Uppgjörið:Valur - Kefla­vík 90-74| Vals­menn sendu Kefla­vík í sumar­frí

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Frank Aron Booker átti frábæran leik í kvöld og setti nýtt persónulegt met í stigum í úrslitakeppni.
Frank Aron Booker átti frábæran leik í kvöld og setti nýtt persónulegt met í stigum í úrslitakeppni. Vísir/Anton Brink

Valur og Keflavík áttust við í oddaleik um síðasta lausa sætið í 4-liða úrslitum Bónus deild karla í N1 höllinni á Hlíðarenda í kvöld. Sigurvegari kvöldsins myndi mæta Grindavík í næstu umferð.

Eftir jafna baráttu lengst af reyndust Valsmenn sterkari í fjórða leikhluta og fóru að lokum með fjórtán stiga sigur 90-76. Valsmenn mæta Grindavík í undanúrslitum Bónus deildarinnar í næstu umferð.

Leikurinn fór fjörlega af stað þar sem bæði lið settu góð skot í fyrstu sóknum sínum. Callum Lawson setti fyrstu stig leiksins en Remy Martin var fljótur að jafna á hinum endanum.

Valur-Keflavík Bónus deild karla 2026Anton Brink/Vísir

Valsmenn voru að setja góð skot í byrjun leikhlutans og átti Frank Aron Booker til að mynda frábært þriggja stiga skot með mann alveg ofan í sér sem kveikti heldur betur í stúkunni og bongó trommurnar fóru á flug.

Gestirnir frá Keflavík fundu taktinn um miðjan leikhluta og fundu annan gír og náðu að stíga skrefinu framar og það var Keflavík sem leiddi eftir fyrsta leikhluta 17-22.

Keflavík setti þrist snemma í öðrum leikhluta sem varð til þess að Valur tók strax leikhlé til að skerpa á sínu liði og Valsmenn mættu mun einbeittari til leiks eftir það.

Valur-Keflavík Bónus deild karla 2026Anton Brink/Vísir

Valsmenn snéru augnablikinu alveg við og fóru frá því að elta leikinn með átta stigum í að leiða hann með fimm á tímabili. Sóknarleikur Keflavíkur varð mjög staður og Valsmenn refsuðu.

Þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik var það Valur sem hafði yfirhöndina og leiddi leikinn með sex stigum 44-38.

Það var svakalegur kraftur sem mætti með Keflavík út í seinni hálfleikinn og þeir settu fyrstu átta stig þriðja leikhlutans og náðu að loka á allt það sem Valur vildi gera fyrstu rúmu þrjár mínútur seinni hálfleiks.

Frank Aron Booker og Remy Martin í kvöldAnton Brink/Vísir

Leikurinn varð mjög jafn og alveg í járnum eftir það. Barátta um alla bolta og öll stig. Keflavík leit út fyrir að ætla fara yfir inn í fjórða leikhluta en Keyshawn Woods var á öðru máli og lokaði leikhlutanum með frábærum þrist fyrir Val sem leiddi eftir þriðja leikhluta 65-63.

Kári Jónsson opnaði fjórða leikhluta með þriggja stiga körfu fyrir Val og setti það svolítið tóninn fyrir hvað væri í vændum í fjórða leikhluta.

Valur-Keflavík Bónus deild karla 2026Anton Brink/Vísir

Valur lék á alls oddi og þeir voru að setja stóru skotin á meðan ekkert gekk upp hjá Keflavík.

Valsmenn höfðu á endanum betur með fjórtán stiga sigri 90-76 og þeir mæta Grindavík í 4-liða úrslitum.

Atvik leiksins 

Þristurinn frá Keyshawn Woods sem lokaði þriðja leikhluta skipti augnablikinu alveg til Vals. Þeir fóru yfir í fjórða og hömruðu svo járnið meðan það var heitt.

Stjörnur og skúrkar

Frank Aron Booker fór á kostum í leiknum og setti 29 stig í kvöld. Hann er mikill stemningsmaður og var að setja stemningskotin í förmum.

Keyshawn Woods var einnig mjög öflugur í liði Vals og setti mikilvæg skot á mikilvægum tímapunkti. Hann endaði með 23 stig.

Hjá Keflavík var Remy Martin stigahæstur með 23 stig.

Dómararnir

Sigmundur Már, Bjarki Þór og Jóhannes Páll sáu um flautuna í kvöld. Mér fannst þeir komast virkilega vel frá sínu og höfðu góða stjórn á leiknum.

Stemingin og umgjörð

Það var full höll í N1 höllinni á Hlíðarenda í dag. Frábær stemning og frábær auglýsing fyrir Íslenskan körfubolta.

Viðtöl

Kristófer Acox í leiknum.Anton Brink/Vísir

„Alltaf einhver hetja sem stígur upp í þessum leikjum“

„Við komum bara í leik fimm og það eru allir búnir að spila spilunum sínum einhvern veginn og það er alltaf einhver hetja sem stígur upp í þessum leikjum og í kvöld var það Frank Aron Booker“ sagði Kristófer Acox eftir sigurinn í kvöld

„Hann var ótrúlegur og gerði sérstaklega mikið fyrir okkur þegar menn voru orðnir þreyttir hver sókn var orðin helvíti þung og erfitt að ná í stig þá steig hann upp og setti mjög mikilvæga sérstaklega þrista fyrir okkur“

„Við erum að ná í sóknarfráköst og við erum að halda boltanum lifandi og svo á móti eru þeir að klikka á sínum skotum þannig við náðum bara að grípa þetta“

„Þetta eru yfirleitt 50/50 leikir og það er þetta lið sem nær að grípa þetta. Það kemur smá móment í þessum leikjum sem að bæði lið eru þreytt, allir leikmenn eru þreyttir og bugaðir og maður þarf bara að komas yfir þessa litlu hindrun og við náðum sem betur fer að vera þetta lið í kvöld“ sagði Kristófer Acox.

Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari Keflavikur.Anton Brink/Vísir

„Vorum ekki að hitta úr skotunum okkar og flæðið okkar var lélegt“

„Bara í fjórða leikhluta. Við vorum ekki að hitta úr skotunum okkar og flæðið okkar var lélegt á meðan þeir voru að raða inn hinu meginn“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson aðspurður um hvar þetta hefði farið hjá Keflavík í kvöld.

Þetta var leikur áhlaupa og var Keflavík undir í kvöld. Valsmenn tóku frábær áhlaup í öðrum leikhluta eftir að Keflavík hafði gert vel í upphafi leiks.

„Þetta er bara mjög súrt að vera ekki meira klárir í það að berjast við það áhlaup“

„Mér fannst við vera í takti í gegnum allan leikinn. Við byrjum þriðja leikhluta mjög vel en síðan fer þetta frá okkur hérna í fjórða“

Tímabilinu lokið hjá Keflavík og hvað tekur við hjá Daníel Guðna Guðmundssyni, verður hann áfram með Keflavík? 

„Ég verð bara að skoða mín mál. Ég er nátturlega með tveggja ára samning og ég á bara eftir að setjast niður með stjórn og þetta klassíska fara yfir stöðuna“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira