„Andri Rúnar færir liðinu mjög mikið“ Hjörvar Ólafsson skrifar 17. apríl 2026 23:03 Jökull I. Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, fylgist með leiknum af hliðarlínunni. Vísir/Pawel Jökull I. Elísabetarson og lærisveinar hans hjá Stjörnunni eru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leiki sína í Bestu-deild karla í fótbolta en liðið lagði FH að velli í annarri umferð deildarinnar í Garðabænum í kvöld. „
Mér fannst fínt orkustig í þessum leik og við spiluðum bara heilt yfir vel. Að mínu mati hefðum við getað skorað fleiri mörk og farið með meira sannfærandi sigur af hólmi,“ sagði Jökull I. Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, sáttur að leik loknum. „Við vorum að koma okkur trekk í trekk í góðar stöður sem við hefðum getað nýtt betur. Það var svo lítið við mörkunum þeirra að gera. Sérstaklega því fyrra og svo kemur það seinna eftir skyndisókn,“ sagði Jökull enn fremur. Jökull þurfti að taka Emil Atlason af velli eftir rúmlega hálftíma leik en þar var um varúðarráðstöfun að ræða: „Þetta eru smávægileg meiðsli hjá Emil og við vorum í raun bara að passa upp á að meiðslin yrðu ekki verri. Þá er mjög gott að eiga Andra Rúnar á bekknum. Fyrir utan það að skora sigurmarkið gefur Andri liðinu gríðarlega mikið,“ sagði Jökull um framherjana sína. „Það var frábært að finna fyrir miklum stuðningi úr stúkunni og vinna þennan sigur fyrir mikla Stjörnufjölskyldu sem missti mikinn höfðingja og gegnheilan Sjörnumann á dögunum. Nú förum við brattir inn í leikinn við Víking sem verður bara skemmtilegt að spila,“ sagði hann.
Besta deild karla Stjarnan Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Sjá meira