Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar Jakob Bjarnar skrifar 13. apríl 2026 16:33 Inga kannaðist ekkert við það að ætlaðir væru 15 milljarðar árlega til verkefnis sem Kristrún lofaði og það kom Bryndísi á óvart. vísir/samsett Sjálfstæðismenn telja leikskólaloforð Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, sem hún kynnti á laugardag í Kópavogi, lið í kosningabaráttu flokksins á sveitarstjórnarstiginu og krefja Ingu Sæland, barna- og menntamálaráðherra, skýringa á því hvernig hún hyggst efna það?
Það var Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem vildi spyrja Ingu nánar út í þetta mál. Hún sagði að einhverra hluta vegna væru það ekki oddvitar flokksins í sveitarstjórnarmálum sem kynntu málið heldur forsætisráðherra, sem alls ekki er í framboði til sveitarstjórnar. „Það furðulegasta við þessa uppákomu var hins vegar hvorki staðsetningin né kynnirinn, heldur að útspil Samfylkingarinnar fyrir sveitarstjórnarkosningar væru lagabreytingar, sem er ekki á forræði sveitarfélaga að gera, og að breytingar séu þess utan á málefnasviði ráðherra annarra flokka,“ sagði Bryndís. Vilja vita hvort allir ráðherrar séu sér meðvitaðir um útgjöldin Áður hafði Guðrún Hafsteinsdóttir verið á svipuðum miðum þegar hún spurði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra hvort hún væri meðvituð um þetta loforð? „Í dag er skýrt viðmið í leikskólum að tveir þriðju starfsmanna skuli vera fagmenntaðir. Flest sveitarfélög eru langt undir því marki. Ef á að lögfesta leikskólavist við 12 mánaða aldur blasir við að ráða þarf um 2.400 faglærða kennara auk rúmlega 600 nýrra stöðugilda. Þar að auki er kostnaðurinn metinn á að minnsta kosti um 15 milljarða króna á ári, áður en húsnæðisþörf er talin með,“ sagði Guðrún. Guðrún spurði Þorgerði Katrínu meðal annars um það hvort samráð hafi verið haft milli ráðherra um þennan kostnað?vísir/samsett Hennar spurning var hvort Þorgerður Katrín hefði verið upplýst um þessi „loforð Samfylkingarinnar“, hvort hún væri þeim samþykk og hvort henni þætti það ábyrg fjármálastjórn að lofa útgjöldum af þessari stærðargráðu, það í miðri kosningabaráttu og nota ríkissjóð eins og kosningasjóð Samfylkingarinnar? Flokkur fólksins með allt aðra stefnu í leikskólamálum en Samfylkingin Bryndís hélt því fram að Samfylkingin hefði lofað því að lögfesta leikskólavist um leið og fæðingarorlofi lýkur og þaki á leikskólagjöld. En þessi málaflokkur heyrir undir barna- og menntamálaráðherra og vildi Bryndís meina að nær hefði verið ef Inga hefði staðið þarna á bílaplaninu en ekki Kristrún, til að kynna þetta útspil Samfylkingarinnar. „Því vil ég spyrja hæstvirtan barna- og menntamálaráðherra í fyrsta lagi hvort breytingar á lögum um leikskóla í samræmi við útspil Samfylkingarinnar hafi verið ræddar í ríkisstjórn. Í öðru lagi vil ég spyrja hvort slíkar breytingar séu í vinnslu í ráðuneyti hennar. Í þriðja lagi vil ég spyrja hvenær má vænta þess að ráðherra framkvæmi þetta útspil Samfylkingarinnar? Í fjórða lagi hvernig á að fjármagna þetta útspil Samfylkingarinnar? Verður það með skattahækkunum eða niðurskurði?“ Bryndís taldi svör Ingu stórmerkileg.vísir/anton brink Inga Sæland sagðist vilja taka undir það sem Þorgerður Katrín hefði sagt, það hlytu allir að fagna því að bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla yrði brúað. En hvernig Samfylkingin kýs að haga sinni kosningabaráttu sé nokkuð sem hún vilji ekki skipta sér af. Flokkur fólksins sé með aðrar áherslur, hann vilji koma á heimagreiðslum til foreldra sem vilja vera heima, þau vilji gera fyrirtækjum það gerlegt að stofna leikskóla og svo framvegis. „Við erum ekki einn og sami flokkurinn,“ sagði Inga. Og að ríkisstjórnin myndi gera það sem þurfa þætti til að brúa þetta bil. Hún kannaðist hins vegar ekki við að til þessa hefði verið gert ráð fyrir 15 milljörðum árlega. „Nei, hún Kristrún var ekki að plata“ Bryndís taldi þetta til stórtíðinda og þakkaði Ingu hreinskilið svar. Hún taldi þá liggja fyrir að þær Inga og Þorgerður Katrín gefi lítið fyrir kosningaplön Samfylkingarinnar. Svör Ingu væru þó skýrari, að ekkert væri fyrirliggjandi um þær upphæðir sem ætla mætti í þetta verkefni? „Var forsætisráðherra bara að plata eða er verið að vinna að þessum lagabreytingum? Inga sagði nei, hún Kristrún væri sko ekki að plata. Hún hefði hug og hjarta til að fylgja sínum stefnumálum. Þá fannst henni það sérkennilegt að fólk væri að velta því fyrir sér hvar Kristrún hefði komið fram. „Í Kópavogi? Ég gæti allt eins birst á Austurvelli! Það er ekkert sem segir að við getum ekki hjálpast að en ég bendi á að stefna Samfylkingar og Flokks fólksins er ekki sú sama,“ sagði Inga Sæland.
Alþingi Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Samfylkingin Leikskólar Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Sjá meira