Ancelotti vill að Brasilía spili eins og á „kjötkveðjuhátíð“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. mars 2026 22:45 Carlo Ancelotti, landsliðsþjálfari Brasilíu, sposkur á blaðamannafundi. Getty/Fabio Teixeira Það styttist í heimsmeistaramótið í fótbolta en það er keppnin þar sem flestir bíða spenntir eftir að sjá Brasilíumenn spila og tíminn þegar brasilíska þjóðin leggst nánast á hliðina. Núna eru Brasilíumenn með ítalskan þjálfara í brúnni sem gerir ekkert nema að ýta undir spennuna að sjá hvað sigursæll evrópskur þjálfari getur afrekað með liðið.
Brasilía mætir Frakklandi á fimmtudag í Boston áður en liðið etur kappi við Króatíu þann 31. mars í Orlando. Þetta eru síðustu vináttulandsleikirnir áður en Ancelotti tilkynnir endanlegan HM-hóp sinn þann 18. maí. Fyrrverandi þjálfari Real Madrid hefur enn ekki gert upp hug sinn varðandi suma leikmenn. Fjögur eða fimm sæti laus „Það eru fjögur eða fimm sæti laus og við erum með miklar efasemdir í þeim efnum,“ sagði Carlo Ancelotti við ESPN. „Þess vegna hef ég kallað til leikmenn sem ég þekki ekki mjög vel. Ég vil einn varnarmann, tvo miðjumenn og tvo framherja til viðbótar. Samkeppnin er hörð. Það eru forréttindi fyrir landsliðið að leikmennirnir séu svona hæfileikaríkir,“ sagði Ancelotti. "Carlo Ancelotti could be the coolest manager of all time."@MikeLahoud and @oeste salute Carlo Ancelotti after the Brazil manager was spotted at Carnival in Rio 😎 pic.twitter.com/aGBp7aBf0I— CBS Sports Golazo ⚽️ (@CBSSportsGolazo) February 16, 2026 Ancelotti heldur því fram að hann muni áfram treysta á fjögurra manna framlínu. Vill hafa fjóra leikmenn frammi „Ég vil hafa fjóra leikmenn frammi, miðað við samsetningu hópsins sem við höfum. Við erum með nokkra mjög góða leikmenn frammi, svo við verðum að nýta gæði þeirra sem best,“ sagði Ancelotti. Ancelotti tók við landsliðinu í maí 2025 og mun reyna að leiða Brasilíu til sjötta heimsmeistaratitilsins. Landsliðið hefur ekki lyft bikarnum frá árinu 2002 og það næsta sem það hefur komist síðan þá var fjórða sætið árið 2014 þegar mótið fór fram á heimavelli þeirra. Þjálfari Brasilíu vill einnig að landslið sitt sé eins og hin fræga kjötkveðjuhátíð í Brasilíu og nefnir hvað geri hana sérstaka. „Erfðaefni landsliðsins er mjög mikilvægt,“ sagði hann. Hæfileikar, orka og gleði „Erfðaefni Brasilíu er hæfileikar, orka og gleði. Ég vil líkja brasilískum fótbolta við kjötkveðjuhátíðina. Kjötkveðjuhátíðin var ný fyrir mér; ég áttaði mig á því að hún býr yfir mikilli orku, gleði, list og hæfileikum. Og miklu skipulagi,“ sagði Ancelotti. „Að skipuleggja alla skreyttu vagnana með hárréttri tímasetningu. Við verðum að yfirfæra allt þetta yfir á landsliðið: Gleði, orku, hæfileika og skipulag,“ sagði Ancelotti.
HM 2026 í fótbolta Brasilía Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Fleiri fréttir Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Misjafn árangur Íslendingaliðanna ÍBV - Fram | Nær Fram að losna úr fallbaráttunni? 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Sjá meira