Njarðvík - Grindavík 84-86 | Allt jafnt eftir ótrúlega dramatík Siggeir Ævarsson skrifar 6. apríl 2026 20:46 Það voru mikil slagsmál í fyrsta leik liðanna en menn héldu sig á mottunni í kvöld þó að spennan væri ekki minni. vísir / guðmundur Njarðvíkingar tóku á móti Grindavík í kvöld í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum Bónus-deildar karla. Grindvíkingar fögnuðu dísætum sigri eftir mikla dramatík, 86-84, og jöfnuðu metin í einvíginu, 1-1. Það var mikill hiti inni á vellinum í fyrsta leik liðanna en í kvöld var fyrst og fremst hiti í húsinu enda Ice Mar höllin þéttsetin og góð stemming þar sem allir sýndu sínar bestu hliðar eftir létt hliðarspor í síðasta leik. Leikurinn fór hratt af stað og það var lítið um varnarleik. Njarðvíkingar virtust finna sig betur í þessu hraða leik og leiddu með fjórum stigum, 24-20, eftir fyrsta leikluta. Þeir hófu annan leikhluta svo af miklum krafti og voru fljótlega komnir tólf stigum yfir. Grindvíkingar reyndu að herða tökin í vörninni en í hvert sinn sem einhver þeirra sýndi smá ákafa endaði einhver leikmaður Njarðvíkinga með galopið skot. Njarðvíkingar virtust á þessum tímapunkti ætla að keyra burt með leikinn en þá rönkuðu Grindvíkingar við sér, skoruðu átta stig í röð án svars og Valur Orri setti síðustu körfu hálfleiksins sem var þristur úr horninu. Staðan 49-44 í hálfleik Njarðvík í vil. Heimamenn að spila ögn betur og gestirnir enn í brekku en leikurinn engu að síður galopinn. Það var allt annað að sjá til Grindvíkinga í seinni hálfleik. Þeir mættu gríðarlega einbeittir til leiks og hófu háfleikinn á 10-2 áhlaupi og voru allt í einu komnir yfir, 51-54. Þá tók Rúnar leikhlé og náði aðeins að trufla flæðið í leik gestanna. Dwayne Lautier bauð svo upp á eins manns sýningu undir lok þriðja leikhluta en hann skoraði tíu stig í leikhlutanum og tryggði að Grindavík var aðeins einu stigi yfir fyrir lokaátökin, staðan 67-68. Grindvíkingar héldu áfram að spila góða vörn en Njarðvíkingar leystu það með því að skora tvo ævintýralega þrista í röð en Kristófer Breki svaraði í sömu mynt og allt í járnum 75-75. Jordan Semple fékk svo í kjölfarið sína fjórðu villu og settist á bekkinn en Dominykas Milka var á sama tíma búinn að vera lengi á bekknum hjá Njarðvík, einnig með fjórar villur. Lokamínútur leiksins urðu æsispennandi þar sem liðin skiptust á að setja risastór skot og á forystunni. Grindvíkingar þurftu að klára leikinn án Semple sem fékk sína 5. villu þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir og Milka fór sömu leið þegar Kane fiskaði á hann ruðning og rúm mínúta á klukkunni og staðan 84-86. Það urðu lokatölur leiksins þrátt fyrir ótrúlega dramatík í lokin þar sem boltinn dansaði á körfuhring Grindvíkinga og engu mátti muna að framlengja þyrfti leikinn. Nánari umfjöllum og viðtöl á Vísi síðar í kvöld. Bónus-deild karla UMF Grindavík UMF Njarðvík