Upp­gjörið: Njarð­vík - Tinda­stóll 103-97 | Njarð­vík tók for­ystuna í ein­vígi sínu við Tinda­stól

Hjörvar Ólafsson skrifar
Valur-Njarðvík
vísir/anton

Njarðvík bar sigurorð af Tindastól þegar í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum Bónus-deildar kvenna í körfubolta í IceMar-höllinni suður með sjó í kvöld.

Leikurinn var í járnum í fyrsta leikhluta. Tindastóll skoraði síðustu sex stig leikhlutans og staðan var jöfn 26-26 eftir fyrsta fjórðung.

Njarðvík byrjaði hins vegar annan leikhluta af meiri krafti og byggði þar hægt og bítandi upp þægilegt forskot. Þar munaði mestu um frammistöðu Brittany Dinkins sem skoraði 21 stig í fyrri hálfleik.

Þegar flautan gall til merkis þess að fyrri hálfleik væri lokið var Njarðvík 59-46 yfir. Danielle Rodriguez var Dinkins til halds og trausts í sóknarleiknum hjá Njarðvík og setti 14 stig fyrstu tvo leikhlutana. Þá setti Sara Björk Logadóttir niður þrjú fyrstu þrggja stiga skot sín.

Madison Anne Sutton fór fyrir Tindastólsliðinu framan af leiknum og var komin með 20 stig í hálfeik. Marta Hermida fór vel af stað í leiknum og lagði til 11 stig í fyrri hálfleiknum.

Leikmenn Tindastóls mættu afar grimmir inn í seinni hálfleikinn og Madison Anne Sutton minnkaði muninn í fimm stig, 63-58 í upphafi þriðja leikhluta. Þá náði Njarðvíkurliðið vopnum sínum á nýjan leik og heimakonur settu niður sex stig í röð.

Fjórða þriggja stiga karfa Söru Bjarkar í leiknum breytti stöðunni svo í 72-61 Njarðvík í vil. Njarðvík fór svo með 79-71 forystu inn í fjórða og síðasta leikhlutann.

Tindastóll andaði ofan í hálsmál Njarðvíkur í fjórða leikhluta en náði aldrei að snúa taflinu sér í vil með því að jafna eða komast yfir. Sara Björk setti niður stórt skot þegar hún sallaði niður fimmtu þriggja stiga körfu sinni undir lok leiksins og kom Njarðvík í 101-95. 

Njarðví fór að lokum með sex stiga sigur af hólmi og leiðir þar af leiðandi 1-0 í einvígi liðanna. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira