Innlent

Rúta út af og Þingvallavegi lokað

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Svo virðist sem rúta hafi hafnað utan vegar á Þingvallavegi.
Svo virðist sem rúta hafi hafnað utan vegar á Þingvallavegi. Aðsend

Lokað hefur verið fyrir umferð um Þingvallaveg vegna umferðarslyss á Mosfellsheiði en þar hafnaði rúta fyrir utan veginn eftir að ökumaður missti stjórn á ökutækinu.

Þetta staðfestir Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Rútan er á Mosfellsheiðinni rétt fyrir utan afleggjara við Kjósarskarð.

Ekkert slys er á fólki en að sögn Lárusar er unnið að því að koma fólki úr rútunni til að ferja það frá svæðinu. Einn dælubíll var sendur frá slökkviliðinu en annars er málið á forræði lögreglunnar á Suðurlandi og er talsverður fjöldi viðbragðsaðila nú þegar á vettvangi.

Ekkert slys varð á fólki þegar rúta fór út af veginum á Mosfellsheiði.Vísir/Bjarni

Til að mynda var björgunarsveit Suðurlands kölluð út. Lárus reiknar með að vegurinn verði opnaður aftur seinna í dag. Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi segir í samtali við fréttastofu að tólf ferðamenn hafi verið í rútunni og að vel hafi gengið að koma þeim öllum í öruggt skjól.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×