Brink Alexandra Jóhannsdóttir 7 Gríðarleg vinnusemi í Alexöndru inni á miðsvæðinu. Á lokakafla leiksins var Alexandra iðin við að finna sér svæði milli miðju og varnar hjá enska liðinu og koma með góð hlaup úr djúpinu. Flott frammistaða hjá miðvallarleikmanninum. Ída Marín Hermannsdóttir ('61) 7 Mikil orka í Ídu Marín og sjálfstraustið í að fá boltann inni á miðsvæðinu varð meira og meira með hverri mínútunni sem leið. Ída Marín hefur gripið tækifærið sem hún hefur fengið síðustu mánuði vel og er á góðri leið með að verða fastaleikmaður í liðinu. Ída Marín Hermannsdóttir er að festa sig í sessi inni á miðsvðinu hjá íslenska liðinu. Vísir/Anton Brink Emilía Kiær Ásgeirsdóttir ('71) 6 Emilía átti fínan leik fremst á miðjunni. Komst betur inn í leikinn í seinni hálfleik og náði að tengja betur við framherjana í pressunni þegar líða tók á leikinn. Komst líka meira í boltann og gerði vel í sóknarleiknum. Diljá Ýr Zomers 6 Komst lítið í boltann framan af leik og fékk úr litlu að moða á kantinum. Vann hins vegar vel til baka og aðstoðaði Guðrúnu vel við varnarleikinn. Kom sér í góðar stöður í seinni hálfleik og spilaði vel. Dilja Ýr Zomers fékk besta færi íslenska liðsins til þess að jafna en Hannah Hampton varði meistaralega. Vísir/Anton Brink Linda Líf Boama ('61) 6 Linda Líf spilaði sinn fyrsta byrjunarliðsleik og komst vel frá sínu. Leiddi góða pressu íslenska liðsins sem var mun betri í senni hálfleik en þeim fyrri. Linda Líf er kraftmikill framherji sem getur nýst vel í skyndisóknarbolta íslenska liðsins gegn sterkari þjóðum heimsins. Linda Líf Boama byrjaði inná í fyrsta skipti í A-landsleik. Vísir/Anton Brink Sveindís Jane Jónsdóttir 7 Komst nokkrum sinnum upp að endamörkum með kraftmiklum hlaupum sínum og skapaði usla með fyrirgjöfum. Var út um allan völl að trufla uppbyggingu enska liðsins og brjóta niður uppsil þeirra. Flott frammistaða bæði í varnar- og sóknarleik. Sveindís Jane Jónsdóttir ógnaði bæði í opnum leik og föstum leikatriðum. Vísir/Anton Brink Sandra María Jessen ('61) 7 Kom sterk inn í framlínuna og var iðin við að koma sér í færi. Bæði með því að stinga sér bakvið vörn enska liðsisn og að þefa upp boltann eftir föst leikatriði. Tréverkið, varnarmenn enska liðsins og Hannah Hampton komu hins vegar í veg fyrir að Sandra María næði að setja mark sitt á leikinn. Katla Tryggvadóttir ('71) 7 Var ein af stóru ástæðum þess að það gekk betur að skapa færi undir lok leiksins en framan af í leiknum. Kom sér mikið í boltann og fann hættulegar stöður á vellinum til þess að fá boltann og skapa usla. Áræðin og skapandi í leik sínum. Katla Tryggvadóttir tengdi vel spilið á milli varnarlínu og framlínu íslenska liðsins. Vísir/Anton Brink Hlín Eiríksdóttir ('86) 6 Fékk nokkrar mínútur til þess að freista þess að jafna metin. Komst ekki mikið inn í leikinn en reyndi það sem hún gat til þess að valda usla. Hildur Antonsdóttir ('61) 7 Það kom festa og baráttuandi með tilkomu Hildar inn á völlinn. Vann boltann oft á góðum stöðum og kom honum vel frá sér. Flott innkoma hjá Hildi sem verndaði vörnina vel og var örugg í uppspili sínu. Hafrún Rakel Halldórsdóttir ('61) 6 Kom inn í vinstri bakvarðarstöðuna og skilaði sínu hlutverki bara með sóma. Varnarlega var Hafrún Rakel sterk og gaf fá sem engin færi á því að komist framhjá henni.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Fótbolti Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Fótbolti Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Herinn kallaður á æfingu á HM Fótbolti Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Fótbolti Fleiri fréttir Straujaði tökumann á HM sem fékk treyju að gjöf Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Mexíkóar fyrstir í 32-liða úrslit eftir skelfileg mistök Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Herinn kallaður á æfingu á HM Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Svisslendingar skoruðu fjögur mörk í lokin Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton HM-framherji fær ekki að koma til Kanada Mollee: „Ég hef fulla trú á liðinu“ Þróttur og Fram fengu heimaleik í undanúrslitunum María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Neymar missir af öðrum HM-leik hjá Brössum Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Ljósmyndarar eyðilögðu þjóðsönginn fyrir Tuchel Spila æfingarleik á meðan HM stendur Gleði og gott veður á TM mótinu í Eyjum Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Maður dagsins á HM: Borinn saman við Essien Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Stuðningsmenn baula á vatnspásurnar Liverpool sækir spænskan landsliðsmann Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Alsíringum tekið opnum örmum í Kansas Þjálfaraskipti hjá Sveindísi Sjá meira