Uppgjörið: ÍR - Tindastóll 90-98 | Stólarnir stigu stórt skref í átt að undanúrslitum Hjörvar Ólafsson skrifar 7. apríl 2026 21:01 Ragnar Ágústsson var aðsópsmikill þegar Tindastóll var að byggja upp forskot sitt. Vísir/Vilhelm Tindastóll bar sigurorð af ÍR, 98-90, í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum Bónus-deildar karla í körfubolta í Skógarseli í kvöld. Tindastóll er þar af leiðandi kominn 2-0 yfir í einvígi liðanna. Liðin skiptust á að hafa forystuna í fyrsta leikhluta og jafnræði var með liðunum. Undir lok leikhlutans náðu heimamenn góðum kafla með Tsotne Tsartsidze í broddi fylkingar og staðan var 25-21 ÍR í vil eftir fyrsta fjórðung. Leikmenn Tindastóls komu sterkari inn í annan leikhluta og munaði þar miklu um gott framlag frá Ragnari Ágústssyni af varamannabekknum. Ragnar setti níu stig á skömmum tíma í öðrum leikhluta og var kominn með 12 stig þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik. Tindastóll hafði betur í öðrum leikhluta 26-14 og fór þar af leiðandi með átta stiga forskot, 47-39, inn í þriðja leikhluta. ÍR náði ekki að snúa taflinu sér í vil í seinni háfleik og Tindastóll fór með sigur af hólmi. Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, gat brosað breitt í leiknum í kvöld. Vísir/Vilhelm Arnar Guðjónsson: Viljum meina að við séum með dýpsta liðið „Við náðum upp feykilega góðri vörn í öðrum og þriðja leikhluta sem skilaði því að við náðum frumkvæðinu í leiknum. Þar náðum við forystu sem við létum ekki af hendi,“ sagði Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, sáttur. „Við viljum meina að við séum með mestu breiddina í okkar leikmannahópi. Það leggja allir eitthvað af lóðum á vogarskálina og menn skipast á að vera atkvæðamestir. Við fenugm gott framlag frá Ragnari í þessum leik sem og fleirum,“ sagði Arnar enn fremur. „Það var verst hvað þessi leikur var langur þannig að það er búið að loka Hvalfjarðargöngunum. Nú þurfum við að klára þetta einvígi í næsta leik til þess að fækka ferðum suður á meðan göngin eru lokuð,“ sagði hann léttur. Borche Ilievski: Þeir náðu að stoppa bakverðina okkar „Þeir náðu að halda bakvörðum okkar í skefjum stóran hluta af leiknum og við náðum ekki að finna lausnir á því. Það vantaði ekkert upp á baráttu og orku í liðið en við náðum okkur ekki á strik í sóknarleiknum,“ sagði Borche Ilievski, þjálfari ÍR. „Þegar sóknarleikurinn hikstaði fóru leikmenn mínir of mikið í einstaklingsframtök og það ætluðu allir að vera hetjurnar sem kæmu okkur aftur inn í leikinn. Það kann aldrei góðri lukku að stýra,“ sagði Borche þar að auki. „Við höfum enn trú á því að við getum snúið taflinu okkur í vil. Við verðum bara að fara norður i næsta leik og laga það sem gekk illa í þessum leik þegar þar að kemur. Við getum gert mun betur en við gerðum í kvöld og ef við gerum það getum við komið til baka,“ sagði hann um framhaldið. Borche Ilievski, þjálfara ÍR, fannst leikmenn sínir fara of mikið í einstaklingsframtök. Vísir/Vilhelm Bónus-deild karla Tindastóll ÍR