Alfreð hefur áfram trú á Alfred hjá Rosenborg Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. apríl 2026 09:30 Alfreð Finnbogason á tíma sínum með íslenska landsliðinu í fótbolta. Hann er nú íþróttastjóri hjá einu stærsta félagi Noregs. Getty/Alex Nicodim Það reynir heldur betur á Alfreð Finnbogason í nýju starfi sínu sem íþróttastjóri Rosenborg eftir hræðilega byrjun norska félagsins á tímabilinu.
Þrátt fyrir þrjú töp í röð og ekkert mark í upphafi tímabils hefur Alfreð enn trú á þjálfaranum og nafna sínum. Íslenska landsliðsgoðsögnin svaraði fjölmiðlum eftir slaka byrjun á tímabilinu en margir norskir blaðamenn vildu vita hvað Alfreð finnst um byrjunina á deildinni. Hann telur enn að Alfred Johansson sé rétti maðurinn fyrir Rosenborg. „Við erum ekki þar sem við viljum vera en við getum ekki vorkennt okkur sjálfum,“ sagði Alfreð Finnbogason en norska ríkisútvarpið segir frá. Fréttin um viðbrögð Alfreðs Finnbogasonar á fréttasíðu norska ríkisútvarpsins.NRK Rosenborg endaði í sjöunda sæti í fyrra og var síðast í hópi þriggja efstu liðanna sumarið 2022. Liðið hefur ekki orðið norskur meistari í átta ár eða síðan liðið vann titilinn fjórða árið í röð sumarið 2018. Á miðvikudaginn var mikill fjöldi blaðamanna mættur þegar Rosenborg sneri aftur á æfingasvæðið eftir að hafa tapað 2–0 á útivelli gegn Tromsø á mánudaginn. Minni þolinmæði heldur en í öðrum félögum „Ég er viss. Alfred hefur sýnt að hann getur snúið hlutunum við. Við sjáum það á hverjum degi hvernig hann undirbýr sig fyrir leiki og æfingar og hvernig hann á í samskiptum við leikmennina,“ sagði Alfreð. Íslenski Alfreð var ráðinn íþróttastjóri Þrándheimaliðsins í janúar. Hann segist finna fyrir því að það sé lítil þolinmæði í kringum Rosenborg þegar úrslitin láta á sér standa. „Ég hef séð á mínum tíma hér að það er minni þolinmæði heldur en í öðrum félögum. Svona er þetta í stórum félögum. Það er það sem við viljum,“ sagði Alfreð en í hversu langan tíma getur þetta gengið svona? „Við hugsum ekki þannig. Við hugsum um hvernig við getum undirbúið okkur sem best. Við teljum enn að Alfred sé rétti þjálfarinn fyrir okkur. Ekkert hefur breyst í þeim efnum,“ sagði Alfreð. Vilja reka þjálfarann Þekkti Rosenborg-stuðningsmaðurinn Alexander Larsen telur að Johansson ætti ekki lengur að þjálfa Rosenborg og fyrrverandi Rosenborg-leikmaðurinn Steffen Iversen er einnig á því að Johansson verði að fara. „Ég sé enga ástæðu fyrir því að Johansson fái að halda áfram,“ sagði Iversen við Adresseavisen. Johansson sjálfur segist ekki einbeita sér að pressunni í kringum sig. „Ég hef enga áherslu á það og það er alveg í lagi að fólk hafi sínar skoðanir á mér. Það hefur fólk haft frá fyrsta degi, bæði jákvætt og neikvætt,“ sagði norski Alfred við NRK. „Það er svo einfalt að þegar úrslitin eru slæm og frammistaðan léleg þá kemur svona gagnrýni. Ég verð að finna leið til að lifa með því,“ sagði Johansson. Auk þriggja tapa í röð í deildinni féll Rosenborg einnig úr bikarnum gegn Bryne í mars. Þjálfarinn segir að hann sé hvorki ánægður með úrslitin né frammistöðuna það sem af er ári. Sefur ekki vel „Við verðum að verða ákveðnara lið, við verðum að vinna fleiri einvígi og svo verðum við að halda áfram að spila enn meiri áræðinn fótbolta með hlaupum fram á við. Það eru möguleikar í leikmannahópnum sem við höfum ekki enn náð að nýta,“ sagði Johansson. Johansson telur að hlutirnir geti snúist við og bendir á að lið eins og Tromsö hafi byrjað tímabilið illa í fyrra en endað á að ná þriðja sætinu. „Við vitum að hlutirnir geta snúist hratt í fótbolta. Það er þó ekki þannig að ég sofi vel þessa dagana,“ sagði Johansson.
Norski boltinn Mest lesið Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Handbolti Grét alla Reykjanesbrautina Körfubolti Tók upp kvenkyns leikmenn afklæðast í laumi og fær lífstíðarbann Fótbolti Hefnist fyrir klúðrið á Old Trafford Enski boltinn Fögnuðu fram á morgun: „Þeir hlæja ekki lengur“ Enski boltinn Sjáðu Englandsmeistara Arsenal tryllast af fögnuði Enski boltinn „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Körfubolti Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Handbolti Sleit krossband, reif liðþófa og hlaut beinmar Íslenski boltinn Hugljúf kveðja Önnu: „Sé mann sem gaf þessu félagi af öllu hjarta“ Fótbolti Fleiri fréttir Guðrún skoraði skallamark í fimmta sigrinum en tvö Íslendingalið eru jöfn á toppnum Grindavík/Njarðvík - Stjarnan | Mikilvægur leikur fyrir bæði lið Víkingur R. - Þróttur R. | Hörð barátta við miðju deildarinnar Freiburg - Aston Villa | Úrslitaleikur Evrópudeildarinnar Diljá lagði upp mark á leiðinni í átta liða úrslit Þór/KA - Breiðablik | Blikar vilja halda efsta sætinu Valur - Fram | Bæði lið með bakið upp að vegg FH - ÍBV | Halda nýliðarnir áfram taplausir? Til hamingju Arsenal Steve McClaren til Rotherham Adam Ingi og Valgeir í landsliðið og Stefán Teitur færður til Arsenal í skrúðgöngu daginn eftir úrslitaleikinn Áfrýja niðurstöðu aganefndar Hefnist fyrir klúðrið á Old Trafford Hugljúf kveðja Önnu: „Sé mann sem gaf þessu félagi af öllu hjarta“ Bournemouth búnir að tryggja sér Evrópusæti Fyrirliði FH sleit krossband Fögnuðu fram á morgun: „Þeir hlæja ekki lengur“ Sjáðu mörkin: Titilvonir City urðu að engu og falldraugir vofir yfir Tottenham Tók upp kvenkyns leikmenn afklæðast í laumi og fær lífstíðarbann Sjáðu Englandsmeistara Arsenal tryllast af fögnuði Falldraugurinn fylgir Tottenham í lokaumferðina Guardiola tjáði sig um framtíð sína í starfi Arsenal er Englandsmeistari Sleit krossband, reif liðþófa og hlaut beinmar Southampton rekið úr umspilinu og fær stigarefsingu Jason Daði fer frá Grimsby Wrexham eiga tvo fulltrúa á HM Jota fær heiðurspláss í hóp Portúgala á HM Allir leikmenn fá aðgang að kvensjúkdómalækni Sjá meira