Leik lokið:Valur - Kefla­vík 90-74| Vals­menn sendu Kefla­vík í sumar­frí

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Frank Aron Booker átti frábæran leik í kvöld og setti nýtt persónulegt met í stigum í úrslitakeppni.
Frank Aron Booker átti frábæran leik í kvöld og setti nýtt persónulegt met í stigum í úrslitakeppni. Vísir/Anton Brink

Valur og Keflavík áttust við í oddaleik um síðasta lausa sætið í 4-liða úrslitum Bónus deild karla í N1 höllinni á Hlíðarenda í kvöld. Sigurvegari kvöldsins myndi mæta Grindavík í næstu umferð.

Eftir jafna baráttu lengst af reyndust Valsmenn sterkari í fjórða leikhluta og fóru að lokum með fjórtán stiga sigur 90-76. Valsmenn mæta Grindavík í undanúrslitum Bónus deildarinnar í næstu umferð.

Leikurinn fór fjörlega af stað þar sem bæði lið settu góð skot í fyrstu sóknum sínum. Callum Lawson setti fyrstu stig leiksins en Remy Martin var fljótur að jafna á hinum endanum.

Valsmenn voru að setja góð skot í byrjun leikhlutans og átti Frank Aron Booker til að mynda frábært þriggja stiga skot með mann alveg ofan í sér sem kveikti heldur betur í stúkunni og bongó trommurnar fóru á flug.

Gestirnir frá Keflavík fundu taktinn um miðjan leikhluta og fundu annan gír og náðu að stíga skrefinu framar og það var Keflavík sem leiddi eftir fyrsta leikhluta 17-22.

Keflavík setti þrist snemma í öðrum leikhluta sem varð til þess að Valur tók strax leikhlé til að skerpa á sínu liði og Valsmenn mættu mun einbeittari til leiks eftir það.

Valsmenn snéru augnablikinu alveg við og fóru frá því að elta leikinn með átta stigum í að leiða hann með fimm á tímabili. Sóknarleikur Keflavíkur varð mjög staður og Valsmenn refsuðu.

Þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik var það Valur sem hafði yfirhöndina og leiddi leikinn með sex stigum 44-38.

Það var svakalegur kraftur sem mætti með Keflavík út í seinni hálfleikinn og þeir settu fyrstu átta stig þriðja leikhlutans og náðu að loka á allt það sem Valur vildi gera fyrstu rúmu þrjár mínútur seinni hálfleiks.

Leikurinn varð mjög jafn og alveg í járnum eftir það. Barátta um alla bolta og öll stig. Keflavík leit út fyrir að ætla fara yfir inn í fjórða leikhluta en Keyshawn Woods var á öðru máli og lokaði leikhlutanum með frábærum þrist fyrir Val sem leiddi eftir þriðja leikhluta 65-63.

Kári Jónsson opnaði fjórða leikhluta með þriggja stiga körfu fyrir Val og setti það svolítið tóninn fyrir hvað væri í vændum í fjórða leikhluta.

Valur lék á alls oddi og þeir voru að setja stóru skotin á meðan ekkert gekk upp hjá Keflavík.

Valsmenn höfðu á endanum betur með fjórtán stiga sigri 90-76 og þeir mæta Grindavík í 4-liða úrslitum.

Atvik leiksins 

Þristurinn frá Keyshawn Woods sem lokaði þriðja leikhluta skipti augnablikinu alveg til Vals. Þeir fóru yfir í fjórða og hömruðu svo járnið meðan það var heitt.

Stjörnur og skúrkar

Frank Aron Booker fór á kostum í leiknum og setti 29 stig í kvöld. Hann er mikill stemningsmaður og var að setja stemningskotin í förmum.

Keyshawn Woods var einnig mjög öflugur í liði Vals og setti mikilvæg skot á mikilvægum tímapunkti. Hann endaði með 23 stig.

Hjá Keflavík var Remy Martin stigahæstur með 23 stig.

Dómararnir

Sigmundur Már, Bjarki Þór og Jóhannes Páll sáu um flautuna í kvöld. Mér fannst þeir komast virkilega vel frá sínu og höfðu góða stjórn á leiknum.

Stemingin og umgjörð

Það var full höll í N1 höllinni á Hlíðarenda í dag. Frábær stemning og frábær auglýsing fyrir Íslenskan körfubolta.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira